fimmtudagur, mars 30, 2006

Snóker

Undirtektir hafa verið ömurlegar í snókerkeppninni. Skráðir til leiks eru:
Hössi, Hrannar, Egill Þ, Emmi og næturvörður..
Fimm stykki.
-----------sjáum hvað setur.
Menn eru ekki að geta spurningu þrjú og grínast þess í stað, það þykir mér ekki gott og mun ég ekki láta slíkt yfir þennan miðil ganga.

þriðjudagur, mars 28, 2006

spurning þrjú í keppni tvö

Teddi er með fullt hús stiga. Í þetta skipti spyr ég um íþróttamann.


Snóker
Samkvæmt könnun hér til hliðar er áhugi fyrir snóker-keppni. Einnig virðist vera áhugi fyrir því að skipta mönnum í tvo riðla. uppúr hvorum riðli komast tveir keppendur. Sá er sinn riðil sigrar keppir við annað sætið í hinum riðlinum og öfugt.
1000 krónur kostar í keppnina en sú upphæð rennur óskipt til sigurvegara.
-Komdu með ábendingar ef þú ert ósáttur.
-skráðu þig til leiks ef þú þorir.
-Hver er íþróttamaðurinn?

Já gott væri að menn kýldu á að skrá sig. Keppnisdagur hefur ekki verið fundinn en næturvörður mun koma til móts við keppendur. Svo er alltaf hægt að hitta mótherja uppá sitt eindæmi ef keppanda er ekki unnt að mæta á tilsettum leikdegi. Það þarf varla að taka það fram að skráning fer fram í kommentum við þessa eða nýrri færslur.
Í von um góða þátttöku, næturvörður.

mánudagur, mars 27, 2006

1. umferð lokið

Larus Johannesson Carioca 19
Hossi Reykur FC Cesar 17
Egill Thordarson Thor Thunder 13
Hrannar Sigurdsson lucky 13 10
Sigurdur Thorsteinsson FC DiddiLove 9
egill sigurjonsson FC14 8
Bjorn Hauksson FC Fitzrovia 6
Jon Thor Eythorsson Johnny 1

Keppnin er komin í gang og bræður verma toppinn. Ömurlegt ekki satt. Nóg hefur rignt uppí nefið á þeim í gegnum árin. Menn einsog Johnny sem settu traust sitt á Henry fengu lítið fyrir sinn snúð þar sem Arsenal spilaði ekki vegna rigningar. Reyndar notuðu allir Arsenal menn nema Larus og Björn. Það gæti skýrt gott gengi Carioca og segir okkur að FC Fitzrovia var skipað ellefu döprum leikmönnum. Ekki hefði maður nú boðið í reykinn hefðu hans arsenal-menn fengið að spreyta sig gegn slöku liði Portsmouth. Ég held að þeir hjá fantasy bæti ekki upp skaðann þegar leikurinn loks fer fram.
Þetta er nú bara byrjunin og gríðarlegt magn af stigum eftir í pottinum þannig að bræðurnir mega vara sig, það er jú kalt á toppnum og alls ekki öll nótt úti enn.

Fyrir umferðina hélt ég að Arsenal yrði stigaliðið!
Er Björn búinn á því?
Getur verið að Hössi sé hættulegastur?
Mun johnny horfast í augu við staðreyndir og fleygja Newcastle mönnunum?
Verður þetta deild bræðra?
Er næturvörðurinn vangefinn?
Ætlar Hrannar að tala um þriggja-mánuða keppnina enn og aftur?
Hvað hefur þú um málið að segja kæri manager???

föstudagur, mars 24, 2006

spurning tvö í keppni tvö

He says, "I lived a good life, had about a thousand women,"
I said, "Why the tears?", he says, " ' Cause none of them was you".

Úr hvaða lagstúf er textabrotið???????



Annars mun ég héðan í frá birta stöðuna í fantasy deildinni eftir hverja umferð ásamt stuttum pistli.
Nú ber það helst til tíðinda að Hössi er mættur með FC Cesar og er það vel. Hann beytir vörn Liverpool og sókn Man u.
Jón Þór notar dýrasta mann deildarinnar (henry) frammi en notar tvo úr Newcastle sem gæti reynst honum dýrkeypt.
Enginn notar Crouch né aðra sóknarmenn Liverpool þrátt fyrir hátt skor hjá þeim uppá síðkastið.
Vil ég benda Larus að drífa sig í fantasy fyrir helgi og sína frammá suðrænt innsæi.


