mánudagur, ágúst 28, 2006

Danmörk

Það er hætt við því að Danir verði erfiðir við að eiga á Laugardalsvelli.

Annars hefur næturvörðurinn haft allt of mikið að gera í vinnunni til að hlúa að síðunni. Neyta að skrifa inná hana nema ekkert annað sé í boði eða þannig. Vonandi birtir til í þeim efnum enda hafa ófáir náungar komið að orði við mig og hampað síðunni og þá helst pistlum um Hörð. Ég mun á næstu dögum skrifa ýtarlega grein um Hörð enda áhugaverður maður. Tekið verður viðtal við Lárus (um Hörð) og mun ég jafnvel ræða við Grím (um Hörð) ef samningar nást. Grímur segist luma á punktum úr Gaggó einsog hann kallar það. Þar mun hann segja okkur hvaða stúlka hreppti fyrsta koss Harðar og fleira í þeim dúr einsog sveindómsmissinn, fyrsta dóminn, fyrsti smókurinn og allt sem Hörður hugsaði um.
Reyndar hefur næturvörður verið að spá í að hafa síðuna einungis um Hörð en líklega er betra að tala við kauða fyrst, eða hvað? Já bara allt um Hörð. Hvað hann borðaði og hvers vegna hann fór þangað en ekki þangað. Einskonar dagbók.
Hvert sem síðan mun stefna að þá ætlar næturvörður að róa sig í fótboltaskrifum. Hef ekki séð leik með Liverpool á þessari leiktíð og tel ég það hið besta mál. Spurningar munu þó birtast af og til enda lítið mál að skella slíku efni á síðuna. Vonandi eiga menn einhver svör við Tedda. Ég bjóst við Lárusi sterkum en hann hefur ekki verið alveg að heilla mig. Vonandi að hann ráði við þessa: Hver er maðurinn?? Þessi er að mínu mati frekar erfið en svona er þetta nú bara.Fleira var það ekki, jú reyndar. Skemmtileg heimasíða. Hefur stytt mér stundir við næturvörsluna

10 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ef að síðan á að fjalla alfarið um mig, fyndist mér eðlilegt að allar spurningar yrðu um mig líka....

Nafnlaus sagði...

Annars sýnist mér þetta vera nhinn eini sanni Freyr Njarðarson...

Nafnlaus sagði...

Þetta er væntanlega leikstjórinn knái Ron Howard. Eða eitthvað svoleiðis.

Nafnlaus sagði...

Þetter rangt. Spurningin er kannski í það erfiðasta. Kem líklega með vísbendingu þegar rökkva tekur.

Nafnlaus sagði...

Þetta er alveg pottþétt Dani. Ég segi Prepen Eldkjær!

Nafnlaus sagði...

Ja eða hreinlega Michael Laudrup

Nafnlaus sagði...

eg segji styrmir .... bródir þinn ??

Nafnlaus sagði...

þetta átti að vera sergei bubka en svo þegar ég fór að kanna málið að þá er þetta sergei bubka junior.
gölluðp spurning og ég biðst fyrirgefningar.
Ætli ég gefi hrannari ekki bara stigið fyrir skemmtilegasta svarið. Ekki það að styrmir verður brjálaður þegar hann sér þetta.
Ertu kominn heim hrannsi minn. vei. sjáumst á billanum í kvöld.

Nafnlaus sagði...

Ég hélt reyndar fyrst að þetta væri Stebbi frændi (Harðar).

Nafnlaus sagði...

billanum ??? nei sjaumst i fotbolta ekki satt