þriðjudagur, júlí 04, 2006

Næturpistill

Það er ekki hægt að útiloka Portúgal. Nú þegar Deco kemur úthvíldur inn í þetta lið, finnur maður lykt af einhverju sem gæti komið á óvart. Ég spái því að Por - FRA sé úrslitaleikur HM, þ.e. annað hvort liðið fer alla leið.
Þýskaland fer létt með Ítali enda Ítalia með over-rated lið, líklega vegna þess að þeir voru góðir í sínum fyrsta leik. Ég missti af honum og sé því Ítalina í réttu ljósi sem er reyndar hálfgert myrkur. Þjóðverjar hafa leikið feikivel en eru farnir að treysta full mikið á áhorfendur en líklegast grípur Guð í taumana og fellir þá(þið vitið af hverju).....
Björn Arnar eða Bjarni Örn einsog ég kalla hann er jafn Agli Sigmars í fantasy leiknum. Líklegast koma ekki fleiri til greina þetta árið en auðvitað er alltaf gaman að fylgjast með fallbaráttunni. Þar er Lobsterinn í verstu málunum.
Björn notar Lahm und Klose en Egill þá Lahm und Sweinsteiger.
Björn notar Cannavaro og Totti en Egill þá Buffon og zambrotta.
Björn notar sókndjarfari menn en Egill er greinilega að treysta á 0-0. Auðvitað gætu þessir drengir gert breytingar en.............
Einar Bragi flaug til Berlínar í gær til að fá stemmninguna beint í æð og reyna svindla sér inná völlinn. Gangi honum vel og vonandi blása vindar með honum svona nýútskrifuðum.
Orkuboltinn Óli Stef hefur verið óstöðvandi síðan hann kom heim. Er í sessum rituðu orðum staddur á Langanesi. Í bígerð er fullkominn heimasíða sem eingöngu fylgir eftir ferðum Ólafs daginn út og inn. Síðuna mun Bjarni Örn gera.
Takk fyrir og áfram Þýskaland, á eftir. Sorry Reyksi.

15 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Just droppin by to say LUCA TONIIIIIII

Nafnlaus sagði...

Djöfull er ég spenntur.
Aðallega eftir að sjá hvernig rætist úr á milli Egils og Björns í Fantasy.
Að duga eða drepast.
Hver vinnur?

Nafnlaus sagði...

mér er bumbult......
Sé ekki betur en Egill hafi tekið forystu................

Nafnlaus sagði...

Larus hví særir það þig. Ég sem hélt að hugur þinn væri hjá mér en ekki Birni sem hefur ósjaldan verið með leiðindi í þinn garð og það ekki síst í þá gömlu góðu þegar hann og hössi voru aðal villingarnir á Arnarnesinu. Annars hefði nú sláarskot Zambrotta mátt fara inn. Þá fyrst hefði ég fagnað þrátt fyrir að markið hafi komið röngu megin.

Hössi vann Einar Braga en á morgun er úrslitaleikurinn þó Ítalir hafi sannað það í kvöld að þeir eru ansi hreint sterkir.

Björn: "ég er búinn að missa áhugann á þessu móti. Búinn að fá nóg af þessum leikaraskap"
Á morgun ætla ég að reyna fíla leikaraskap Portúgalanna. Takk fyrir mig.

Nafnlaus sagði...

Nei Egill minn.
Mér var eigi bumbult vegna velgegni þinnar, heldur voru það Ítalirnir sem hrærðu svona upp í maganum mínum.
Annars finnst mér Ítalir eiga hrós skilið og mér finnst gaman að horfa á þá spila.
Þeir eru góðir,
eiga þetta skilið og
eru búnir að mannast upp og eru hættir mest öllu væli og leikaraskap.
Þannig er það nú bara.
Væri til í að senda Frakkana á þá.
En Portúgal væri persónulegur sigur.............

Nafnlaus sagði...

Já þú ferð langt á Zambrotta Egill, jafnvel alla leið. Og Ítalar stóðu sig vel í gær gegn Þýskalandi. Kannski af því að þeir hafa ekki þurft að lyfta löppunum í mótinu til þessa? En þeir voru ekki með neitt kjaftæði og áttu sigurinn skilinn.

Annars held ég að Ronaldo leiki ekki meira á Englandi, hann verður skotmark leikmanna og almennings það sem eftir er.

Af hverju er Portúgal persónulegur sigur Lalli? Finnst þér þeir vera meðal 8 bestu landsliða heims?

Nafnlaus sagði...

