sunnudagur, desember 31, 2006

fimmtudagur, desember 21, 2006

spurt er

Í hvaða landi er myndin tekin og hvaða ár?
Annars er uppgjörs á árinu að vænta. Þar verður níðst á náunganum og gert lítið úr flestum þeim sem leggja leið sína á vefsetur næturvarðar. Einnig mun ég leitast við að uppljóstra einu leyndarmáli á hvern þann er í súpunni lendir. Að sjálfssögðu geta menn reynt að svara í sömu mynnt en þeim færslum verður eytt átómatískt.
Hrannar 4
Teddi 2
hinir 1
Vegna fjölda áskoranna verður aðstaða næturvarðar tekin fyrir í ársskýrslunni bæði í máli og myndum. Næturvörður ársins valinn og skemmtilegasti drukkni vinagestur næturvarðarins tekinn tali og rínt í árið með viðkomandi.
Einnig verða þrjár tegundir að kleinuhringjum gagnrýndar og leitað álits á ungum manni sem þekkir hringina út og inn eftir ár eða tvö í Tulsa, OK..
Eftir yfirlestur þessa pistils er ekki úr vegi að spyrja að lokum:
hefuru lesið leiðinlegri færslu á þessum miðli?

fimmtudagur, desember 14, 2006

Birgir Leifur & Jolli

Birgir L. gerir það gott en hver er borgin??? Þessi spurning beinist að sjálfssögðu til Björns jólabarns Arnars.Margt hefur drifið á daga næturvarðar uppá síðkastið. Ráðstefnur, utanlandsferðir, fundir og flutningur lögheimilis ber hvað hæst. Einnig hefur næturvörður staðið í æskuuppgjöri og neyslu áfengis. Áfengi kemur manni alltaf skemmtilega á óvart. Þó er markmiðið yfirleitt að draga úr neyslunni, en vegna þess hve leiðinlegur hversgadgsleikinn er að þá reynist hann (Bakkus) ómissandi félagi og er oft talað umað gera sér dagamun þegar Bakkus er með í för.
Þessi mynd hér að ofan er ansi mögnuð og gæfi ég mikið fyrir að vera þarna enda mikið fyrir jaðaríþróttir. Ég veit ekki til þess að Teddi hafi komið til landsins en þó get ég gefið þá vísbendingu að ég held að Hrannar hafi þvælst þarna um..
Jolli & hinn unnu í hinu:

Eyjólfur Sverrisson 21%

Ásgeir Sigurvinsson 8%

Eiður Smári 8%

Hermann Hreiðarsson 17%

Heiðar Helgu 8%

Ívar Ingimarsson 17%

Annar leikmaður 21%

mánudagur, desember 11, 2006

Spurt er um lifveru

Hvaða dýr mundir þú halda að þetta væri?En ef þú yrðir að giska?

fimmtudagur, desember 07, 2006

Þristurinn

Spurt er um nöfn tveggja manna og staðsetningu þeirra. Eitt stig er gefið fyrir hvert rétt svar. Hrannar er efstur og það er allt að gerast eða allavega eitthvað.

þriðjudagur, desember 05, 2006

Besti markv.

Lehman 15%
Buffon 20%
Ricardo 0%
Van Der Saar 0%
Petr Ceck 30%
Annar leikmadur 15%
Jussi Jaskalainen 20%
Cassias 0%

Leiðindin leyna sér ekki á fjárans vefnum og betur má ef duga skal. Eiður sigraði Miroslav Klose í gær en varla hefur það eitt né neitt með mitt líf að gera.
ps. tuttugu atkvæði voru greidd. Draga má þá álýktun að Lárus hafi ekki valið Man U mann heldur þann sem honum fannst bestur. Einar Bragi lyklaði líklega of oft (en einnig er Hrannar eldheitur Lemmi)og Róbert Garcia virðist ekki stunda þennan vef.

laugardagur, desember 02, 2006

fimmtudagur, nóvember 30, 2006

Take (it easy)

Spurt er um borg?
Þegar ég var snáði tók ég þá ákvörðun að þegar ég og mínir vinir fengjum bílpróf að þá mundi ég teika dag og nótt. Þyrfti ekki að læðast að ókunnum bílum heldur gæti bara tekið í t.d. BMW-inn hans Didda og teikað svo ekki sé minnst um pick-up Hrannars. Þyrfti ekki endilega að sitja við hlið Didda þegar við förum í Bláa lónið eða í bíó. Hefði meira gaman að því að teika. Í dag teika krakkar ekki. Í snjónum um daginn fór ég í bíltúr gagngert til að fá ferska teikara á stuðarann minn. Ekki bólaði á ungum teikara enda hef ég ekki séð slíka manneskju síðan ????????'Dreymdi einnig alltaf um stöðu bílstjóra í þessum gjörningi.
Einnig ætlaði ég að búa til súkkulaðikrem á kökur til að kjamsa á þegar ég yrði minn eigin herra en hef ekki gert. Bæði eru þetta draumar sem ég gæti hæglega uppfyllt þann dag í dag en sit frekar auðum höndum einsog fífl. Ég kaupi ekki einu sinni snúð þó ég eigi pening...!!
Ég hugðist sem krakki halda mig frá víni.. Í dag kann ég vel við vín. Ég skyldi ekki kaffidrykkju en í dag er kaffi mér nánast nauðsyn. Það hlakkaði í mér að byrja að vinna/skóla en í dag vil ég helst hvíla mig. Það að hvíla sig mátti ég ekki heyra minnst á sem krakki. Hef einungis látið einn af mínum fjölmörgu æskudraumum rætast: að vaka frameftir.

