mánudagur, desember 08, 2008

Sumarið sem leið

Lagt á ráðin fyrir inngöngu á skemmtistað.
Haukur Dan hefur gríðarlegan áhuga á golfi.
Grímur hefur löngum verið iðinn við garðyrkjustörf enda handhafi skrúðgarðsgráðu einsog frægt er orðið.
Tónleikar með Bjork & Sigur rós.
Afmæli hjá Herði að hætti Hössa. Grill, guggur og sól. Höddi sló í gegn seinna um kvöldið einsog flestir vita.
Jón bauð til afmælisveislu í einbýlishúsi sínu. Heimili hans heillaði alla sem mættu.
Dönsk kýr við dagleg störf.
Drukkið, reykt og spjallað. Hvern hefði grunað að þessir tveir myndu búa saman stuttu seinna.

fimmtudagur, nóvember 20, 2008

Renault Clio (1991-2008)

Helsti gallinn við þessa tilveru er að allt sem er gott, tekur enda. Þessi fagri bíll hefur fylgt mér í gegnum súrt & sætt síðan Diddi selbitaði lyklana yfir teitið sem við vorum í Verslunarmannahelgina ´06.. Rausnalegri gjöf hef ég ekki fengið og verð ég að sjálfssögðu í ævilangri skuld við Didda héðanífrá.
Það má segja að kerfið hafi afneitað bílnum. Ekki nógu góður og ekki nógu margir öruggispúðar á víð og dreif um bílinn. Krókur fékk í mallann og ríkið náði sínu fram. Ég sit eftir með sárt ennið.
---
Björn Arnar hugðist skrifa harðorðann pistil á bloggi sínu (sjá hér til hægri undir BAH) gegn bílum en vil ég biðja kauða um að athuga þá staðreynd að sumir bílar eru meðal okkar til að þjóna.
---
Að lokum ber mér að tilkynna að pistils um Danmerkurferð mína er að vænta. Þar valsaði ég um ásamt Herði og hans fylgdarliði en vann einnig hörðum höndum til að eiga ofaní mig og á. Þegar Hörður er annars vegar, verður að skjalfesta það og hvað er betra en internetið til slíks..!
Þó vil ég geta þess að það verður ekki ritað orð á þessum miðli framar nema um meðalundirtektir verði að ræða.

miðvikudagur, september 10, 2008

Hafnfirðingar og Grímur

Við Hafnfirðingarinir tókum Grím okkar til sjávar á fleyinu Sæja HF 230. Þrátt fyrir góða takta við næturvörslu er alvitað að hafið hefur ávallt heillað mig meira. Það er bara þannig.
Við Kristján erum öllum hnútum kunnugir á hafi úti en einsog sést á svipum þeirra Óla&Gríms að þá var þeim greinilega ekki sama þegar siglt var úr höfn.Kristján þurfti aðeins að eiga við útgerðina í upphafi enda díselolían að gera útaf við þá. Þess má geta að þeir eru með Volvo Pentu dísel í Sæju.
Einsog sannra sómaður er siður að þá var sleppt úr vör í hafið í útsteam-inu.
Smábátahöfnin kvödd.
Kristján er mikill höfðingi og vildi leyfa Grími sem alinn er upp í Garðabæ að spreyta sig á siglingafræðinni. Grímur sýndi mikla dirfsku einsog áður hefur komið fram á þessum miðli. Verst að aflabrögð Sæju buðu ekki uppá mikinn afla einsog átti eftir að koma í ljós útgerðinni til mikils ama.Eftir á að líta er greinilegt að Múkkinn skilur hvorki upp né niður í ákvörðun okkar félaganna um val á veiðistað.
Eftir mikla baráttu lágu fjórir ræflar í valnum og allir komu þeir undan Óla. Næturvörður tekur ofan fyrir Óla og einnig þeirri staðreind að ein af tutlunum hans endaði í feikifínum sushi-rétti.Þrátt fyrir austan sudda og slæma veiði voru menn hæstánægðir með túrinn.
Fyrir hönd Gríms og Óla vil ég þakka kærlega fyrir sjóferð þá er Sæja bauð uppá á degi sem virtist ekki bjóða uppá eitt né neitt. Kristján gerði greiða þennan dag.

miðvikudagur, ágúst 20, 2008

Af bílum

Einsog allir vita eru bílar okkar þarfasti þjónn. Bíll er þó ekki það sama og bíll.
Frakkar eru náttúrulega sjéní og það nýtti næturvörður sér. Bílinn fékk hann að gjöf frá vægast sagt góðhjörtuðum plötusnúði hér í borg.
Óli skellti sér á fagran amerískan kagga.
Lárus að þrífa enda eigandi BMW.
Jói skellti sér á splunkunýjan þýskan eðalvagn enda með dýran smekk, feikidýran smekk.

