fimmtudagur, nóvember 30, 2006

Take (it easy)

Spurt er um borg?
Þegar ég var snáði tók ég þá ákvörðun að þegar ég og mínir vinir fengjum bílpróf að þá mundi ég teika dag og nótt. Þyrfti ekki að læðast að ókunnum bílum heldur gæti bara tekið í t.d. BMW-inn hans Didda og teikað svo ekki sé minnst um pick-up Hrannars. Þyrfti ekki endilega að sitja við hlið Didda þegar við förum í Bláa lónið eða í bíó. Hefði meira gaman að því að teika. Í dag teika krakkar ekki. Í snjónum um daginn fór ég í bíltúr gagngert til að fá ferska teikara á stuðarann minn. Ekki bólaði á ungum teikara enda hef ég ekki séð slíka manneskju síðan ????????'Dreymdi einnig alltaf um stöðu bílstjóra í þessum gjörningi.
Einnig ætlaði ég að búa til súkkulaðikrem á kökur til að kjamsa á þegar ég yrði minn eigin herra en hef ekki gert. Bæði eru þetta draumar sem ég gæti hæglega uppfyllt þann dag í dag en sit frekar auðum höndum einsog fífl. Ég kaupi ekki einu sinni snúð þó ég eigi pening...!!
Ég hugðist sem krakki halda mig frá víni.. Í dag kann ég vel við vín. Ég skyldi ekki kaffidrykkju en í dag er kaffi mér nánast nauðsyn. Það hlakkaði í mér að byrja að vinna/skóla en í dag vil ég helst hvíla mig. Það að hvíla sig mátti ég ekki heyra minnst á sem krakki. Hef einungis látið einn af mínum fjölmörgu æskudraumum rætast: að vaka frameftir.

þriðjudagur, nóvember 28, 2006

Mesta viðrinið:

Didier Drogba 9

El hadji Diof 6

Gary Neville 6

Arjen Robben 2

Michael Ballack 2





Það er erfitt að setja út á niðurstöðu könnunarinnar. Ég hef nú ekki lagt það í vana minn að setja útá fólk en lesendur hafa talað.

fimmtudagur, nóvember 23, 2006

Siemens

Þegar kólnar í veðri hugsar maður gjarnan til útlanda en ekki endilega þess lands sem myndin er af. Hvert er landið?
  • Ég vil benda áhugasömum á að Ford Hrannars er til sölu.
  • Sá er kommentaði undir merkjum næturvarðar í gær á líklega ekki sjö dagana sæla.
  • Merkileg umræða...!

miðvikudagur, nóvember 22, 2006

Bréf til Láru

Eða réttara sagt bréf frá Lárusi.
Næturverði barst kvörtun/fyrirspurn frá Lárusi þar sem kauði hreinlega fór fram á að næturvörður hætti með svokallað "random mode" á könnununum hér til hliðar á síðunni. Ég hyggst koma til móts við minn tryggasta kúnna en hann vill að ég birti niðurstöður jafn óðum í pistlaformi og mun ég reyna að standa mig í því stykkinu einnig.
Síðast var spurt:
Hver er bestur í heiminum í knattspyrnu?
Svona fór sú kosningin:
Kaká 5
Samuel Eto 4
Annar leikm. 3
Ronaldinho 2
Klose,Lampard,Gerrard,Terry,Cannavaro og Henry komust ekki á blað. Ekki veit ég hvern menn hafa í huga þegar þeir völdu annan leikmann...???
Þátttakan verður að teljast ömurleg og niðurstaðan bendir til að þrítugur Almeru-eigandi hafi kosið fimm sinnum en það þarf ekki að taka það fram að einungis má velja einu sinni og mun ég biðja JR að fylgjast með sumum þegar nær dregur nýju ári. Takið nú þátt í nýrri könnun en munið að þitt val er eitt val.