þriðjudagur, nóvember 28, 2006

Mesta viðrinið:

Didier Drogba 9

El hadji Diof 6

Gary Neville 6

Arjen Robben 2

Michael Ballack 2





Það er erfitt að setja út á niðurstöðu könnunarinnar. Ég hef nú ekki lagt það í vana minn að setja útá fólk en lesendur hafa talað.

fimmtudagur, nóvember 23, 2006

Siemens

Þegar kólnar í veðri hugsar maður gjarnan til útlanda en ekki endilega þess lands sem myndin er af. Hvert er landið?
  • Ég vil benda áhugasömum á að Ford Hrannars er til sölu.
  • Sá er kommentaði undir merkjum næturvarðar í gær á líklega ekki sjö dagana sæla.
  • Merkileg umræða...!

miðvikudagur, nóvember 22, 2006

Bréf til Láru

Eða réttara sagt bréf frá Lárusi.
Næturverði barst kvörtun/fyrirspurn frá Lárusi þar sem kauði hreinlega fór fram á að næturvörður hætti með svokallað "random mode" á könnununum hér til hliðar á síðunni. Ég hyggst koma til móts við minn tryggasta kúnna en hann vill að ég birti niðurstöður jafn óðum í pistlaformi og mun ég reyna að standa mig í því stykkinu einnig.
Síðast var spurt:
Hver er bestur í heiminum í knattspyrnu?
Svona fór sú kosningin:
Kaká 5
Samuel Eto 4
Annar leikm. 3
Ronaldinho 2
Klose,Lampard,Gerrard,Terry,Cannavaro og Henry komust ekki á blað. Ekki veit ég hvern menn hafa í huga þegar þeir völdu annan leikmann...???
Þátttakan verður að teljast ömurleg og niðurstaðan bendir til að þrítugur Almeru-eigandi hafi kosið fimm sinnum en það þarf ekki að taka það fram að einungis má velja einu sinni og mun ég biðja JR að fylgjast með sumum þegar nær dregur nýju ári. Takið nú þátt í nýrri könnun en munið að þitt val er eitt val.

En nóg um rugl. Rakst á öflugar myndir á vefnum. Gefiðessu gaum.
Einnig spyr ég um dýrategund:

Enn af Ástu

Framsækni Ástu heldur áfram. Þegar ég kynnti son hennar, hann Spaða til leiks grunaði sjálfsagt engum að hún hefði fætt þrjá heilbrigða drengi hvern öðrum glæsilegri.Slegist var um Spaða eftir að ég kynnti hann falann á veraldarvefnum og er það mér heiður að tilkynna að þeir Lundi og Minnkur eru enn án umsjónarmanns. Ásta vill losna við þá til að geta einbeytt sér að eigin frama enda búin að koma þeim vel á legg og gott betur.

laugardagur, nóvember 18, 2006

Yfirburðir

Loks hefur náðst mynd af Friðgeiri.

sunnudagur, nóvember 12, 2006

Listaspurning

AF hverju er verkið?

föstudagur, nóvember 10, 2006

Arsenal-Nissan-Liverpool-Almera

Þessi mynd var tekinn árið 1994 í viðureign Ars og Liv... Næturvörður skrifar helst ekki um knattspyrnu enda lítið fyrir eitthvert fjárans tuðruspark en spyr þó til að koma á móts við menn einsog Tedda stóra og Lárus:
Hvernig fer leikurinn? Hverjir skora? Eru United að toppa á röngum tíma? Eru Chelsea í lægð? Brjálast Wenger? Er Jón Þór enn Newcastle-maður? Hvar er Grímur? Verða Reading ofarlega?
En að alvarlegri málum:
Mér skilst að Höddi@skyr.is hafi verslað sér glæsilega Almeru í gær. Þar með get ég ekki séð hvað eigi að stöðva þennan unga mann. Á Ford Orion ´93 var hann alltaf einsog skugginn af sjálfum sér en samt sem áður hrókur alls fagnaðar hvert sem hann fór. Gaman að segja frá því að líklega mun yngri bróðir Hödda ganga að eiga Orion-inn. Vonandi fær maður að sitja í þessum eðalvagni áður en árið er úti. Myndin að ofan er þó ekki af bíl Hödda. Hans er silfurgrár og að því er mér skilst, töluvert fallegri. Með álfelgum, rafmagni í rúðum og öllu sem manni getur dottið í hug en eitt vantar þó þegar hugað er að eiganda bílsins..!! Næturvörður hefur eytt töluverðri orku í að sannfæra Hödda um að fá sér einkanúmer. Sumir eiga að hafa einkanúmer og tel ég hödda einsog hannaðan fyrir slíkt. Ég hef viljað greiða fyrir númerið fyrir Hörð en tel mig ekki standa nógu vel að vígi peningalega séð. Því vil ég skora á menn að setja í púkkið. Hver getur ekki hent 1000 - 1500 krónum í ungan mann á uppleið. Það væri peningum vel eytt. Mér hafði dottið númerið ASSMAN í hug enda lítill skyr áhugamaður en gaman væri að fá uppástungur hjá ykkur.

fimmtudagur, nóvember 09, 2006

Ein erfið

Spurt er um fjörð. Hvað heitir hann?

