
Þegar ég var snáði tók ég þá ákvörðun að þegar ég og mínir vinir fengjum bílpróf að þá mundi ég teika dag og nótt. Þyrfti ekki að læðast að ókunnum bílum heldur gæti bara tekið í t.d. BMW-inn hans Didda og teikað svo ekki sé minnst um pick-up Hrannars. Þyrfti ekki endilega að sitja við hlið Didda þegar við förum í Bláa lónið eða í bíó. Hefði meira gaman að því að teika. Í dag teika krakkar ekki. Í snjónum um daginn fór ég í bíltúr gagngert til að fá ferska teikara á stuðarann minn. Ekki bólaði á ungum teikara enda hef ég ekki séð slíka manneskju síðan ????????'Dreymdi einnig alltaf um stöðu bílstjóra í þessum gjörningi.
Einnig ætlaði ég að búa til súkkulaðikrem á kökur til að kjamsa á þegar ég yrði minn eigin herra en hef ekki gert. Bæði eru þetta draumar sem ég gæti hæglega uppfyllt þann dag í dag en sit frekar auðum höndum einsog fífl. Ég kaupi ekki einu sinni snúð þó ég eigi pening...!!
Ég hugðist sem krakki halda mig frá víni.. Í dag kann ég vel við vín. Ég skyldi ekki kaffidrykkju en í dag er kaffi mér nánast nauðsyn. Það hlakkaði í mér að byrja að vinna/skóla en í dag vil ég helst hvíla mig. Það að hvíla sig mátti ég ekki heyra minnst á sem krakki. Hef einungis látið einn af mínum fjölmörgu æskudraumum rætast: að vaka frameftir.
12 ummæli:
Stokkholm?
Annars helvíti góð færsla. Hittir í mark. Mig dreymdi um að eiga sjoppu....
Sammála því að ég sakna teikaranna. Finnast þeir enn í þessum heimi?
ég teika i vinnuna á hverjum degi til ad spara bensín.... Er þetta Helsinki
annars dreymdi mig sem barni ad drekka áfengi og kaffi og reykja vindla á virkum marenera sjálfan mig i raudvini um helgar og safna alskeggi ... gekk mest eftir nema þá vindlarnir og skeggid ... en geng afram ótraudur i leit drauma minna... á einhver stera sem bæta skeggrót?
Fagna ég því að Næturvörðurinn hafi tekið sönsum og drullast til að skrifa eina færslu... ´eða hálfa... En undiritaður hitti Vörðinn á ónafngreindri boltaknæpu í firðinum í gærkvöld ásamt sameiginlegum vini okkar Hr.Sigurðsyni... ´Þó að ég hafi ekki verið upp á mitt besta, drakk ekki einu sinni bjór, þá samglaðst ég vini mínum sem hreinlega ljómaði allur enda nýbúin að hljóta nafngiftina Flugmaður. Hr. Sigurðsson var hress að vanda og þóttist vita allt... Gaman fannst mér að hitta þessa tvo góðvini mína og ræða hlutina... þó aðallega hafi verið rætt um nýja samsung farsíman sem Flugmaðurinn hafði hlotið í einhverjum hrossakaupum... En Flugmaðurinn hefur mikin áhuga á farsímum og gleðst ég yfir því að drengurinn sé komin með Samsung...
Úff, hvern dreymdi ekki um Samsung? Öll þessi blikkandi ljós, ekki ósvipað græunum hennar Gerðar á Kaffi Kjarmóum. Annars dreymdi mig um að verða heroin neytandi.... já, hljómar ekki glæsilega en djöfull freistandi.
Borgin er Glasgow
Borgin er Helsinki og hefur Hrannar tekið við af Tedda hvað fróðleik varðar. Yfirburðamaður
hahaha "jumalla ottua minua" er þad eina sem eg get sagt ....
Hrannar þú ert náttla hálf-finni! Eina sem vantar er að þú sért leiðinlegur. Þannig að þetta stig gildir ekki....
Já ég neyðist til að taka mark á Lalla... Hrannar er náttlega Finni. Þetta er svipað og ég myndi birta mynda af
GREINILEGT AD LARUS HEFUR EINHVER ITOK I PUNG EGILS.....EG A SKILID 2 STIG FYRIR ÞESSA DJOFULSINS VITLEYSU
Skrifa ummæli