En nóg um rugl. Rakst á öflugar myndir á vefnum. Gefiðessu gaum.
Einnig spyr ég um dýrategund:

Enn af Ástu

Framsækni Ástu heldur áfram. Þegar ég kynnti son hennar, hann Spaða til leiks grunaði sjálfsagt engum að hún hefði fætt þrjá heilbrigða drengi hvern öðrum glæsilegri.Slegist var um Spaða eftir að ég kynnti hann falann á veraldarvefnum og er það mér heiður að tilkynna að þeir Lundi og Minnkur eru enn án umsjónarmanns. Ásta vill losna við þá til að geta einbeytt sér að eigin frama enda búin að koma þeim vel á legg og gott betur.

laugardagur, nóvember 18, 2006

Yfirburðir

Loks hefur náðst mynd af Friðgeiri.

sunnudagur, nóvember 12, 2006

Listaspurning

AF hverju er verkið?

föstudagur, nóvember 10, 2006

Arsenal-Nissan-Liverpool-Almera

Þessi mynd var tekinn árið 1994 í viðureign Ars og Liv... Næturvörður skrifar helst ekki um knattspyrnu enda lítið fyrir eitthvert fjárans tuðruspark en spyr þó til að koma á móts við menn einsog Tedda stóra og Lárus:
Hvernig fer leikurinn? Hverjir skora? Eru United að toppa á röngum tíma? Eru Chelsea í lægð? Brjálast Wenger? Er Jón Þór enn Newcastle-maður? Hvar er Grímur? Verða Reading ofarlega?
En að alvarlegri málum:
Mér skilst að Höddi@skyr.is hafi verslað sér glæsilega Almeru í gær. Þar með get ég ekki séð hvað eigi að stöðva þennan unga mann. Á Ford Orion ´93 var hann alltaf einsog skugginn af sjálfum sér en samt sem áður hrókur alls fagnaðar hvert sem hann fór. Gaman að segja frá því að líklega mun yngri bróðir Hödda ganga að eiga Orion-inn. Vonandi fær maður að sitja í þessum eðalvagni áður en árið er úti. Myndin að ofan er þó ekki af bíl Hödda. Hans er silfurgrár og að því er mér skilst, töluvert fallegri. Með álfelgum, rafmagni í rúðum og öllu sem manni getur dottið í hug en eitt vantar þó þegar hugað er að eiganda bílsins..!! Næturvörður hefur eytt töluverðri orku í að sannfæra Hödda um að fá sér einkanúmer. Sumir eiga að hafa einkanúmer og tel ég hödda einsog hannaðan fyrir slíkt. Ég hef viljað greiða fyrir númerið fyrir Hörð en tel mig ekki standa nógu vel að vígi peningalega séð. Því vil ég skora á menn að setja í púkkið. Hver getur ekki hent 1000 - 1500 krónum í ungan mann á uppleið. Það væri peningum vel eytt. Mér hafði dottið númerið ASSMAN í hug enda lítill skyr áhugamaður en gaman væri að fá uppástungur hjá ykkur.

fimmtudagur, nóvember 09, 2006

Ein erfið

Spurt er um fjörð. Hvað heitir hann?

þriðjudagur, nóvember 07, 2006

spurning dagsins

Spurt er um bæjarfélag..?

fótbolti

1 FC Maskínan 53
2 One Love 51

3 JOHNNY 45
4 FC STOCKTON 44
5 Love-You-Longtime 40
6 banda-lið 38
7 Mazda FC 31
8 Lucky13 30
9 FF Hampstead Heath Harriers 26
10 Næturverðirnir 23


Þetta er ekki gott. Þegar toppar sumarsins eru geymdir á botninum er eitthvað að. Rakst á feikifínan vef um knattspyrnu.
En það gleður mitt auma hjarta að nafni mínu er enn haldið á lofti í formi maskínu. Eitt er víst: Ég mun vinna Lucky13 eða hvað hann heitir, hvað sem það kostar.Spurt er um eyju, fagra eyju. uppfært Sé það reyndar að nafn eyjaklasans sést sé myndin stækkuð og þar sem ykkur er ekki treystandi að þá kemur hér ný eyjuspurning:
Spurt er um eyju, frekar fagra. Hvað heitir hún?
Að lokum mæli ég með bloggi Ómars, en þessi ungi maður skrifar af kostgæfni um þau mál sem skipta hann máli og enn og aftur mæli ég með bloggi Ljénsherrans. Eigið góðar stundir og munið að enska deildin er ekki búin fyrr en hún er búin. United eiga eftir að dala svo um munar og ?