þriðjudagur, nóvember 07, 2006

spurning dagsins

Spurt er um bæjarfélag..?

fótbolti

1 FC Maskínan 53
2 One Love 51

3 JOHNNY 45
4 FC STOCKTON 44
5 Love-You-Longtime 40
6 banda-lið 38
7 Mazda FC 31
8 Lucky13 30
9 FF Hampstead Heath Harriers 26
10 Næturverðirnir 23


Þetta er ekki gott. Þegar toppar sumarsins eru geymdir á botninum er eitthvað að. Rakst á feikifínan vef um knattspyrnu.
En það gleður mitt auma hjarta að nafni mínu er enn haldið á lofti í formi maskínu. Eitt er víst: Ég mun vinna Lucky13 eða hvað hann heitir, hvað sem það kostar.Spurt er um eyju, fagra eyju. uppfært Sé það reyndar að nafn eyjaklasans sést sé myndin stækkuð og þar sem ykkur er ekki treystandi að þá kemur hér ný eyjuspurning:
Spurt er um eyju, frekar fagra. Hvað heitir hún?
Að lokum mæli ég með bloggi Ómars, en þessi ungi maður skrifar af kostgæfni um þau mál sem skipta hann máli og enn og aftur mæli ég með bloggi Ljénsherrans. Eigið góðar stundir og munið að enska deildin er ekki búin fyrr en hún er búin. United eiga eftir að dala svo um munar og ?

mánudagur, nóvember 06, 2006

laugardagur, nóvember 04, 2006

Eartha Kitt


Já kom mér á óvart að menn skildu ekki koma með nafn Earthu um hæl. Hún sem lék stóra rullu í Fóstbræðrum svo dæmi sé tekið og þar veit ég að Siggi litli féll fyrir henni.
Sæbrautin hefur talað einsog Tommi Kung fu hefði sagt, góða helgi en passið ykkur á útlendingunum.
Fróðleikur dagsins:
Lárus tíndi ber um morguninn en týndi svo lífi um kvöldið.

föstudagur, nóvember 03, 2006

Spaði

Það er gaman frá því að segja að sjéníum hefur fjölgað. Hin yndislega tík Ásta sem löngum hefur heillað landann með elju og djörfung sat ekki aðgerðarlaus í sumar. Hún féll fyrir hátt settum rakka við rætur Esjunnar og ól honum nokkra hvolpa. Einn þeirra ber af þegar að lögun og skapgerð kemur en það er hann Spaði. Sögur herma að Spaði hafi byrjað að gelta í móðurkviði og hreinlega krafsað sig út. Hann valdi að sjálfssögðu gen móður sinnar þegar að litarhætti og útliti kom en þess má geta að faðir hans er dökkur yfirlitum og ber ekki nafn. Reyndar virðist Spaði litli hafa fengið eyru föður síns.Mynd af Spaða aðeins fjórum dögum eftir fæðingu (glöggir lesendur taka eflaust eftir kvenlegri loppu á hægri hönd)

Þrátt fyrir eðalgen Spaða að þá er hann svo gott sem heimilislaus en faðir hans vill víst ekkert með hann gera og Ásta má ekkert vera að þessu.

Konan á mynd gærdagsins er feikifræg og þykir næturverðinum ömurlegt að Diddi sem nánast allt veit um hana hafi ekki séð sér fært að kommenta. Fóstbræður hafa dálæti á henni eða öfugt...!!!!!!!!!

