
Hvernig fer leikurinn? Hverjir skora? Eru United að toppa á röngum tíma? Eru Chelsea í lægð? Brjálast Wenger? Er Jón Þór enn Newcastle-maður? Hvar er Grímur? Verða Reading ofarlega?
En að alvarlegri málum:

Mér skilst að Höddi@skyr.is hafi verslað sér glæsilega Almeru í gær. Þar með get ég ekki séð hvað eigi að stöðva þennan unga mann. Á Ford Orion ´93 var hann alltaf einsog skugginn af sjálfum sér en samt sem áður hrókur alls fagnaðar hvert sem hann fór. Gaman að segja frá því að líklega mun yngri bróðir Hödda ganga að eiga Orion-inn. Vonandi fær maður að sitja í þessum eðalvagni áður en árið er úti. Myndin að ofan er þó ekki af bíl Hödda. Hans er silfurgrár og að því er mér skilst, töluvert fallegri. Með álfelgum, rafmagni í rúðum og öllu sem manni getur dottið í hug en eitt vantar þó þegar hugað er að eiganda bílsins..!! Næturvörður hefur eytt töluverðri orku í að sannfæra Hödda um að fá sér einkanúmer. Sumir eiga að hafa einkanúmer og tel ég hödda einsog hannaðan fyrir slíkt. Ég hef viljað greiða fyrir númerið fyrir Hörð en tel mig ekki standa nógu vel að vígi peningalega séð. Því vil ég skora á menn að setja í púkkið. Hver getur ekki hent 1000 - 1500 krónum í ungan mann á uppleið. Það væri peningum vel eytt. Mér hafði dottið númerið ASSMAN í hug enda lítill skyr áhugamaður en gaman væri að fá uppástungur hjá ykkur.

3 ummæli:
Já Egill minn, það er án nokkurs vafa einn af ljósu punktunum í mínu lífi hvað þér finnst alltaf gaman að ræða Hössann sinn. Eitt þarf ég þó að leiðrétta, bíllinn á myndinni er ekki minn en þó sýnist mér hann nákvæmlega eins. Grænblá sanseraður og engar álfelgur, bara ljótir koppar. Ljúfur er hann þó. Varðandi einkanúmerið hef ég ákveðið að fylgja þínum ráðum og fá mér slíkt. Var að hugsa um ,,PRAVDA.IS´´ hvernig lýst þér á það ????
Kramer á þetta númer, Hörður getur því ekki gert tilkall til þess. Enn í staðin fyrir skinka, eins og í Höddi skinka þá lýst mér vel á einkanúmerið klám, eins og í Höddi klám
Leikurinn núna fer 0-1 fyrir Liverpool, Kuyt með markið. Wenger tekur tapinu með stóískri ró. Og samúðarkveðjur til Jón Þórs.
Skrifa ummæli