þriðjudagur, janúar 13, 2009

Samgöngumál....

Áhugi minn á samgöngum hefur alltaf verið gríðarlegur. Á ferð minni um Bæjaraland í vikunni felldi ég tár. Lestarstöðin í Hamborg..
Magnað að, því sunnar sem maður þvælist, því kaldara verður. Þakka Guði fyrir að ég fór ekki til Afríku eða eitthvað svoleiðis. Get ekki ímyndað mér gaddinn þar..!
Breyttir tímar: nú girnist maður veðráttuna á Íslandi en allt hitt er farið til fjandans. En að samgöngum:
Flaug til Köben, tók lest í myrkri að hafi. Lestin fór um borð í ferju og svo á þurrt í Þýskalandi. Í Hamborg skipti ég um lest yfir í næturlest til Munchen sem var feikifín. Þar skipti ég svo aftur og hélt til Vínar via Salzbourg. Þarna var kominn dagur og litli næturvörðurinn var gríðarspenntur með myndavél útí öllum gluggum valhoppandi um gangana. Rankaði meira að segja við mér blístrandi. Bæjaraland heillaði mig gjörsamlega sem og Austurríki.Þessi hundur býr í Vín..
Ekki hafði Leifur heitinn Muller það jafn gott í þessu landi. Frá Vín lenti ég svo í ógöngum enda ógurlegur kuldi úti sem neyddi mig til að taka ákvarðanir útí bláin.
Alltaf endaretta eins. Sit tiltölulega ferskur á skemmtilega hráu hótelherbergi mínu í Bratislava.Niðurstaða: án samganga gerist fátt og neyðist ég því til að kaupa bíl. Á lestarferð minni sá ég girnilega staði sem…..

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Helvítt er þetta girnilegt fiskabúr þarna fyrir aftan þig.
Stoppaðiru eitthvað í Salzburg?

LJ

Nafnlaus sagði...

Þetta er nú svei mér spennandi hjá þér vinur. Já það er nú hrollur í manni á þessum slóðum á þessum árstíma og ekki bætir nú úr skák gjörningur Rússanna hjá Gasprom.
Brrrr..

Jónína Ben

Nafnlaus sagði...

Þetta lítur ansi hreint vel út..
Hitti Gumma Luther í ræktinni og hann tok vel i Bratislava ferð í Maí ja eða May...
eg Diddi og Gummi mætum

Hroni

Nafnlaus sagði...

Reyndar er hrannar að ljúga því við hittum hann gumma ekkert í ræktinni heldur rákumst við á hann í röðinni á KFC... því skyldi Hrannar skrökva um þetta ... einkennilegt segi ég nú bara ...

kv. Diddi

Næturvörður sagði...

Já ég frétti það. Gummi skildann varla því hann var kjammsandi á Lion bar í röðinni. Sé ekki til hvers menn eru að ljúga svona, look-ið lýgur ekki