fimmtudagur, júlí 20, 2006

Nafn Harðar..!

Góðan dag. Hörður vill gjarnan losna við reyks nafnbótina. Ekki málið segjum við hér á þessum miðli en leikur þó forvitni á að vita hvernig þú lesandi góður hefur vistað nafn Harðar í símanum þínum og hvers vegna.
Sjálfur notast ég við Höddi Express og nokkuð augljóst hvers vegna. Hef mikið verið að spá í að breyta því í FlyHöddi en get ekki hugsað mér að hafa hann undir F-inu.
Að lokum vil ég skora á fólk að virða aldur Harðar og reynslu og leggja reyks nafnbótina niður. Takk

miðvikudagur, júlí 19, 2006

Til hamingju Hössi....!

Hvern hefði grunað að Hössi yrði þrítugur og það á miðvikudegi? Þegar ég hugsa um Hörð dettur mér í hug orðið velgengni en svo reyndar þegar ég pæli betur í málinu að þá rámar mig í stutt tímabil þar sem drengurinn átti varla í sig né á. Ég ítreka að það var stutt tímabil og gaman að segja frá því að á sama tíma lifði hundurinn Sesar sældar lífi í einu af hreysum Hverfisgötunnar og það á kostnað húsbónda síns. Bara þetta ræfils dæmi lýsir þeim góðhjartaða en um leið umdeilda Herði sem ég kynntist veturinn ´91 eða Nevermind veturinn einsog hann kýs að kalla hann. Aldrei vissum við Lárus hvernig rándýrt tóbakið hvarf.
Þó Hörður sé góður við náungann og traustur sem næturvörður að þá hafa dýr alltaf átt hug hans allan. Ekki er til sá fugl sem hann þekkir ekki og það er tímaeyðsla að tala um ást hans á hundum. Talandi um ást, drengurinn er laglegur einsog við vitum kvenfólk laðast gjarnan að honum. Svo skemmir lipur tungan ekki fyrir honum og á ég þá við mælsku-snilli hans.
Ég held að flestir geti verið sammála um að Hössi sé fremstur meðal jafningja.Fáir eru jafn kokhraustir og fáir eru jafn ferskir útá við. Drengurinn fer sínar eigin leiðir og gefur jafnan skít í hvað öðrum finnst(á jákvæðan hátt). Hann hefur verið kenndur við allan andskotan, allt frá ummálseiningum til heilu flugfélaganna svo ekki sé minnst á reyks nafnbótina. Millinafn mannsins er lífsleikni, já eða hispursleysi.
Hvernig sem því líður að þá verður Hössi alltaf Hössi. Hvort sem hann er þrítugur, fátækur, þunnur eða þreyttur.Nú um þessar mundir eru enn ein kaflaskiptin hjá Herði. Hann hyggst kynna sér úthverfi Reykjavíkur eftir sjö ár í miðbænum. Líklegt verður að teljast að stúlka eigi hlut að máli en það hef ég frá áreiðanlegum manni (LJ) að Hörður muni ekki búa einn í glæsilegu íbúð sem mér skylst að sé hvorki meira né minna en tvöhundruð fermetrar. Geri aðrir betur og greinilegt að þessi drengur stefnir hátt. Nú þegar þriðjungur er búinn af ævi hans að þá vil ég óska honum vel að lifa og til hamingju með afmælið.
Segðokkur svo hver það er sem er að flytja með þér í úthverfið!! Er lítill reykur á leiðinni í heiminn?

mánudagur, júlí 17, 2006

Mánudagur

Það má segja að sumarið sé komið þó svo að helgin sé búin. Björn er kominn til skersins og byrjaði á því að hrifsa Óla Stef í veiðiferð norður í land.
Spurningar þessarar viku eru tvær:
1.Allir þekkja hið ameríska Grand Canyon en gleyma stundum að fleiri eru canyon-in og spurt er, í hvaða landi er þetta fagra canyon???(þú mátt gjarnan smella á myndina)

Dagbók Berlínarkonu var lesin í vikunni sem leið af næturverði. Bókin er af helfarar-toga nema að hún er rituð af Þjóðverja einsog nafnið gefur til kynna. Hún er ekki eins hörð/gróf og minningar Leifs heitins Muller í Býr Íslendingur hér, kannski vegna þess að maður var orðinn vanur nauðgunum strax í fyrsta kafla. Bókin gerist í stríðslok. Dagbókin upplýsti mig ansi mikið um líf Þjóðverja í og eftir stríð. Martha Hillers er vel gefin, vel menntuð og lífsreynd 33 ára kona. Slær stundum á létta strengi og tekst á við niðurlæginguna með skrifunum. Hún telur sig ekki verða ófríska því "ekki vex gras á fjölförnum stíg" og svo minnist hún þess á lokadegi bókarinnar þegar henni verður litið útum gluggann "fyrir framan húsið okkar stöðvaðist kerra sem var dregin af horuðum klár, Lutz Lehman, fjögurra ára gutti, kom aðsvífandi með móður sinni, nam staðar fyrir framan kerruna og spurði með draumkenndum hreim í röddinni: Mamma er hægt að borða hestinn?" Þær eiga það allar sameiginlegt þessar stríðsbækur að hungur yfirtekur allt annað. Mæli með henni og munið að mánudagur í vinnu er betri en helgi í einhverju.
2.Hvað heitir leikarinn sem lék eina geðþekkustu persónu níunda áratugarins???

