
Skellti mér einn daginn að skoða golfvöll hér í næsta nágrenni. Endaði inná æfingu hjá mínum mönnum í
Hoba. Hef ekki enn farið á leik í íshokkí og deildin nýbúin. Áhugi minn efldist til muna enda ber ég náttlega nafn eins harðasta hokkí-leikmanns allra tíma ha.

Friðgeir félagi minn fór frammá mynd af póstkassa og lögregluþjóni. Ég hef ekki fundið sjálfstraust til að nálgast löggu en fann típískan póstkassa sem ung stúlka uppgötvaði á sínum tíma...

Hvíta húsið í Bratislava. Nýlega settist nýr forseti að eftir mikla baráttu við skelegga konu hér í borg. Unga fólkið er ekki sátt því sá nýi er snarkommunistaður...

Olíuskipti að hætti slóvakísks ground engineer. Ekki man ég við hvaða tækifæri ég tók þessa..

Robert(nágranni), ég(næturv.), Dan(samstarfsmaður&nágranni), Julio(félagi nágranna) og Nikki(fluffa). Scandinavískt garden partý að hætti okkar Dan. Héldumetta á forsetakosninganótt og skildum ekkert í dapri mætingu. Allt í áróðursplöggum í borginni en við óðum áfram á fáfræðinni. Mætingin batnaði þó eftir því sem leið á kvöldið og gleðin tók þau völd sem hún vildi taka.

Hittum einn tékkneskan á localnum sem var að eigin sögn búinn með áfengiskvótan en drakk kaffi einsog enginn væri morgunndagurinn.

Baba´s bikers hangout... Norður af Bratislava. Glöggir lesendur taka sjálfssagt eftir klassískum Renault 5.

Samstarfsmenn. Skeleggir, óhræddir og viðkunnanlegir. Allavega allajafna.
Næst verður fjallað um veturinn sem leið, samskipti kynjanna, Hörð, músík og jafnvel fjallað um Lýðvarpið.
6 ummæli:
Gaman að þesum færslum Egill, ég held að póstkassinn fái mitt atkvæði.
Kemuru eitthvað heim á næstunni.?
Póstkassinn er flottur, sérstaklega þetta krakkhóru lúkk.
Kveðjur frá Akureyri.
Teddi
Þetta er flott, vor í Bratislava er greinilega alveg málið
Take care
LJ
Þetta var Grímsli þarna í kaffinu er það ekki?
Lobbsterking
Kem líklegast heim á næstunni en hef ekki grænan grun um hvenar það ætti að vera. Skyndilega fjári mikið að gera.
Vor í Bratislava er jafnvel bara málið, allavega veðrið alveg feikifínt.
Jú jú þetta er Grímur. Lít bara á hann sem Tjékka og hef gert um aldir alda. Leikstjóralegur á þessari mynd.
væri fínt að fá mynd af rauða hverfinu...
Skrifa ummæli