föstudagur, nóvember 02, 2007

There´s only one R.A.N.G.E.R.

Maður þarf alltaf að vera fylgjast með einhverju. Margir fylgjast með ensku deildinni, Óli pælir mikið í heimsmarkaðsverði á gulli, Jói Gé liggur yfir gangverði á Audi ´00 turbo, Lalli pælir í krónunni, Einar Bragi skoðar innlásvexti, ég skoða stundum veðurspána, Egill&Grímur vita allt um þorskstofninn, Björn A. pælir í öllu, Husky telur kríur útá Gróttu, Diddi er ekkert að stressa sig áessu og Hrannar fylgist með einhverju og Næturvörður mælir með að menn fylgist með honum.

Þannig er mál með vexti að strákurinn keypti sér haglabyssu. Lét gamlan draum frá Oklahoma rætast.
Hann leggur gríðarlegan metnað í þetta nýja sport einsog sést á myndinni sem ég plataði útúr samstarfsmanni drengsins. Í þessum fyrsta túr veiddist ekkert en nokkrar yndislegar rjúpur áttu víst að liggja í valnum en flögruðu í burt frelsinu fegnar.
"ég skaut samt þrisvar úr nýju byssunni minni en allt kom fyrir ekkert"
og
"þetta er erfiðara en þú heldur"
sagði Hrannar...
Byssuna fékk Hrannar á tugi þúsunda en betur má ef duga skal. Samkvæmt heimildarmanni mínum er stefnt á "veiðiferð" um helgina og verður ansi fróðlegt að sjá hvernig það fer. Af þessu mun ég ekki missa enda kýs ég að fylgjast með Hrannari.

Talandi um Hrannar... Það má læra margt af drengnum. Þó ekki hafi risið stytta af honum við Spartan School of Aeronautics að þá stendur hann vinum sínum framar. Menn ráku upp stór augu þegar hann rendi Ranger-num í hlað á Makkaræfingu um árð. Hrannar var ekki saddur. Nú skilst mér að ægifagur Nissan Navara sé á leiðinni og geri aðrir betur....!!! Meðan við hinir erum að hampa Rangernum læðist Hrannar í skjóli nætur og slær enn og aftur í gegn.
Þess vegna er ég í skýjunum yfir því að sjéní hafi ákveðið að skella sér í grein sem virðist enganvegin liggja fyrir honum. Ein ferð, þrjú skot = ekkert fórnarlamb. Með þessu ætla ég að fylgjast..

8 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ja hérna hér. Á dauða mínum átti ég nú von en nýrri færslu frá uppáhaldsvini mínum sem ég hef aldrei hitt átti ég alls ekki von á. Það er vonandi að Hrannar kannist við máltækið Æfingin skapar meistarann. Annars get ég komið honum í samband við norðlenska ofurdrápara. Það eru kappar sem rækta sína eigin kornakra bara til þess að gabba þangað grunlausar gæsir.
Er annars ekki allt gott að frétta frá Næturverðinum?

Nafnlaus sagði...

Jú jú Næturvörðurinn er fersskur. Missti bara blogg-sjálfstraustið um tíma...
Sjáum svo hvað setur með vetrinum.

Annars var ég að tala við Hrannar og eftir níu tíma veiðifer veiddist:

EKKERT..

Já ætli við þurfum ekki að kynna hann fyrir norðandrápurum.

Nafnlaus sagði...

Ju ju eg kannast vid máltækið og þessvegna hef eg akveðið að nota þessa daga vikunnar sem rjúpan er jú friðuð þ.e.a.s mán,þri,mið .. og æfa af fullum krafti og hef því ákveðið að fjárfesta í leirdúfukastara..
Æfingarnar leyfi ég næturverði að fylgjast með ..og jafnvel taka þátt í .... En norðandrápana myndi eg gjarnan vilja kynnast þeir hljóma ansi vel...

Nafnlaus sagði...

Hrannar við erum að reyna finna stað með bústað til að fara að skjóta á um næstu helgi,ég og Lony vonandi Jón Heiðar og Alli,Lony fékk 9 stykki um helgina svo þú gætir lært af honum.Ég hringdi í Matta í gærkvöldi því allir vita að Trostansfjörðurinn er sneysafullur af rjðupum sem eru svo chillaðar að þær breyta ekki um lit á veturna.en auðvitað eru fuglarnir vinir hans Matta einskonar gæludýr og ég hef sjálfur séð þær valhoppa á á pallinum við bústaðinn.Ég ætla að reyna að tala við Björn eða pabba hans um hóla þar er ´fugl.Bara prufa allt þetta gæti orðið skemmtilegur túr. Do it.

Nafnlaus sagði...

Jess nu erum vid ad tala saman ..
Segdu Matta ad vid munum vitanlega bara fara i fuglaskoðun ... hann þarf ekki ad vita ad her er vitanlega verid ad tala um grandskodun a daudum fuglum hehe..
Farinn ad æfa mig i leirdufu skotfimi nuna sjaumst sidar

Nafnlaus sagði...

Í gær var gott að vera Liverpool maður.

Nafnlaus sagði...

já það var kominn tími til að leikgleðin réði ríkjum. Vonandi að framhaldið verði eitthvað í áttina.....

Nafnlaus sagði...

Menn þurfa að passa sig hér óli.
Það má ekki skjóta 9 rjúpur.. ekki viltu að maðurinn missi af jólunum..
En ef þið ætlið að skella ykkur um helgina þá er ég með hólkinn hlaðinn inni skáp og væri til í koma með og kenna hrannari apeins..