þriðjudagur, júlí 11, 2006

  • egill sigurjonsson 170

  • Bjorn Hauksson 150

  • Jon Thor Eythorsson 138

  • Grimur Thordarson 137

  • Egill thor 111

  • olasfur Stefansson 109

  • Hossi Reykur 107

  • Larus Johannesson 99

  • Fridgeir Ragnar Haflidason 86

  • Hrannar Sigurdsson 86

  • Totti Ingimu 79

Gríðarleg leikgleði og litlar sviptingar einkenndu leikinn þetta árið. Hver og einn lagði tvær kippur af öli undir og mun Egill Sig svamla í bjór það sem eftir lifir sumri. Björn Arnar hélt lengi vel í vonina en mátti sín lítils gegn snilli Egils. Líklegast er títtnefndur Egill besta alhliða manneskjan í þessum hóp. Þekktur fyrir góðan gítarleik, fimi í íþróttum, hófsemi og hæfileika í mannlegum samskiptum.

fimmtudagur, júlí 06, 2006

Ítalía - Frakkland


Spurning við hvern við á Sæbrautinni tökum í viðtal næst. Kannski Grím eða jafnvel Tedda. Allavega óskir Reyksins rættust á HM á meðan martröð Einars Braga varð að veruleika.Vonandi er hann ekki of langt niðri en hann benti mér einmitt á þessa síðu þegar ég heyrði í honum áðan.

Fantasy leikurinn er samasem búinn. Egill Sig lang líklegastur enda Björn farinn að leita ráða hjá þeim fyrrnefnda. Menn töluðu um möguleika Johnny´s og Gríms en það er tómt mál að tala um. Hafa ekki nægilega mikið innsæi. Ég bjóst við miðjuþófs-Lalla sterkari en hefði betur sleppt því.

HM tekur enda um helgina og tel ég það hið besta mál. Laugardagsleikurinn verður opinn og skemmtilegur en þýðingarlaus og sunnudagsleikurinn verður einsog Reykurinn mundi segja "einsog góð skák".. Næturvörður vill sjá Zidane fara alla leið á þessu móti víst að valkostirnir eru ekki betri. Verst hvað Ítalirnir eru öflugir.

Liverpool ætla að reyna krækja í Joaquin, Dirk Kuyt og Pennant til viðbótar við Bellamy, Aurelio(Brazil), Paletta(Argentina) og Speedy Gonzales(Chile). Ansi hræddur um að Stórveldið Liverpool verði óstöðvandi í vetur og..........
.........eitt að lokum, Hvenar er þrítugsafmæli Gríms? eða var mér ekki boðið. Ætlaði Reykurinn að join-a. Hvað varð um ungæðingsháttin sem var alltaf í 76-módelunum.

Ps. Björn Arnar hyggur á greinarskrif um stýrivexti Seðlabankans og verður hún birt á þessum miðli... Hver er á myndinni? og í hvaða borg er hann?

þriðjudagur, júlí 04, 2006

Næturpistill

Það er ekki hægt að útiloka Portúgal. Nú þegar Deco kemur úthvíldur inn í þetta lið, finnur maður lykt af einhverju sem gæti komið á óvart. Ég spái því að Por - FRA sé úrslitaleikur HM, þ.e. annað hvort liðið fer alla leið.
Þýskaland fer létt með Ítali enda Ítalia með over-rated lið, líklega vegna þess að þeir voru góðir í sínum fyrsta leik. Ég missti af honum og sé því Ítalina í réttu ljósi sem er reyndar hálfgert myrkur. Þjóðverjar hafa leikið feikivel en eru farnir að treysta full mikið á áhorfendur en líklegast grípur Guð í taumana og fellir þá(þið vitið af hverju).....
Björn Arnar eða Bjarni Örn einsog ég kalla hann er jafn Agli Sigmars í fantasy leiknum. Líklegast koma ekki fleiri til greina þetta árið en auðvitað er alltaf gaman að fylgjast með fallbaráttunni. Þar er Lobsterinn í verstu málunum.
Björn notar Lahm und Klose en Egill þá Lahm und Sweinsteiger.
Björn notar Cannavaro og Totti en Egill þá Buffon og zambrotta.
Björn notar sókndjarfari menn en Egill er greinilega að treysta á 0-0. Auðvitað gætu þessir drengir gert breytingar en.............
Einar Bragi flaug til Berlínar í gær til að fá stemmninguna beint í æð og reyna svindla sér inná völlinn. Gangi honum vel og vonandi blása vindar með honum svona nýútskrifuðum.
Orkuboltinn Óli Stef hefur verið óstöðvandi síðan hann kom heim. Er í sessum rituðu orðum staddur á Langanesi. Í bígerð er fullkominn heimasíða sem eingöngu fylgir eftir ferðum Ólafs daginn út og inn. Síðuna mun Bjarni Örn gera.
Takk fyrir og áfram Þýskaland, á eftir. Sorry Reyksi.

laugardagur, júlí 01, 2006

Ísland

Maður verður nú að veita landinu sínu smá athygli eftir allt HM áhorfið. Hvað er maður að hampa Podolsky þegar maður hefur þennan fagra bæ aðeins "nokkrar" mínútur í burtu ! en hver er bærinn????

Undir liðnum hér að neðan hefur hafist deila æskuvina. Líklegast er úti um þeirra vinskap en það er nú bara einsog gengur og svo sem alltaf hægt að finna nýjan og góðan vin.
Nú er bara spurning hvort sumir nái að hreinsa nafn sitt sem sumir hafa óhreinkað eftir samtal við suma. Vonandi komumst við til botns í þessu máli í formi kommenta en næturvörður fer fram á vandað málfar og röksemi sem og einlægni. Einnig mun ég eyða kommentum sem falla mér ekki að geði.