Emmi er að vinna gestapistla-könnun næturvarðar og vil ég því benda honum vinsamlegast á að setjast niður við tölvu og byrja að rita. Viðfangsefnið er frjálst þó Diddsterinn sé líklegt target. eMail næturvarðar má nálgast hjá allmörgum félögum Mökkur football club... Jú Emmi láttekki svona...!

miðvikudagur, mars 22, 2006

pistlapæling

Samningar hafa náðst við THE DIDSTER um útgáfu fleiri pistla. Hann talaði þó um breytt viðfangsefni.
Einnig hef ég rætt við Elmar um útgáfu svarpistils og fagna ég undirtektum hans: "ég var bara að bíða eftir að heyra í þér kæri næturvörður"....
Hössi rúlllaði upp snóker kostningu þó að næturvörð gruni hann reyndar um að hafa rekist aðeins í músina sína.

þriðjudagur, mars 21, 2006

Gestapistill, þriðji hluti....


Já og jæja dömur mínar og herrar… þá er komið af framhaldi af

“-Stiklað á Stóru, sögurnar á bakvið Elmar Eggertsson-“…3….


Nú til að rifja upp það allra síðast frá því í öðrum hluta þá var partý hjá mér á Hjallabrautinni… þegar þessi ókunnugi maður kemur hjólandi og lendir í þeim hremmingum að verða grýttur…. Nú þegar hann tekur þá ákvör’ðun að grýta karteflunnni til baka þá æða menn askvaðandi út úr partýinu og út á götu til að hafa upp á kauða… nú eins og þið vitið var þetta nú á þeim tíma sem við strákarnir vorum að breytast í menn… þessir menn sem hlupu út, voru ólmir í að sýna þessum manni í tvo heimana og það gerðu þeir…Emmi var svona höfðingin í hópnum en var eitthvað seinn út því að mig minnir að Magnús Samúelsson hafi verið fyrstur að manninnum og jafnvel einum of fljótur því hann áttar sig fljótlega að hann er þarna einn á móti honum… En eftir að Maggi fær svona vægt sjokk, sáum við Kristinn Páll að þarna var að duga eða drepast fyrir Magga því kallinn á hjólinu er orðin fokvondur og það sást á honum að hann var hvergi banginn…þannig Maggi ákveður að vaða ein í kallinn… En það fer ekki betur en svo að kallinn virðist ekki vera alveg jafn saklaus og hann leit út fyrir að vera við fyrstu sýn. Hann tekur Magga og snýr hann niður með léttum “Sniðkrók” og við Páli áttum okkur á því að þetta er einhver glímukóngur og alveg nautsterkt helvíti… og hvað eftir annað reynir Maggi og alltaf nær kallinn að snúa hann niður og taka svo einn léttan löðrung á eftir… Nú þarna rétt á eftir að Kallinn er búin að dúndra Magga niður og slá hann utan undir tvisvar, koma þá hinir strákarnir og sjá þar að Maggi greyið var þar helrjóður í kinnum eftir útreið Glímukóngsinns…Og nú var komið að bjóða kónginum upp í allt annan dans því Elmar var þarna komin og var nú alls ekki sáttur með hvernig Glímukóngurinn var búin að fara með Magga greyið…Emmi kom þarna og ath. Hvort ekki væri allt í lagi með Magga, rétt eins og þjálfari í fimmtaflokki myndi gera, að því loknu minnir mig að hann hafi sagt við Glímukónginn… Jæja Kallinn… nú skal… ég.. sko snýta mér með þér Helvítis pappakassinn þinn!!! Og viti menn Emminn var nú ekki lengi að finna andlit mannsins með hnefum sínum og má segja að hann hafi nú lúskrað vel á kauða þar til við köllum af svölunum að nú ættu menn að hætta… nú Emmi virðir það og segir manninum að drulla sér heim… eitthvað virtis maðurin nöldra, en strákarnir leggja nú heim í átt að blokkinni allir nema Hreggarinn, hann röltir þar að manninum sem virtist nokkuð pústraður eftir áttökin en ekkert alvarlegt... En svo ´þegar allt virtist á enda komið og allur æsingur úti… þá gefur Oli manninum þetta hrikalega olbogaskot sem sér greyið manninum fyrir ferð upp á spítala…. ‘Eg mann hvað mér fannst þetta hrikalegt ´því allt virtist þetta nú búið og var því algjörlega ástæðulaust hjá Óla ... Mig minnir að þetta hafi farið fyrir dóm og allt hafi fallið á óla þar sem við félagarnir kvittuðum allir fyrir því að hann hafi átt alla sökina.… Enda glórulaust hjá drengnum.... Emmi var nokkuð sáttur við þann dómsúrskurð… eins og reyndar flesta held ég……