Glæsileg nútímakerra bliknar í samanburði við þann gamla. Svíar hafa löngum verið leiðandi í straumlínulagaðri hönnun glæsibifreiða.
Frábær
Frábær
Ekki náðist mynd af pick-up Hrannars, hlaðbak Didda né Nissan Hödda svo ekki sé talað um jeppaklúbb úlfanna. Bíll Óla Stef þótti ekki nógu góður fyrir vefsíðuna. Um reiðhjól Björns verður kannski rætt í framtíðinni.

fimmtudagur, ágúst 07, 2008

Sjóstangaveiði

Fórum fjórir að veiða og fengum fjóra fiska. Óli fékk þá alla. Dapur árangur en allir komu sáttir að höfn. Kris-b á bátinn sem heitir Sæja.

Grímur sigldi af festu og sýndi gríðarlega yfirvegun þrátt fyrir erfiðar aðstæður. Gaman að fermingarkirkja okkar Gríms sést út um gluggan þegar hann sigldi út Hafnarfjörðinn.

föstudagur, ágúst 01, 2008

Talking Heads.....!


Sat ásamt nokkrum mönnum við öldrukkju eftir krefjandi golfhring. Vorum að spá í músík. Komumst fljótlega að því að This must be the place væri eitthvert mest "alt muligt" lag allra tíma, hvað sem það nú þýðir. Hvert er þitt ískalda mat?
  • Fínt í Eurovision
  • Gott í teiti
  • Frábært í eftirpartý
  • ágætt yfir máltíð
  • Þokkalegt í iPod-inn
  • Skemmtilegt í skokkið
Myndbandið er allavega eitthvert það al-bezta..

laugardagur, júlí 12, 2008

Sumar?

Í dag er laugardagur. Vegna veðurs fann ég mig tilneyddann til að skrifa hér. Nennti ekki að tengja myndavélina mína við tölvu og skrifa pistil um Ólaf en slíkt verður gert. Drengurinn er búinn að þvælast það mikið um Árnessýsluna að það er ekki hægt annað en skrifa pistil um hann. Einnig verður fjallað um Jóhann sem er einhver mesti alt muligt maður sem ég þekki.

Til að byrja með verður kem ég með spurningu. Spurt er um land eða þjóð en:
Hvert er landið eða þjóðin?

fimmtudagur, júní 19, 2008

Bjössi

Hverjum dettur í hug að skjóta þessi dýr?
Ósköp vinalegir.....!

sunnudagur, júní 15, 2008

Fagur garður

Palermo, Buenos Aires.. Þarna væri ekki slæmt að hvíla leggina sína í lok erfiðra vinnudaga.

sunnudagur, júní 08, 2008

Óður til Ólafs...


Ólafur fagnaði þrítugs afmæli sínu fyrir tíu dögum og svo aftur fyrir viku. Hann bauð nokkrum félögum út að borða og svo á tónleika með goðsögn fyrir tíu dögum og svo toppaði hann góðmennsku sína með teiti með veglegum veitingum að heimili sínu í Reykjavík.


Til hamingju Ólafur.

föstudagur, maí 30, 2008

skjálftahelvítið.


Sjálfur var ég í rútu sem var stopp. Dúandi dekkin gerðu frekar lítið úr skjálfanum og líktistetta því frekar vindhviðu. En Ingvi flottur í settinu. Greinilega með fréttagenin blessaður.

mánudagur, maí 12, 2008

Mánudags ólga..

Það er hreinlega allt að gerast... Hörður flaug þyrlunni 4405 mílur en næturvörður 4678 mílur.

Samkvæmt samstilltri klukku okkar hér á Sæbrautinni er líklegt, ýtreka líklegt að Höddi hafi átt metið í fimmtán mínútur. Til hamingju með það Hörður.
Metið er í höndum næturvarðar þar sem það á heima.
Er Óli búinn að heltast úr lestinni?
Í hvað er Björn að komast?
Er Lalli farinn að munda músina?
En Tóti?

föstudagur, maí 09, 2008

Nýtt met...!!!!

Kíkti í rússneskt Mate til Óla. Fékk að taka aðeins í ThinkPad-inn. Þvílík græja. Metið svo gott sem féll um hæl. Get ekki beðið eftir að takí Acer-inn hans Hödda.

"að fljúga þyrlu er ekki ólíkt því að dansa Tangó" var haft eftir Næturverðinum.