fimmtudagur, nóvember 02, 2006

Marco Polo


Spurt er um söngkonu????? Diddi vinur minn er þaulreyndur í henni en
þó er ég ekki viss um að hann átti sig sjálfur á því. Sjáum hvað
setur!!, ekki það, hann kommentar aldrei. En hann gaf mér bíl, það
kunni ég vel að meta. Nýjasta vandamálið á þeirri afurð er miðstöðin.
Hún hefur ekki við köldum blæstrinum sem kemur inn undan framrúðinni
mín meginn. Þó getur maður komist hjá mestu loftkælingunni með því að
keyra varlega. Þaðan kemur veghljóðið líka sem græjurnar hafa varla
við. FM-loftnetið er ónýtt eða sambandsleysi á leiðinni. Hann er
bremsulaus, missti pressuna öðru meginn en bremsar mjög vel hinu megin
sem reynist ekki nóg til að stöðva bíl. Fyrir vikið keyri ég varlega.
Svo má ekki á miklu ganga svo CD diskurinn hiksti og taki pásu þannig
að ég keyri líka varlega útaf cd-spilaranum. Maggi hvíti ætlar að gera
við bremsurnar fyrir tíu þúsundkall en ég mun halda áfram að keyra
varlega. Nú er aðal höfuðverkur minn hvort ég eigi að koma honum í
gegnum skoðun í feb og fara alla leið í sambandinu maður og bíll. Ég
hef löngum tengst bílum mínum, elskaði til dæmis Daihatsu Charade´88
bifreið mína sem entist mér í rúm fjögur ár. Það samband endaði þannig
að frambrettið var orðið það slæmt að það þeyttist pollavatn á
bílstjórann sem er þreytandi til lengdar og fjármál mí leyfðu ekki
endalaus sparslkauð. Var reyndar að spá í að nota hann á fallegum
tillidögum einsog tíðkast gjarnan meðal bíleigenda. Ég hef ekki tamið
mér að skipta um bíl einsog nærbuxur einsog bílskúrsbræðurnir og
Hössi. Allavega spurningaleikur næturvarðar er kominn á fullt og gaman
að segja frá því að Hrannar leiðir með eitt stig. Því má við bæta að
Hrannar er löngu kominn með leið á Rangernum sínum. Skil ekki hvað
glæsilegur Ford er að gera með svona gaurum sem kunna ekki gott að
meta.

þriðjudagur, október 31, 2006


Af hverju er myndin eða réttara sagt hvað er á myndinni???

þriðjudagur, október 24, 2006

Hound


Spurt er um nafn á hundi sem og eiganda. Ég er hræddur um að þetta sé ansi auðvelt en það er ekki gott að segja því ég hafði ekki hugmynd um málið og veit því.... Margrét Lára lá vel fyrir Herði og hef ég ákveðið að tileinka honum hundaspurninguna.


Samkvæmt nefi næturvarðar hefur oktober verið betri en júní hvað veður snertir rétt einsog september. Geri aðrir betur.

Ólasfur og Hrannar hafa stofnað fjallgönguklúbb sem heitir Kalkofnseitthvað og fá einungis reyklausar manneskjur inngöngu. Þetta er víst liður í Kákasusprógrammi þeirra félaganna. Þeir halda sem sagt enn að lífið sé bara eitthvað helvítis grín og ætla ég rétt að vona að hún Sigrún stöðv

mánudagur, október 23, 2006

föstudagur, október 20, 2006

Japan

  • Kílóið af Hvalkjöti er á 5-8000 kr í Japan. Þeir eru sólgnir í þetta og er eftirspurnin meiri en framboðið.
  • Sala á hvalkjöti til veitingahúsa hérlendis hefur gengið vel. Algengt er að erlendir ferðamenn komi beint úr hvalaskoðun til að neyta kjötsins.
  • Heildarfjöldi hvala við Ísland er um 300.000 dýr.
  • Tegundirnar eru tólf og algengust er Hrefnan (43.600)
  • Hvalir éta um 6 millj. tonna af fæðu á ári, þaraf 2 millj. af fiski (hitt er smokkfiskur og krabbadýr)
  • Friðun hvala hefur haft slæm áhrif á stærð þorskstofnsins þar sem minna er af fæðu fyrir hann og svo hefur hvalurinn verið duglegur við að éta loðnu svo dæmi sé tekið.
Ég skellti mér einu sinni í Hvalaskoðun. Báturinn brunaði beint að einhverri eyju til að skoða varp einhverra fugla og svo til baka. Samkvæmt Gallup eru 73% af þeim sem farið hafa í hvalaskoðun fylgjandi hvalveiðum í atvinnuskyni. Næturvörður er einn af þeim. Gleymi því ekki meðan ég lifi þegar Hrannar bauð mér í hval-fondue í fyrra... Þvílík máltíð, enda barði Diddi í borðið og vildi ólmur hefja hvalveiðar í atvinnuskyni enda mikill sjóhundur þar á ferð.
Ég, Hrannar og Diddi erum semsagt með veiðunum en Hössi og Styrmir á móti. Gaman væri að vita hvar hinn hámenntaði Björn Arnar stendur í jafn skemmtilegu máli. Þess má geta að Hörður hefur aðra sögu að segja frá hvalaskoðunarferðum en ég.
Árið 2001 fór ég ásamt téðum Hrannari á fund Kristjáns Loftssonar forstjóra Hvals ehf. og vorum við sammála um að verri móttökur og ömurlegri mann höfðum við aldrei hitt. Það lá við hann lemdi okkur. Þannig að ekki ýtti sá pjési undir eitt né neitt í sambandi við sumt og svo hitt eða þannig.

fimmtudagur, október 12, 2006

Arnar Þór Viðarsson

Spurt er um hljómsveit. Þetta er band sem hentar einkar vel til aksturs á þjóðvegum. Meðlimir bandsins eru feikiflinkir og líklegast utan að landi(sem þykir að sjálfssögðu kostur). Vísb. Maðurinn leðurklæddi á myndinni fyrir neðan leit ávallt uðð til trommarans í den...!!

Annars vil ég biðja fólk að varlega í umferðinni því nú fer hann að kólna og þá grípa dekkin ekki jafn vel. Hvet fólk til að leggja leið sína uppí Vöku á laugardaginn að bjóða í bíla, já eða fará opnun IKEA í Garðabænum.

