
Hvern hefði grunað að Hössi yrði þrítugur og það á miðvikudegi? Þegar ég hugsa um Hörð dettur mér í hug orðið velgengni en svo reyndar þegar ég pæli betur í málinu að þá rámar mig í stutt tímabil þar sem drengurinn átti varla í sig né á. Ég ítreka að það var stutt tímabil og gaman að segja frá því að á sama tíma lifði hundurinn Sesar sældar lífi í einu af hreysum Hverfisgötunnar og það á kostnað húsbónda síns. Bara þetta ræfils dæmi lýsir þeim góðhjartaða en um leið umdeilda Herði sem ég kynntist veturinn ´91 eða Nevermind veturinn einsog hann kýs að kalla hann. Aldrei vissum við Lárus hvernig rándýrt tóbakið hvarf.

Þó Hörður sé góður við náungann og traustur sem næturvörður að þá hafa dýr alltaf átt hug hans allan. Ekki er til sá fugl sem hann þekkir ekki og það er tímaeyðsla að tala um ást hans á hundum. Talandi um ást, drengurinn er laglegur einsog við vitum kvenfólk laðast gjarnan að honum. Svo skemmir lipur tungan ekki fyrir honum og á ég þá við mælsku-snilli hans.

Ég held að flestir geti verið sammála um að Hössi sé fremstur meðal jafningja.Fáir eru jafn kokhraustir og fáir eru jafn ferskir útá við. Drengurinn fer sínar eigin leiðir og gefur jafnan skít í hvað öðrum finnst(á jákvæðan hátt). Hann hefur verið kenndur við allan andskotan, allt frá ummálseiningum til heilu flugfélaganna svo ekki sé minnst á reyks nafnbótina. Millinafn mannsins er lífsleikni, já eða hispursleysi.

Hvernig sem því líður að þá verður Hössi alltaf Hössi. Hvort sem hann er þrítugur, fátækur, þunnur eða þreyttur.

Nú um þessar mundir eru enn ein kaflaskiptin hjá Herði. Hann hyggst kynna sér úthverfi Reykjavíkur eftir sjö ár í miðbænum. Líklegt verður að teljast að stúlka eigi hlut að máli en það hef ég frá áreiðanlegum manni (LJ) að Hörður muni ekki búa einn í glæsilegu íbúð sem mér skylst að sé hvorki meira né minna en tvöhundruð fermetrar. Geri aðrir betur og greinilegt að þessi drengur stefnir hátt. Nú þegar þriðjungur er búinn af ævi hans að þá vil ég óska honum vel að lifa og til hamingju með afmælið.
Segðokkur svo hver það er sem er að flytja með þér í úthverfið!! Er lítill reykur á leiðinni í heiminn?
7 ummæli:
Já þad er ekki laust vid ad madur litur upp til manns eins og Hardar ....elska þig krúttið mitt
Til hamingju kallinn minn! Þú ert frábær!
Já kæru vinir og samferðarmenn, það er merkisdagur í dag og Ísland fagnar einsog glöggt sést ef litið er út um gluggann. Lífið gæti ekki verið betra á þessum tímamótum. Hvað get ég beðið um meira ?? Risalaunahækkun, Ítalía heimsmeistari, Glæsivilla í úthverfi og meira að segja kominn á séns. Allt eins og það gerist best. Ég vil þakka Næturverði kærlega fyrir hlý orð í minn garð og sömuleiðis öllum þeim sem sett hafa sig í samband við mig og kastað á mig kveðju.
Varðandi allan þann fjölda viðurnefna, sem ég hef borið um ævina, þá ætla ég að biðla til ykkar allra að fella niður það frægasta (Reykurinn). Nú er ég loksins orðinn fullorðinn og lært að það er ekki cool að reykja. Því staðfesti ég hér með að slíkur viðbjóður mun aldrei aftur seilast inn fyrir mínar varir.
I love you all....
Hörður Jóhannesson,
30 ára uppi og heilsufrík úr Grafarholtinu
Láttu þer ekki bregda ef ég gef þér hlaupabuxur i afmælisgjof
Til hamingju Pebbe minn!!
Hössi.....
Úthverfi, góðar tekjur og bíll. Þú veist hvað það þýðir!!!!
KAUPA HUND....
Já Egill minn, þú lest mig sem opna bók. Nú verður farið alla leið fyrst aðstæður eru svona góðar. Ætla að hella mér útí ræktun. (Á reyndar eftir að segja Óla frá því svo mér þætti vænt um að þið þögðuð þangað til þau eru komin í hús).Ég er búinn að panta mér tvær tíkur og einn rakka og munu þau koma með flugi beint frá heimalandi sínu Írlandi eftir 10 daga og helda þá beint í Hrísey. Svo mun ég kynna þau til leiks um miðjan næsta mánuð....Allar nánari upplýsingar fylgja þessum link.
http://www.dogbreedinfo.com/irishwolfhound.htm
Skrifa ummæli