fimmtudagur, september 14, 2006

Næturvarsla

Starf næturvarða er erfitt, það vita flestir. Ég taldi mig lengi vera með betri næturvörðum í borginni þrátt fyrir ungan aldur og litla menntun á sviði vörslu.
Hingað gékk inn blaðburðarkona rétt í þessu. Hún talar mjög mikið. Ég fíla hana þrátt fyrir að enginn þoli hana. Kannski að fólk með smá svefngalsa kunni betur við blaðrandi fimmtugar kjellur heldur en hinn upptekni Íslendingur. Hún tjáði mér að gamli næturvörðurinn sem var/er upplýsingafræðingur að mennt hafi lent í mörgum klípunum í starfi sínu. Mínu starfi. Eitt sinn var börnum tveimur rænt á vaktinni hans. Móðursjúk kona kom niður alls laus en fyrrv. maður hennar (útlendingur) hafði tekið börnin og flúið líf hennar.... Næturvörðurinn fór í málið og var maðurinn stöðvaður í Leifsstöð.
Einnig hafði gamli næturvörðurinn lent í því að gera að sárum ungrar konu sem hafði verið laminn af ástkærum eiginmanni sínum(Frakkar). Svo hafði hann þurft að þrífa ælu úr lyftunni og stöðvað hótelgest með ofurölva stúlku á leið uppí herbergið sitt.
Þessi maður hafði náttúrulega betri menntun en ég og gríðarlega reynslu í starfi. Sjálfur lendi ég aldrei í neinu og er svipað upptekinn og Jón Gnarr var í feikifínum næturvarðar-skets sem þeir Fóstbræður gerðu um árið, nema ég hef ekki kött til að rabba við. Reyndar kom kona inná kontor til mín um daginn og vildi hringja á leigubíl. Klukkan var 0500 á föstudegi. Hún tjáði mér að sér hefði verið nauðgað en var annars hin hressasta þannig að ég var nú ekkert að trúa henni. Svo fór hún bara sína leið og ég hugsaði ekki meira útí það. Þar komst ég þó að því að ég hef lítinn áhuga á veseni og viðbjóði. Vil frekar vera einn á vappi með sjálfum mér.
ps. Er reyndar byrjaður að laða að mér kött í nágrenninu sem heldur ekki vatni yfir sjávarafgöngum hótelsins. Hver veit nema ég eignist þarmeð lítinn, loðinn, aðkeyptan vin. Er að leita að nafni á nýja vin minn. Er með nokkur í deiglunni en hallast einna helst að nafninu Diddi... Já eða Jón Þór, þeir eru svo karlmannlegir einsog kötturinn sem eflist með hverri máltíðinni.

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Við eigum nú nokkuð sameiginlegt Næturvörður kær. Ég nefnilega vann sem næturvörður á sambýli einu heilan vetur meðfram skóla. Og þar lenti maður meðal annars í því að þurfa þrífa upp hina ýmsu líkamsúrganga. Oftast nær var það þó rólyndisvinna. Þannig að ég skil þig.

Nafnlaus sagði...

frábært blog Egill .. næturvördurinn hefur nád sönsum á nyjan leik ..............mjá takk

Nafnlaus sagði...

Já mér fannst ég skynja næturgenið í þér Teddi minn. Þá skiljum við ansi margt sem hinir geta aðeins gert sér í hugarlund, svo margslungið er starf næturvarðar.
En hvað segiði??? Diddi eða Jón Þór..
Kisinn er svartur með hvítan streng eftir öllu skottinu og glæsilegur að öllu leiti nema þá helst að það sést fullmikið í rassinn á honum því honum líður best með skottið liggjandi ofaná bakinu, malandi görn en ég ætla ekki að láta það trufla nafngiftina.

Nafnlaus sagði...

Ja Egill god grein,en eg hef einmitt lika att anal-kott,thad gleymir enginn Powder sem var strauadur nidur a Hringbrautinn eftir 6 daga utivistarleyfi,vid gerdum ymsar tilraunir med ad lata hann leika ser ekki Hringbrautarmeginn vid husid (medal annars smidudum planka sem nadi ur glugganum og i hatt tre lengst i burtu).
En annars er eg hrifnastur af nafninu Sandur,serstaklega ef hann er svartur.

Nafnlaus sagði...

Það er nú ekkert nafn sem hæfir köttum eins vel og valgeir.... þeir hverfa heilu vikurnar án þess að láta vita af sér... og að sjálfsögðu er þeir ´Vífilsynir ef þeir þá hverfa alveg...

Nafnlaus sagði...

Mínir kettir heita Jón og Gunna.
Stundum þarf ekki að sækja vatnið yfir lækinn.