
Hrannar kom með Jan Mayen og Elísa með Finnan Arto Paasilina sem skrifaði meðal annarra bókina Ár hérans. Nú spyrja menn sig hvort Hrannar ætli að hafa það eftir allt saman. Samsæriskenningar litu dagsins ljós í kommentum síðustu færslu. Þrátt fyrir að mjög vandaðar reglur hafi verið samdar tel ég að erfitt verði að stöðva Hrannar í innanbúðamakki sínu.
------------------
-Ég vil að menn láti ekki tóndæmi Primus fram hjá sér fara neðar á síðunni.
-Ár hérans fjallar um mann sem tekur u beygju. Nennir ekki að halda áfram að þóknast öðrum. Góð bók.
-Easy everything er stærsta net-kaffihús heims í NY.
-Jón, Siggi og Hössi eru ansi kaldir þessa dagana.
-Ekkert bólar á ljóshærðu ferðalöngunum en e-ð segir mér að það styttist í gæðakomment frá þeim.
-Könnunin hér til hliðar var gerð á meðan Elísa var að horfa á Despo einsog hún kallar það.
-Hrannar ældi áðan. Ekki gott fyrir mann á leið til Colorado. Hann var samt nokkuð brattur. Það var bara aðeins of mikið af hringormi í hádegismatnum hans af eigin sögn.
8 ummæli:
Getur verið að þetta sé borgin Perth í Ástralíu.
Er þetta Dubai ?? ..
eda skrýtid sjonarhorn af shanghai ??? well got to go...
mer lidur enn drullu illa i maganum og er eg kominn i þad astand ad mer lidur eins og eg hafi fætt Chuck Norris...en hann er frægur fyrir þad ad hann nennti ekki ad bida lengur i maga módur sinnar og tok þa akvordun ad kýla sig i gegnum magann a henni...
Vonandi er þetta ekki hringormur eins og næturvörðurinn talaði um. Sástu ekki fréttir um daginn, maður hér í bæ vaknaði við að kitla voða mikið í hálsinn, hóstaði og hóstaði og þá kom upp úr honum lifandi hringormur! Hann hafði étið steinbít kvöldið áður sem hafði ekki verið eldaður nógu lengi. Ertu búinn að vera að borða steinbít?
rétt minn kæri Theodór
Legg til að Hrannar verði hér með kallaður Hringormurinn...Hvað segið þið um það... það geta líka allir tekið undir að hann á það til að tala í hringi :)
En hver er þessi Teddi sem allt virðist vita? þekki ég hann Egill?
nei veistu ég held bara ekki. ég þekki hann ekki heldur. hann mætti á nokkrar makkar æfingar í fyrra og er frá eyjafirði. Byr i svíþjoð og er kurteis og gáfaður, já og stór.
Nafnið tel ég að segi allt sem þarf, hver heitir Theódór nema mikilmenni að gáfum og slekti, það verður ekki af eyjafjarðarfólkinu skafið. Nafnið merkir raunar guðsgjöf, og ekki veitir ofdekruðum mömmustrákum úr hafnarfirði af guðsgjöf úr Eyjafirðinum.
hvaða helvítis kjaftæði er þetta???
Skrifa ummæli