mánudagur, nóvember 06, 2006

laugardagur, nóvember 04, 2006

Eartha Kitt


Já kom mér á óvart að menn skildu ekki koma með nafn Earthu um hæl. Hún sem lék stóra rullu í Fóstbræðrum svo dæmi sé tekið og þar veit ég að Siggi litli féll fyrir henni.
Sæbrautin hefur talað einsog Tommi Kung fu hefði sagt, góða helgi en passið ykkur á útlendingunum.
Fróðleikur dagsins:
Lárus tíndi ber um morguninn en týndi svo lífi um kvöldið.

föstudagur, nóvember 03, 2006

Spaði

Það er gaman frá því að segja að sjéníum hefur fjölgað. Hin yndislega tík Ásta sem löngum hefur heillað landann með elju og djörfung sat ekki aðgerðarlaus í sumar. Hún féll fyrir hátt settum rakka við rætur Esjunnar og ól honum nokkra hvolpa. Einn þeirra ber af þegar að lögun og skapgerð kemur en það er hann Spaði. Sögur herma að Spaði hafi byrjað að gelta í móðurkviði og hreinlega krafsað sig út. Hann valdi að sjálfssögðu gen móður sinnar þegar að litarhætti og útliti kom en þess má geta að faðir hans er dökkur yfirlitum og ber ekki nafn. Reyndar virðist Spaði litli hafa fengið eyru föður síns.Mynd af Spaða aðeins fjórum dögum eftir fæðingu (glöggir lesendur taka eflaust eftir kvenlegri loppu á hægri hönd)

Þrátt fyrir eðalgen Spaða að þá er hann svo gott sem heimilislaus en faðir hans vill víst ekkert með hann gera og Ásta má ekkert vera að þessu.

Konan á mynd gærdagsins er feikifræg og þykir næturverðinum ömurlegt að Diddi sem nánast allt veit um hana hafi ekki séð sér fært að kommenta. Fóstbræður hafa dálæti á henni eða öfugt...!!!!!!!!!

fimmtudagur, nóvember 02, 2006

Marco Polo


Spurt er um söngkonu????? Diddi vinur minn er þaulreyndur í henni en
þó er ég ekki viss um að hann átti sig sjálfur á því. Sjáum hvað
setur!!, ekki það, hann kommentar aldrei. En hann gaf mér bíl, það
kunni ég vel að meta. Nýjasta vandamálið á þeirri afurð er miðstöðin.
Hún hefur ekki við köldum blæstrinum sem kemur inn undan framrúðinni
mín meginn. Þó getur maður komist hjá mestu loftkælingunni með því að
keyra varlega. Þaðan kemur veghljóðið líka sem græjurnar hafa varla
við. FM-loftnetið er ónýtt eða sambandsleysi á leiðinni. Hann er
bremsulaus, missti pressuna öðru meginn en bremsar mjög vel hinu megin
sem reynist ekki nóg til að stöðva bíl. Fyrir vikið keyri ég varlega.
Svo má ekki á miklu ganga svo CD diskurinn hiksti og taki pásu þannig
að ég keyri líka varlega útaf cd-spilaranum. Maggi hvíti ætlar að gera
við bremsurnar fyrir tíu þúsundkall en ég mun halda áfram að keyra
varlega. Nú er aðal höfuðverkur minn hvort ég eigi að koma honum í
gegnum skoðun í feb og fara alla leið í sambandinu maður og bíll. Ég
hef löngum tengst bílum mínum, elskaði til dæmis Daihatsu Charade´88
bifreið mína sem entist mér í rúm fjögur ár. Það samband endaði þannig
að frambrettið var orðið það slæmt að það þeyttist pollavatn á
bílstjórann sem er þreytandi til lengdar og fjármál mí leyfðu ekki
endalaus sparslkauð. Var reyndar að spá í að nota hann á fallegum
tillidögum einsog tíðkast gjarnan meðal bíleigenda. Ég hef ekki tamið
mér að skipta um bíl einsog nærbuxur einsog bílskúrsbræðurnir og
Hössi. Allavega spurningaleikur næturvarðar er kominn á fullt og gaman
að segja frá því að Hrannar leiðir með eitt stig. Því má við bæta að
Hrannar er löngu kominn með leið á Rangernum sínum. Skil ekki hvað
glæsilegur Ford er að gera með svona gaurum sem kunna ekki gott að
meta.