þriðjudagur, október 10, 2006

JR EWING

Sigurður í Berlín síðla sumars.Sigurður er gefinn fyrir alls kyns grín. Spurning dagsins er af örlítið öðrum toga en venjulega. ER drengurinn að grínast á myndinni eða ekki????

Lárus átti afmæli í gær og fékk sér nautalundir í tilefni dagsins. Næturvörður sendir kveðju uppá vífilsstaði. Hrannar lánaði næturverði Sony digital cameru 3.2 megapixels og verður hún notuð til að rífa starfskynningarnar uppúr einhverju.

sunnudagur, október 08, 2006

Spurt er um...............

....nafn mannsins í miðjunni. minnir óneitanlega svolítið á suma en ekki orð um það, nema kannski í kommentumAnnars ekki margt í fréttum nema að það styttist í daginn hans Lalla: Tíunda tíunda. Gaman að sjá jafn efnilegan mann eldast og dafna. Nú að verða tuttugu og átta ára. Þess má geta að Lárus á sama afmælisdag og David Attenborough glæsilegt teymi það.

fimmtudagur, október 05, 2006

NFS

Séð í norðvestur yfir Árskógssand, við vestanverðan Eyjafjörð, í átt að Dalvík í fjarska.
Þau í Ársskógssandi liggja ekki í dvala einsog svo margir Norðlendingar gera á veturna. Nú hefur ný bruggverksmiðja verið sett á laggirnar og mun hún framleiða Kalda, hollan bjór sem ekki inniheldur rotvarnarefni og geymist aðeins í mánuð eða svo. Það verður nú seint vandamál að ég hygg. Vil ég bjóða Kalda velkominn og hvet þig til að gefonum sjéns. Ungur veiðimaður sem mér dettur ekki í hug að nefna skellti sér á vígsluathöfn Kalda og setti í nokkra laxa. Að sögn veiðimannsins er Kaldi góður. En að öðru og mikilvægara Höddi365 sem næturvörður fær seint leið á að skrifa um hafði samband við næturvörð vegna bílakaupa. Ég setti saman tvo og tvo þegar Höddi er annars vegar og grunaði að um væri að ræða tryllitæki. Eftir stutt samtal komst ég að því að Höddi hyggur á BMW kaup, geri aðrir betur. Hrannar hvað!! Ekki mun líða á löngu þar til Höddi muni geisast um á þessum fagra eðalvagni sem myndin er af og segir mér sá hugur að hann muni ekki vera án maka mikið lengur hvort sem honum líkar það betur eða ver. Líklegast hefur bifreið Didda365 samstarfsmanns hans heillað hann. Þetta kennir manni að allt er hægt með eljusemi og kæruleysi að vopni svo ekki sé minnst á umburðalyndi. Spurt er um virkjun. Allavega sjáið þessa virkjun eða hvað þetta heitir.

fimmtudagur, september 28, 2006

Landafræðilalli

Lárus hafði rétt fyrir sér í gær og kom það næturverði ekki á óvart. Flestir þóttust standa klárir á kaupstaðnum Bolungarvík, feikifagur staður sem ég mundi þó ekki fyrir alla muni vilja búa á.Í ag er spurt um heiti á einhverju????????
Lárus er líklegur enda frægur fyrir landafræðiþekkingu. Þó tjáði drengurinn mér það að hann hefði ekki ferðast innanlands lengra en til Hveragerðis síðan á Halló Akureyri ´99 eða ´00.. Að sjálfssögðu fær hann mínus í kladdann fyrir slíkt.
Næturvörður hefur unun af landinu sínu enda uppalinn í slorinu á Bolungarvík. Síðast í gær skellti ég mér til Húsafells til tilbreytingar og deginum áður skoðaði ég mig um í Kerlingafjöllum sem og á Hveravöllum. Fyrir rétt rúmri viku ók ég til Þingvalla og lá við sáðfalli enda fátt jafn fagurt og Þingvellir að hausti. Þar hitti ég Bubba og.........
Þann dag í dag er næturvörður á móti Kárahnjúkavirkjun en svo hefur ekki alltaf verið eða ég allavega var ekkert að spá of mikið í málin. Gaman væri að fá álit sjénísins Lalla á þeirri umdeildu virkjun. Þess má geta að grunnskólaganga Lalla var allt annað en glæsileg og hefði ég ekki sett pening undir það að hann mundi valsa um með BS próf í annari hendi og atvinnutilboð í hinni. Hans sérgrein var að þekkja Camel og Winston í sundur á bragðinu. Var nokkuð góður í því. hann reykti ávallt Camel Filters. Næturverði gékk feikivel að fóta sig í lífinu þar til hann kynntist Lárusi. Jú jú Lárus stundaði íþróttir af kappi en hafði unun af að svolgra í sig landa þess á milli og leggja inn gott orð fyrir sjálfan sig við hitt kynið. Hitt kynið hélt aldrei vatni yfir ljósum lokkunum. Eftir á að líta er ekki furðulegt að ungur næturvörður hafi litið upp til drengsins sem kynnti honum fyrir fullorðins íþróttunum að reykja og drekka með nokkrar stelpur hangandi í sér. Reyndar tel ég að leið mín hefði ávallt legið í átt til mikilla skemmtana. Samanborið við flesta mína vini er ég bindindismaður og gaman að segja frá því að Lárus hefur farið svipaðar slóðir í skemmtanalífinu en hann verður ávallt vinsæll hjá hinu kyninu enda glæsilegur. Nægir þar að nefna eina af könnunum næturvarðar sem hlýtur að útliti ákveðinna drengja. Þar ber Lárus höfuð og herðar yfir félaga sína og skyldi engan undra. Um Lárus gæti ég skrifað í alla nótt en þori því ekki. Þó ætla ég að gerast svo djarfur að skora á drenginn að ferðast um Ísland, hætta þessu flandri útum allan heim og skoða staði einsog næturvörður spyr um. Það mundi ylja mér um hjartarætur að sjá glæsilegan Lárus inná helvítis myndinni.

