Í upphafi Slovakiu ferðar minnar bjó ég á milli flugvallarins og höfuðstöðva Air Slovakiu. Hljómar vel...! en minnti mig í besta falli á sjómennsku... Maður grét sig í svefn þegar maður náði ekki að sofna úr leiðindum. Kom hingað með tvær bækur og sá frammá að hafa uppfyllingarefni fyrir næstu mánuði en ég stútaði þeim á tæpum fimm dögum eða eitthvað svoleiðis.
Magnað hvað flugvellir eru óspennandi staðir.
Slóvakar eru magnað fólk. Held ég, ha. Enganveginn búinn að átta mig á þeim. Eru allavega nice, skilja ekki ensku, fíla Skoda, einsog ég, dub-a allar myndir og stundum skín í kommann.
Ákvað að birta þrjár myndir af sama trénu.

Hótel Slov Air. Flugvöllurinn á vinstri hönd og höfuðstöðvar Air Slovakia til hægri. Alger draumur í dós að chilla þarna og synd að maður hafi ekki fæðst á þessum slóðum.

Herbergið sem var mér sem fangaklefi. Ég komst að því að það er nú ekki alslæmt að vera í fangelsi með hreina samvisku. Kom sér gríðarlega vel á stundum að vera með reynslu úr næturvörslu. Hef fyrir löngu lært þá list að eyða tíma.

Svona er semsagt flugvallasvæðið. Í næsta pistli verður farið downtown en þar bý ég nú. Mun jafnvel minnast ögn á samgöngumál en einnig fjalla um Búdapest.
7 ummæli:
Vá, spurning um að skrifa bók. En skemmtileg pæling með tréið, greinilega örvandi umhverfi þetta.
Matti
Ja þetta tré heillaði mig. Minnti mig á atriði úr myndinn Shawshank redemption.. Heimsæki það pottþétt í sumar og tek á því púlsinn.
spurning hvort þu sagir ekki tred nidur .. sprautir á það helling af lakki ...þá geturdu farið með það þangað sem þu vilt...
En greinilegt er að Slóvakía er mjög heillandi land eg kem i April þad er næsta vist...
Gott ef eg hef ekki sed einmitt þessar myndir í bæklingnum
"come visit us Slovakians"
Kvedja
Hroníinn
Egill, komdu til Hollands sem fyrst Góa dauðsaknar þín, þið náuð svo vel saman um jólin.
Kristín
Draumaplace greinilega. En segðu mér eitt. ertu þá fluttur annað núna? Hvert þá ?
Husky
Djöfulsins viðbjóður er þetta´, hrannar þú mátt eiga þessa ég fer því miður ekki með þér í þessa vitleysu. Legg til að við hittumst á miðri leið, jafnvel í mósedalnum fagra. Egill farðu vel með þig drengur.
kv. Diddi
Já þetta er aldeilis sjarmerandi þarna hjá þér. Umhverfið þarna minnir mig á danskt svínabú. Ekki amalegt.
En það veit ég að miðbærinn í Bratislava er í fyrsta miðaldarklassa.
Hafðu það gott og vertu velkomin á Kaffi Kjarrmóa þegar þú kemur heim.
Lárus
Skrifa ummæli