Ég spyr um eyju.....

Þá er vinnuviku minni lokið og þá fæ ég tíma til að rækta minn innri mann. Mig grunar að ég eigi eftir að drekka vín með hössa um helgina. Þetta kom eitthvað svo sterkt yfir mig.
Annars kom það flatt uppá mig hvað menn voru daprir í Primus fræðum. Það var ekki fyrren sænsk stúlka kom til aðstoðar.
Loks ritaði siggi/didster nokkur ígrunduð orð í kommentunum og það fór sæluhrollur um næturvörðinn. En þegar einn kemur að þá fer því miður annar. hrannar er á leið til Aspen til 13. mars og það verður erfið bið.
Og ég spyr um rithöfund.....

Verið ekki feimnir að giska og munið að reglur eru til að brjóta þær.
18 ummæli:
Ég man ekki alveg hvað menn eru með mörg stig.....???
hrannar 6
hössi 4
Mr. Big 4
restin með 1
eretta rétt?
Stigaskorið er rétt að ég tel. Gæti verið að eyja þessi heiti Augustine Island og tilheyri hún Alaska. Rithöfundurinn hinsvegar, er hinn söluhái Michael Crichton. Vona það allaveganna.
nei bæði rangt.
Samuel Edward Konkin III mun þessi rithofundur heita.. gomul mynd..
Eyjan er nordur eyja Nýja Sjálands..
Nei audvitad þetta er Jan Mayen ...
Gæti þetta verið Hrísey. Rithöfundinn þekki ég ekki þó ég ætti ef til vill að gera það. Giska því á Dan Brown vegna þess að næturvörður er að lesa DaVinci lykilinn.
Ég er ekki sátt við ávarpið: Verið ekki FEIMNIR, Hvað er það????? Það eru tvær stelpur búnar að geta rétt og eflaust fleiri sem lesa, er þetta eitthvað hint?
þetta er ekki rithofundurinn Gabriel Garcia Marquez ???
Elísa .... Dan Brown er mun laglegri einstaklingur en þetta...
By the way þetta er Jan Mayen.....þad veit eg...
Rithöfundurinn er Njörður P Njarðvík og er myndin nokkra ára gömul.
Ég er ekki viss með eyjuna. Er hún við strendur Íslands?
Þetta er ekki Njörður P. Njarðvík. en ég hefði svo sem mátt segja mér að þetta væri ekki dan brown, hann er yngri og myndarlegri, er víst svolítið líkur aðalpersónunni í bókinni sinni. Hann er líka lygari, en það er annað mál. Þetta er heldur ekki Gabríel García Marquez, er 99% viss um það.
Er'etta Arto Paasilinna kannski?
Ef þetta er hann er ég algjör fáviti þar sem ég var að lesa Ár hérans... fær maður stig fyrir það?
En þessi eyja er helvíti erfið þetta mun ekki vera jan mayen... því þetta virist vera gýgur þarna á ferð og ég er nokkuð viss um að slíkir eldgýgar finnast við strendur japans gæti það verið...
Hrannar er óstöðvandi.
Þetta er jan mayen.
Elísa gat arto paasilinna enda búin að mennta sig í nokkur ár til að takast á við svona.
Já Diddi, varst það þú sem ég lánaði ár hérans..?
Þetta er rétt hjá Hrannari. Jan Mayen er eyjan. En rithöfundurinn er stórt spurningamerki. Spurning um aðra vísbendingu?
ég skrifaði undir merkjum palla. var e-ð utan við mig..
ég hef það frá áræðanlegum heimildarmanni að á bakvið nafn Hrannars eru allir starfsmenn Avion fyrirækisins að keppa í þessum spurningaleik...
já mig grunar það reyndar líka. Það sem hann ekki getur googlað fær hann líklega hjá næsta manni.
Helvitis kjaftædi ... þad þydir ekki ad henda i mann nidrandi ordum þvi mer gengur vel... eg er bara ekki eins heimskur og þid hin ..
Skrifa ummæli