miðvikudagur, september 27, 2006

September

Samkvæmt útreikningum næturvarðar hefur september verið töluvert betri en júní hvað veður snertir. Tel ég þetta ekki einsdæmi þetta árið. Jú jú það er heitara í júní en engan veginn heppilegt veður til útiveru. Vil ég meina að september einsog hann hefur verið uppá síðkastið sé eitthvert besta veður sem líkami getur verið í, rómantík upp um alla veggi og myrkur þegar það á við. Það má taka það inní reikningana að frjókornaofnæmi gerir ekki vart við sig í september mánuði. Gallinn við september er sá að líkja má honum við sunnudag. Lognið á undan storminum, já eða leiðindunum. Því kvíðir næturvörður næsta sunnudags, helgin búin og september farinn. Takið eftir því að veðrið mun taka stakkaskiptum sem og líðan fólks.
Spurning dagsins er af íslensku landafræðibergi brotin:
Spurt er um kaupstað? Líklega er myndin tekinn í september því ekki er alltaf jafn friðsælt á þessu bæjarstæði.

fimmtudagur, september 21, 2006

1 FF Hampstead Heath Harriers 44
2 JOHNNY 25
3 FC STOCKTON 24
4 Næturverðirnir 23
5 Love-You-Longtime 20
6 Mazda FC 19
7 FC Maskínan 16
8 banda-lið 13
9 Lucky13 9

Ég segi nú bara einsog Benitez: " Þetta er rétt að byrja og þeir frá hampstead munu tapa stigum". Það verður nú samt að gefa Birni það að hann hefur innsæi. Eitthvað segir mér samt að hann eigi eftir að skíta uppá bak.
Mig minnir að þessi kafli keppninnar sé til áramóta og því er keppnin rétt að byrja.

sunnudagur, september 17, 2006

Björn

Björn er alltaf jafn snjall. Ekki það þetta var nánast gefið. Sjá:


XXXXXX-XXXXXXX

Hann sem sagt giskaði á þetta!!

föstudagur, september 15, 2006

Dýr

Spurt er um dýrategund??? Þetta eintak er ansi ungt og því gæti þetta vafist fyrir mönnum. Spurninguna tileinka ég Hödda365 en hann er þekktur fyrir velvild í garð dýra.
  • Lárus leggur golfvallarstarf sitt á hilluna eftir daginn í dag og ætlar hann að reyna fyrir sér á sviði hagfræðinnar. Við á Sæbrautinni óskum kauða góðs gengis.
  • Óli Stef, Hrannar og Jói Gé hafa greitt staðfestingagjald fyrir svokallaða Kákasus reisu sína. Þetta var þá ekki allt í nösunum á þeim.
  • Diddi hefur snúið sólarhringnum við sem sést best á tímasetningu kommentanna sem hann lætur frá sér.
  • Nick Cave.
  • Eftir leiki helgarinnar í enska boltanum verða Chelsea með tvö töp eftir fimm leiki. Það veit á gott fyrir framhaldið.
  • Næturvörður snæddi hádegisverð með Salsola Timo í hádeginu. Geri aðrir betur.
  • Bróðir næturvarðar fékk bílpróf í gær. Ekki lítill lengur.
  • Hef sett mér það markmið í lífinu að byrja aftur á starfskynningunum og kominn með alveg eitrað fórnarlamb til að byrja með og svo mun Höddi liggja í valnum eftir það.