Copter vs Chopper

Fékk símtal frá ungum manni í gær, manni sem reynir linnulaust að ná metinu í Chopper. Hann spurði hvort methafi lægi á trikkum..! Svo er að sjálfssögðu ekki. Svo girntist hann fullscreen mode. Slíkt notum við ekki heldur.
Eftir símtalið vafraði ég um vefinn og fann þetta. Sjálfur er ég ekki hrifinn og kýs að fljúga þyrlunni minni ekki við þessar aðstæður.
Hef þó veitt þessu formi lofthæfiskírteini og óska mönnum góðs gengis.
Metið mun falla en í hendur hvers...?
Þess má geta að hið nýja form kallar leikinn Copter. Svo döpur er sú nafngift að þessi heitir sama nafni.
Chopper II er í bígerð. Manni er óneitanlega farið að klægja í puttana enda grafíkin í þeim nýja greinilega kingilmögnuð.

þriðjudagur, maí 06, 2008

Kjúklingar lagðir

Metið er komið í réttar hendur. Næturvarszlan hentar Chopper-leiknum feikivel.

Skelltu þér í chopper..

þriðjudagur, apríl 29, 2008

Óli þrjúþúsund

Stjarna Harðar skein glatt en ey lengur. Ólafur er nafn sjénís sem sigrast hefur á fleiri hindrunum á þyrlu sinni en nokkur annar ofurhugi.
Einsog sést skín einbeitingin úr drengnum og félagi Lárus passar sig greinilega að trufla ekki.

"Ég hóf daginn við Thinkpad-inn minn, reiður en einbeittur. Metið féll fyrir hádegi" voru orð Ólafs.
Þrjúþúsund stiga múrinn er fallinn og hætt við því að keppnisskap Harðar hlaupi með hann í gönur. Sjálfur ætla ég að slaka á, ná áttum og hringja mig inn veikan í vinnuna á morgun. Verkefni morgundagsins er einfalt. Sigra ljóskurnar.
Við á höfuðstöðvunum óskum Ólafi til hamingju en biðjum hann að gorta ekki um of því gort er mannsins gys.

mánudagur, apríl 28, 2008

Husky hefur talað

Metið er fallið og það í hendur Harðar. Einbeiting og hugarró Harðar virðist nýtast vel í Chopper. Það er ekki á færi allra að leggja Óla Stef af velli í arcade leik. Þó fékk ég fregnir af því að Hörður hefði stundað stífar æfingar og grunaði mig strax hvað væri á seyði þegar surgaði í símtóli mínu og nafn Hödda Express birtist á skjánum.
Við á höfuðstöðvunum óskum Herði til hamingju en minnum hann einnig á það að það getur verið kalt á toppnum. Við Óli munum án efa reyna velta kauða af stalli.

"þegar ég set mér markmið er ekki aftur snúið" voru orð Harðar eftir að metið var fallið.

föstudagur, apríl 25, 2008

Þróun Ólafs sem chopper leikmanns

Metið er fallið. Óli, þessi mikli keppnismaður skaut mig í kaf og bætti árangurinn um tvö massív stig. Ég hef allavega eitthvað að gera um helgina.
Eitthvað var hann nú lengi í gang.
Stund milli stríða.
Hér gefur að líta hið gríðargóða skor sem kom Óla á toppinn.

þriðjudagur, apríl 22, 2008

Billy Mitchell

Chopper er tölvuleikur sem krefst gríðarlegs áræðis og seiglu. Heyrst hefur að gullsmiður hér í borg komi litlu sem engu í verk vegna metnaðs fyrir leiknum. Metið hefur verið sett og sannanir hér með birtar einsog lög gera ráð fyrir. Metið á sjálfur næturvörðurinn enda væri nú varla verið að blogga um málið ef svo væri ekki. Hann er þó maður í það að bjóða mönnum uppí dans. Náist að slá metið verður að sjálfssögðu að mynda verknaðinn og koma honum í réttar hendur.
Þess má geta að hærra skor hefur náðst en án sannana.

Leikinn stórskemmtilega er hægt að nálgast hér..

fimmtudagur, apríl 17, 2008

Óður til Tøde buggnings

Reyndi að finna mynda af manninum ólaðan við tjaldsúlu en fann einungis þetta:

Megi drengurinn eiga happ í hendi hvort heldur í kvenamálum eða í hinu...!
Nafn hans hefur verið ritað á internetið og geri aðrir betur...

fimmtudagur, apríl 03, 2008

Talking Heads - "Sugar On My Tongue"


Ég held að flestir ef ekki allir geti verið sammála um að þetta verði sumarið hjá T.H.

þriðjudagur, mars 25, 2008

þriðjudagur, febrúar 05, 2008

Bílastaedaverdirnir

Grillad á búgardi foreldra konu bródur Jorges sem er rétt hjá búgardi foreldra Guillermo sem Palli Ól kynntist í London.... ....Ha..!
Bordad og drukkid..
Spilad ¿Boccia? á búgardi foreldra Guillermoś.. Sá er til vinstri, Augustine í midid og Jorge til haegri.