þriðjudagur, apríl 29, 2008

Óli þrjúþúsund

Stjarna Harðar skein glatt en ey lengur. Ólafur er nafn sjénís sem sigrast hefur á fleiri hindrunum á þyrlu sinni en nokkur annar ofurhugi.
Einsog sést skín einbeitingin úr drengnum og félagi Lárus passar sig greinilega að trufla ekki.

"Ég hóf daginn við Thinkpad-inn minn, reiður en einbeittur. Metið féll fyrir hádegi" voru orð Ólafs.
Þrjúþúsund stiga múrinn er fallinn og hætt við því að keppnisskap Harðar hlaupi með hann í gönur. Sjálfur ætla ég að slaka á, ná áttum og hringja mig inn veikan í vinnuna á morgun. Verkefni morgundagsins er einfalt. Sigra ljóskurnar.
Við á höfuðstöðvunum óskum Ólafi til hamingju en biðjum hann að gorta ekki um of því gort er mannsins gys.

mánudagur, apríl 28, 2008

Husky hefur talað

Metið er fallið og það í hendur Harðar. Einbeiting og hugarró Harðar virðist nýtast vel í Chopper. Það er ekki á færi allra að leggja Óla Stef af velli í arcade leik. Þó fékk ég fregnir af því að Hörður hefði stundað stífar æfingar og grunaði mig strax hvað væri á seyði þegar surgaði í símtóli mínu og nafn Hödda Express birtist á skjánum.
Við á höfuðstöðvunum óskum Herði til hamingju en minnum hann einnig á það að það getur verið kalt á toppnum. Við Óli munum án efa reyna velta kauða af stalli.

"þegar ég set mér markmið er ekki aftur snúið" voru orð Harðar eftir að metið var fallið.

föstudagur, apríl 25, 2008

Þróun Ólafs sem chopper leikmanns

Metið er fallið. Óli, þessi mikli keppnismaður skaut mig í kaf og bætti árangurinn um tvö massív stig. Ég hef allavega eitthvað að gera um helgina.
Eitthvað var hann nú lengi í gang.
Stund milli stríða.
Hér gefur að líta hið gríðargóða skor sem kom Óla á toppinn.

þriðjudagur, apríl 22, 2008

Billy Mitchell

Chopper er tölvuleikur sem krefst gríðarlegs áræðis og seiglu. Heyrst hefur að gullsmiður hér í borg komi litlu sem engu í verk vegna metnaðs fyrir leiknum. Metið hefur verið sett og sannanir hér með birtar einsog lög gera ráð fyrir. Metið á sjálfur næturvörðurinn enda væri nú varla verið að blogga um málið ef svo væri ekki. Hann er þó maður í það að bjóða mönnum uppí dans. Náist að slá metið verður að sjálfssögðu að mynda verknaðinn og koma honum í réttar hendur.
Þess má geta að hærra skor hefur náðst en án sannana.

Leikinn stórskemmtilega er hægt að nálgast hér..

fimmtudagur, apríl 17, 2008

Óður til Tøde buggnings

Reyndi að finna mynda af manninum ólaðan við tjaldsúlu en fann einungis þetta:

Megi drengurinn eiga happ í hendi hvort heldur í kvenamálum eða í hinu...!
Nafn hans hefur verið ritað á internetið og geri aðrir betur...

fimmtudagur, apríl 03, 2008

Talking Heads - "Sugar On My Tongue"


Ég held að flestir ef ekki allir geti verið sammála um að þetta verði sumarið hjá T.H.