föstudagur, september 15, 2006

Dýr

Spurt er um dýrategund??? Þetta eintak er ansi ungt og því gæti þetta vafist fyrir mönnum. Spurninguna tileinka ég Hödda365 en hann er þekktur fyrir velvild í garð dýra.
  • Lárus leggur golfvallarstarf sitt á hilluna eftir daginn í dag og ætlar hann að reyna fyrir sér á sviði hagfræðinnar. Við á Sæbrautinni óskum kauða góðs gengis.
  • Óli Stef, Hrannar og Jói Gé hafa greitt staðfestingagjald fyrir svokallaða Kákasus reisu sína. Þetta var þá ekki allt í nösunum á þeim.
  • Diddi hefur snúið sólarhringnum við sem sést best á tímasetningu kommentanna sem hann lætur frá sér.
  • Nick Cave.
  • Eftir leiki helgarinnar í enska boltanum verða Chelsea með tvö töp eftir fimm leiki. Það veit á gott fyrir framhaldið.
  • Næturvörður snæddi hádegisverð með Salsola Timo í hádeginu. Geri aðrir betur.
  • Bróðir næturvarðar fékk bílpróf í gær. Ekki lítill lengur.
  • Hef sett mér það markmið í lífinu að byrja aftur á starfskynningunum og kominn með alveg eitrað fórnarlamb til að byrja með og svo mun Höddi liggja í valnum eftir það.

11 ummæli:

Nafnlaus sagði...

eineygð albínóa leðurblaka

Nafnlaus sagði...

Þad er rett hja Lalla vá eg se þad bara nuna...

Nafnlaus sagði...

Já nei nei.

Nafnlaus sagði...

Þetta er tölvu-unnið dýr, það sést langa leið..annars er þetta bara api.

Nafnlaus sagði...

Ég skil hvað þú átt við Egill en svo er að sjálfssögðu ekki.
Þegar svarið verður gefið upp munu menn segja við sjálfan sig:
Já auðvitað, fífl gat ég verið.

Nafnlaus sagði...

Ég legg ekki í það að geta hvaða skepna kauðinn er. Skil ekkert í kjaftinum á kvikindinu..

Nafnlaus sagði...

Þetta er vansköpuð rotta að sjálfsögðu...
2 stig fyrir
egill

Nafnlaus sagði...

Það er gaman að segja frá því að Egill er heitastur.

Nafnlaus sagði...

Thetta er ikorni,ad sjalfsogdu vanskapadur,ja og albinboi.

Nafnlaus sagði...

Þetta er vanskapaður köttur. 5 stig fyrir Björn.

Nafnlaus sagði...
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.