fimmtudagur, september 14, 2006

Næturvarsla

Starf næturvarða er erfitt, það vita flestir. Ég taldi mig lengi vera með betri næturvörðum í borginni þrátt fyrir ungan aldur og litla menntun á sviði vörslu.
Hingað gékk inn blaðburðarkona rétt í þessu. Hún talar mjög mikið. Ég fíla hana þrátt fyrir að enginn þoli hana. Kannski að fólk með smá svefngalsa kunni betur við blaðrandi fimmtugar kjellur heldur en hinn upptekni Íslendingur. Hún tjáði mér að gamli næturvörðurinn sem var/er upplýsingafræðingur að mennt hafi lent í mörgum klípunum í starfi sínu. Mínu starfi. Eitt sinn var börnum tveimur rænt á vaktinni hans. Móðursjúk kona kom niður alls laus en fyrrv. maður hennar (útlendingur) hafði tekið börnin og flúið líf hennar.... Næturvörðurinn fór í málið og var maðurinn stöðvaður í Leifsstöð.
Einnig hafði gamli næturvörðurinn lent í því að gera að sárum ungrar konu sem hafði verið laminn af ástkærum eiginmanni sínum(Frakkar). Svo hafði hann þurft að þrífa ælu úr lyftunni og stöðvað hótelgest með ofurölva stúlku á leið uppí herbergið sitt.
Þessi maður hafði náttúrulega betri menntun en ég og gríðarlega reynslu í starfi. Sjálfur lendi ég aldrei í neinu og er svipað upptekinn og Jón Gnarr var í feikifínum næturvarðar-skets sem þeir Fóstbræður gerðu um árið, nema ég hef ekki kött til að rabba við. Reyndar kom kona inná kontor til mín um daginn og vildi hringja á leigubíl. Klukkan var 0500 á föstudegi. Hún tjáði mér að sér hefði verið nauðgað en var annars hin hressasta þannig að ég var nú ekkert að trúa henni. Svo fór hún bara sína leið og ég hugsaði ekki meira útí það. Þar komst ég þó að því að ég hef lítinn áhuga á veseni og viðbjóði. Vil frekar vera einn á vappi með sjálfum mér.
ps. Er reyndar byrjaður að laða að mér kött í nágrenninu sem heldur ekki vatni yfir sjávarafgöngum hótelsins. Hver veit nema ég eignist þarmeð lítinn, loðinn, aðkeyptan vin. Er að leita að nafni á nýja vin minn. Er með nokkur í deiglunni en hallast einna helst að nafninu Diddi... Já eða Jón Þór, þeir eru svo karlmannlegir einsog kötturinn sem eflist með hverri máltíðinni.

miðvikudagur, september 13, 2006


Sælar!!! Spurt er um kastala, ansi fagran.

Snesi.

þriðjudagur, september 12, 2006

PSV - LFC

Meistaradeildin hefur göngu sína í kvöld og er það vel. Líklegustu liðin eru að sjálfssögðu meistararnir í Barca og svo meistararnir þar á undan Liverpool. Dirk Kuyt verður í heimalandi sínu Hollandi á morgun og kæmi það mér ekki á óvart að hann muni vera munurinn á þessum liðum á morgun.
----------
Sumarið er vægast sagt búið og notaleg þunglyndis tilfinning farinn að gera vart við sig. Ég vildi að ég væri einsog Hrannar, bara þunglyndur á mánudögum. Hvað ætli gleðipillan sem Hössi notar kosti?
----------
Diddi gaf mér Renault um daginn og í gær gaf Jóhannes kokkur mér heimabíó. Ekki amalegt. Svo lánaði hann mér Harmon Kardon magnarann sinn sem ég ætla aldrei að skila. Já maður verður að bjarga sér í þessu lífi og hér eftir mun ég svífast einskis. Það er hvorteðer alltaf hægt að finna sér nýja vini.
----------
Spurningakeppni næturvarðar hefur náð botninum. Ég get svosem reynt að bæta mig en það er nú samt ólíklegt að það takist. Nú mun ég líklega ráðast í starfskynningar á nýjan leik. Höddi hefur tekið nokkuð vel í slíkt og gaman að segja frá því að menn bíða í röðum: Jói Gé, Friðgeir R., Kris-B og að sjálfssögðu handleggurinn eða gullhöndin einsog sumir kalla hann.
-----------

Spurt er um íþróttamann? feikifrægan..!
Að lokum legg ég til að Chelsea verði lagt í eyði... Allavega tapi á morgun.

sunnudagur, september 10, 2006

Benitez klikkaði, á því er ekki vafi.

Spurt er um land. Það koma nokkur til greina en þó má útiloka ófá, allavega, spurt er um land. Sá er nefnir þennan sögufræga "kastala" á nafn fær rós í hnappagatið já eða rassgatið. Svo mæli ég með þessumtengli. Þarna byrjar maður að girnast veggfóður. Átti í erfiðleikum að finna flott veggfóður á netinu en hafði gaman að þessari... Alltaf verið heitur fyrir veggfóðrum. Hef jafnvel verið að girnast að byrja með búð sem einungis selur veggfóður. Endilega tjáðu mér hvar ég finn flott veggfóður á netinu. Alltof lítið lagt uppúr veggfóðrum. Það sama á við um hárkollur. Væri gaman að skipta um hár inná milli. Tala ekki um ef maður hefði ekki hár. Þá er ég að tala um flottar og raunverulegar kollur.

föstudagur, september 08, 2006

Spurt er um tegund? Ekki undirtegund heldur tegund.















Jú auðvitað er þetta leiðinleg spurning en svona er þetta bara. Ef síðasta spurning var til bræðranna Lalla og Matta að þá hlýt ég að tileinka Hrannari þessa.
Svo vil ég minna á fantasy deildina sem einmitt Hrannar stofnaði um daginn. Nú fer hver að verða síðastur ef ekki á að missa af stigunum á laugardaginn..
Fleira var það ekki í þetta skiptið nema jú, skoðið heimasíðu Ljénsherrans hér til hægri á síðunni.

miðvikudagur, september 06, 2006

Spurt er um fjörð??

