
Magnað að, því sunnar sem maður þvælist, því kaldara verður. Þakka Guði fyrir að ég fór ekki til Afríku eða eitthvað svoleiðis. Get ekki ímyndað mér gaddinn þar..!
Breyttir tímar: nú girnist maður veðráttuna á Íslandi en allt hitt er farið til fjandans.

Flaug til Köben, tók lest í myrkri að hafi. Lestin fór um borð í ferju og svo á þurrt í Þýskalandi. Í Hamborg skipti ég um lest yfir í næturlest til Munchen sem var feikifín. Þar skipti ég svo aftur og hélt til Vínar via Salzbourg. Þarna var kominn dagur og litli næturvörðurinn var gríðarspenntur með myndavél útí öllum gluggum valhoppandi um gangana. Rankaði meira að segja við mér blístrandi. Bæjaraland heillaði mig gjörsamlega sem og Austurríki.

Ekki hafði Leifur heitinn Muller það jafn gott í þessu landi. Frá Vín lenti ég svo í ógöngum enda ógurlegur kuldi úti sem neyddi mig til að taka ákvarðanir útí bláin.

Alltaf endaretta eins. Sit tiltölulega ferskur á skemmtilega hráu hótelherbergi mínu í Bratislava.

5 ummæli:
Helvítt er þetta girnilegt fiskabúr þarna fyrir aftan þig.
Stoppaðiru eitthvað í Salzburg?
LJ
Þetta er nú svei mér spennandi hjá þér vinur. Já það er nú hrollur í manni á þessum slóðum á þessum árstíma og ekki bætir nú úr skák gjörningur Rússanna hjá Gasprom.
Brrrr..
Jónína Ben
Þetta lítur ansi hreint vel út..
Hitti Gumma Luther í ræktinni og hann tok vel i Bratislava ferð í Maí ja eða May...
eg Diddi og Gummi mætum
Hroni
Reyndar er hrannar að ljúga því við hittum hann gumma ekkert í ræktinni heldur rákumst við á hann í röðinni á KFC... því skyldi Hrannar skrökva um þetta ... einkennilegt segi ég nú bara ...
kv. Diddi
Já ég frétti það. Gummi skildann varla því hann var kjammsandi á Lion bar í röðinni. Sé ekki til hvers menn eru að ljúga svona, look-ið lýgur ekki
Skrifa ummæli