þriðjudagur, apríl 29, 2008

Óli þrjúþúsund

Stjarna Harðar skein glatt en ey lengur. Ólafur er nafn sjénís sem sigrast hefur á fleiri hindrunum á þyrlu sinni en nokkur annar ofurhugi.
Einsog sést skín einbeitingin úr drengnum og félagi Lárus passar sig greinilega að trufla ekki.

"Ég hóf daginn við Thinkpad-inn minn, reiður en einbeittur. Metið féll fyrir hádegi" voru orð Ólafs.
Þrjúþúsund stiga múrinn er fallinn og hætt við því að keppnisskap Harðar hlaupi með hann í gönur. Sjálfur ætla ég að slaka á, ná áttum og hringja mig inn veikan í vinnuna á morgun. Verkefni morgundagsins er einfalt. Sigra ljóskurnar.
Við á höfuðstöðvunum óskum Ólafi til hamingju en biðjum hann að gorta ekki um of því gort er mannsins gys.

1 ummæli:

Óli Stef sagði...

Skrapp til Reyksins einsog ég kýs að kalla hann, því ekki hefur hann staðið við STÓRU orðin varðandi blessaðar retturnar og fær því nafnið staðfest tímabundið .
Hann stóð sig einsog hetja í chopper í gær og flaug henni í 3317 stig með áhorfendum sem er met með áhorfendum.
og þess má geta geta að Tóti náði deathscreen í goldminer eða 17000 stig.