Þetta er með fegurri fjörðum í Evrópu einsog sést á myndinni enda orti Davíð Stefánsson ófá kvæðin um einmitt litla en fallega bæinn sem þar leynist. Ekki er um Fagraskóg að ræða...
"Gott er flag að fyrna sér
þó ekki sé að kominn
mátti mega byrla þér
né fönn í kaf skal sofinn"

Já líklegast spyr ég fjörð sem og bæ. Bæ
(aukastig og aukin virðing fæst fyrir að nefna heiti kvæðisins að ofan)

mánudagur, ágúst 28, 2006

Danmörk

Það er hætt við því að Danir verði erfiðir við að eiga á Laugardalsvelli.

Annars hefur næturvörðurinn haft allt of mikið að gera í vinnunni til að hlúa að síðunni. Neyta að skrifa inná hana nema ekkert annað sé í boði eða þannig. Vonandi birtir til í þeim efnum enda hafa ófáir náungar komið að orði við mig og hampað síðunni og þá helst pistlum um Hörð. Ég mun á næstu dögum skrifa ýtarlega grein um Hörð enda áhugaverður maður. Tekið verður viðtal við Lárus (um Hörð) og mun ég jafnvel ræða við Grím (um Hörð) ef samningar nást. Grímur segist luma á punktum úr Gaggó einsog hann kallar það. Þar mun hann segja okkur hvaða stúlka hreppti fyrsta koss Harðar og fleira í þeim dúr einsog sveindómsmissinn, fyrsta dóminn, fyrsti smókurinn og allt sem Hörður hugsaði um.
Reyndar hefur næturvörður verið að spá í að hafa síðuna einungis um Hörð en líklega er betra að tala við kauða fyrst, eða hvað? Já bara allt um Hörð. Hvað hann borðaði og hvers vegna hann fór þangað en ekki þangað. Einskonar dagbók.
Hvert sem síðan mun stefna að þá ætlar næturvörður að róa sig í fótboltaskrifum. Hef ekki séð leik með Liverpool á þessari leiktíð og tel ég það hið besta mál. Spurningar munu þó birtast af og til enda lítið mál að skella slíku efni á síðuna. Vonandi eiga menn einhver svör við Tedda. Ég bjóst við Lárusi sterkum en hann hefur ekki verið alveg að heilla mig. Vonandi að hann ráði við þessa: Hver er maðurinn?? Þessi er að mínu mati frekar erfið en svona er þetta nú bara.Fleira var það ekki, jú reyndar. Skemmtileg heimasíða. Hefur stytt mér stundir við næturvörsluna

fimmtudagur, ágúst 17, 2006

Eyðir engu!!


Enduró-torfæruhjól árg05 ónotað til sölu
Fallegt 200cc ekið aðeins 90km í toppstandi með öllum ljósabúnaði og rafstarti. Verð aðeins 160þ og nýr crosshjálmur “XL” á 15þ. Uppl brynjard@simnet.is 8615655

miðvikudagur, ágúst 16, 2006

Reptile

Sumarið er svo gott sem búið. Reyndar verður allt löðrandi í menningu á laugardaginn þannig að enn er hægt að gera eitthvað. Lalli er farinn til Rómar og Hörður er að kaupa bíl Krisby´s. Óli Stef talar ekki um annað en álfelgur og bílgræjur enda kominn í úthverfi. Gaman verður að fá update inná milli um líf Óla. Án víns spái ég honum miklum frama og gríðarlegs dugnaðar. Óli sefur mjög lítið. Hann hefur löngum minnt mig á hund. er alltaf til í tuskið. Stekkur til þegar fara á í langferð. Diddi gaf næturverði bíl í vikunni. Er ég honum þakklátur. Renault Clio ´91. Gengur illa og hefur að geyma gríðarmikið veghljóð. Var skítugur. Er allur að koma til enda kominn í hendur á þúsundþjalasmið eða hvað maður segir. Diddi fer til Danmerkur eftir tíu. Hann er kominn í nudd meðferð vegna meiðsla. Mökkur F. C. má búast við honum öflugum í september. Næturvörður sá Ísland - Spán, leiðindaleikur en gaman að sjá Garcia og Reyna. Hinir voru glataðir. Laugardalsvöllur er að stækka en heillar mig ekki. Xabi Alonzo sást ekki. Hrannar datt í það fim, fös og lau..
Spurt er um stúlku, hver er stúlkan? Hvers lensk? Hví?
Liverpool byrja í deildinni á móti Sheffield! Þeir unnu deildina í fyrra ef frá er dreginn fyrsti mánuðurinn. Hljóta því að vinna í ár. Hvað kostar SkjárSport? Björn Arnar er í einhverjum net-Liverpool klúbb. Fékk eMail frá Benitez um daginn.

laugardagur, ágúst 12, 2006

Fríið búið!!!


Megi þá næturvarslan hefjast

miðvikudagur, ágúst 09, 2006