Ég veðjaði á Portúgalina í vinnunni fyrir mótið og fæ 5 kassa af bjór ef þeir vinna.
Allir í vinnunni völdu lið og lögðu kippu undir.
Margir máttu velja sama liðið og deila þá vinningnum. Ég er einn með portúgalina og fæ því allan pottinn.

Þetta er 8 bestu lið í heimi að mínu mati, nokkurnveginn í réttri röð:
Brasilía, Argentína, Ítalía, Frakkland, Portúgal, England, Holland og Þýskaland/Spánn?.

Hvað finnst ykkur???

Nafnlaus sagði...

Já kæru vinir, stund sannleikans er við það að renna upp, mínir menn hafa þurft að glíma við sleggjudóma og fordæmingu í áraraðir. Það má sosem færa rök fyrir því að sú var tíðin að þeir áttu að einhverju leyti rétt á sér, en það er löngu liðinn tíð.

Vissulega erum við Ítalar pínu sleiktir og leggjum áherslu á að líta vel út, en ég fullyrði að það er engin þjóð í heiminum í dag sem inniheldur jafn mikla harðjaxla og bardagaljón og þetta kraftmikla lið sem sem hefur tileinkað sér leikstíl og baráttuanda hinna kyngimögnuðu AC mann frá Milanó.

Hermaurarnir á miðjunni kallaði Arnar Björnsson vinur minn þá félaga Pirlo og Rino(nashyrningur) Gattuso, sem hvor um sig hlaupa ca 1 1/2 maraþonhlaup í hverjum leik og leikur liðsins er byggður á.

Nú er svo komið að það er einungis eitt lítið skref eftir í að stund hefndarinnar rennur upp, ég virðist vera eini Íslendingur, sem man þann fáranlega scandal þegar Frakkar sem ekki höfðu átt skot að marki í 89 mínútur rændu af okkur sigrinum í úrslitaleik EM 2000.

Því segi ég áfram Frakkland í kvöld, það verður gaman að valta yfir þá á sunnudaginn, sjá Fabio lyfta bikar og Pirlo valinn mann mótsins.

FORZA ITALIA !!!!

Nafnlaus sagði...

Eg verd ad afsaka mina framistodu i urslitakeppninni en thad er vegna netleysis og annrikis.Fyrstu skiptinguna tok eg i gaer fyrir leik Thyskalands og Itlala en var oheppinn og finnst osanngjarnt ad Lahm fekk ekki stig thar sem thad var null null eftir nitiu minutur og svo for hann utaf,vona bara ad fara ekki nedar.
Afram portugal.

Nafnlaus sagði...

samferdarmadur(thessa stundina) minn faer fa coment her,afhverju skildi thad vera?

Nafnlaus sagði...

Það er lítið rætt um þriðja sætið sem fyrirliðinn vermir og vil ég því segja PASSIÐ YKKUR!

Spurning um að keppa næst um hver lendir í neðsta sæti og hafa 30 bjórkassa í verðlaun fyrir það, það væri spenna. Ég tel að Lobster King sé sigurstranglegastur í þeirri keppni.

Kv að austan.

Johnny

Nafnlaus sagði...

Lárus: Í lagi, ég skil vel að bjórkassarnir heilli. Ég er nokkurn veginn sammála þér um bestu liðin en ekki röðina og mér finnst Portúgal ekki vera meðal átta sterkustu landsliða.

Hörður: Ég er búinn að reikna lauslega út að ítalarnir hlaupa um 10 mílur í leik þeir duglegustu - en það gerir einungis rúman þriðjung af maraþoni. Það má þó segja þeim til hróss að þeir spretta inn á milli.

Nafnlaus sagði...

Og það má svo sem segja líka Portúgölum til huggunar að þeir eru líklega besta liðið í heimi þegar Argentínumaður eða Bin Laden er í dómarabúningnum.

Nafnlaus sagði...

Þetta verður stórleikur í úrslitum þar sem ekki má búast við miklum sóknarleik.
Frakkar henta að ég held Ítölum afar illa þar sem þeir gefa engin færi á skyndisóknum því þeir sækja á 3 mönnum, auk þess að lið virðast ná taki á hvort öðru sem þau halda árum saman.
Frakkar eru með tak á Ítölum!
Áfram ZIDANE

Nafnlaus sagði...

Já jón þór gæti unnið ef Viera skorar tvö eða eitthvað svoleiðis en það bendir nú allt til þess að ég taki þetta enda kannski frekar lítil keppni í Birni.
Grímur er einsog svo oft liðtækur en full seinn á sér.
Svo vil ég benda mönnum á að Speedy Gonzales er kominn í raðir Liverpool og get ég sagt fyrir hönd okkar nafna að Liverpool tekur þetta á næsta tímabili. Fuck Ballack und Schevschenko