
mánudagur, apríl 28, 2008
Husky hefur talað
Metið er fallið og það í hendur Harðar. Einbeiting og hugarró Harðar virðist nýtast vel í Chopper. Það er ekki á færi allra að leggja Óla Stef af velli í arcade leik. Þó fékk ég fregnir af því að Hörður hefði stundað stífar æfingar og grunaði mig strax hvað væri á seyði þegar surgaði í símtóli mínu og nafn Hödda Express birtist á skjánum.
Við á höfuðstöðvunum óskum Herði til hamingju en minnum hann einnig á það að það getur verið kalt á toppnum. Við Óli munum án efa reyna velta kauða af stalli.
"þegar ég set mér markmið er ekki aftur snúið" voru orð Harðar eftir að metið var fallið.

Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Helvítið hann Hörður kominn í spilið, þá er voðinn vís því einsog menn vita þá er Hörður svokallaður sólarhringslappari, eða maður sem er með tölvuna alltaf í fanginu. Þessvegna datt mér í hug þessi ferskeytla hérna.
Ljóð
lappinn er límdur við hann
maður sem fátt annað kann
leikinn um chopper hann fann
og metið mér úr höndum rann.
(já til mannsins með risadelann).
það er nú bara ein leið til að svara þessu.
Í morgun fékk mér ost úr geit
Hugsaði minn gang og strengdi heit
Ég mun aldrei hætta leit
Get ekki sætt mig verði hún feit
Svo farðu bara á beit, uppí sveit
Látraströndin fögur, það ég veit
Óli minn, þú ert great
Get my drift ???
Já vel mælt Hörður og gott met.
Ég er ansi smeykur við að vera ad fara norður á Látraströnd í fjóra daga án Choppers. En hér er ein létt skeytla.(gáta)
Á Látraströnd er kviðan köld
engin verður þar vinstrismellur
en ég býst við nýju bloggi í kvöld
og guð má vita hvert metið fellur.
Þar hafið þið það. ég vil koma á framfæri að orðin mín í fyrstu skeytlunni um manninn sem ekkert kann voru meira svona fyrir rímið heldur en í sannleika sagt.
Skrifa ummæli