mánudagur, mars 20, 2006

FC Mökkur

Manager Team Name Pts

1 Bjorn Hauksson FC Fitzrovia 42
2 egill sigurjonsson FC14 40
3 Sigurdur Thorsteinsson FC DiddiLove 39
4 Hrannar Sigurdsson lucky 13 37
5 Egill Thordarson Thor Thunder 37
6 Jon Thor Eythorsson Johnny 21

laugardagur, mars 18, 2006

spurning eitt i keppni tvö

Helgin komin á fullt og menn og konur sjálfssagt drukkin. Ég ætlað starta nýrri spurningakeppni, keppni sem mun verða með öðru sniði í þetta skipti. HRANNAR sæti sigraði okkar fyrstu keppni og verður að teljast líklegastur í þetta skipti. Hann var afar sæll með verðlaunin enda mikið gefinn fyrir nýjar og ótroðnar slóðir.

Mín fyrsta spurning er úr músik-bransanum. Spurt er um lag en hér fyrir neðan gefur að líta textabrot úr laginu.

Ce que j'ai fait, ce soir la
Ce qu'elle a dit, ce soir la
Realisant, mon espoir
Je me lance vers la gloire

Þriðja hluta gestapistilsins er að vænta eftir helgi en höfundur er víst í miðju markaðsverkefni í Lapplandi...

föstudagur, mars 17, 2006

Kringlan


Mig vantar skó. Skellti mér í Kringluna með Elísu. Hún veit hvernig á að gera þetta. Áður en ég vissi af var ég staddur í Vero Moda og daman að máta buxur. Áhugi íslenskra kvenna á búðum er massívur. Búðin var troðfull (kringlukast) og svo voru þær allar svo einbeittar og góðar í þessu. Ég var eini karlmaðurinn í búðinni fyrir utan samkynhneigðan starfsmann. Það eru sjö mátunarklefar í búðinni sem dugar ekki því það var ágætis biðröð. Allir í biðröðinni voru með búnka af fötum og maður sá að það hlakkaði í þeim. Ætli það hafi ekki verið svona sextíu konur þarna, hrifsuðu allt til sín sem þau gátu borið ásamt innkapapokum úr öðrum búðum. Ég skil ekki hvernig er hægt að hafa svona mikinn áhuga á þessu.
Ég eignaðist ekki skó í þessari ferð en komst þó nálægt því. Voru ekki til í minni stærð. Ætli ég versli ekki bara á netinu héðan í frá?

fimmtudagur, mars 16, 2006

gestapistill, annar hluti

Já jæja þá er komið að því að halda áfram með "Stiklað á Stóru í lífi
Emma Tott" En það var góðvinur okkar Emma sem einmitt á heiðurinn á
því að Emmi átti á köflum eftir að vera kallaður Emmi Tott. Sá
snillingur heitir Einar eða "Bjúgan eins og Emmi kallaði hann" en hann spilaði meðal annars á gítar með stórhljómsveitum á borð við, Basic Abuse
og Stolíu svo einhverjar séu nú nefndar...En allavega á bakvið "Totterinn" eru margar skemtilegar
sögur og hafa samferðamenn Elmars verið fjölmargir í gegnum tíðina.
þar á meðal menn eins og: Pétur Bakari (eða Pétur Leiðinlegi eins og
ég kýs að kalla hann), Trausti Eysteins (af Billanum), Pési litli (úr
hafnarfirði), og svo mætti lengi telja... en sá samferðamaður sem ég
ætla einblína nu á er ólafur nokkur Hreggviðsson... En á meðal Emma og
Óla tókst góður vinskapur hér á árum áður... þó þeir hafi komið úr
ólíkum áttum voru þeir tveir helvíti góðir saman... Emmi gat notað óla
og 'Oli gat notað Emma... það sem ég á við með því er að Emma eru
allskyns plott og plön í blóð borin og sjálfsagt fáir sem standa honum
jafnvígis þegar kemur að þeim athöfnum... En ´´Oli var einmitt mjög
auðveld bráð fyrir meistarann sjálfan...það voru td. ófáar pizzurnar
sem Totterinn splæsti á okkur strákana... sem hann skrifaði á óla og
óli líklegast á einvern annan....Emmi var aldrei feimin við að leyfa
öðrum að njóta arðsins úr slíkum plottum... En svona gengu kaupin
á eyrinni fyrir sig í þá daga... En þó Óli hafi kannski ekki hagnast
fjárhagslega á þeim samskiptum sem urðu þeirra á milli gat hann alltaf
´stólað á það að Emmi myndi ekki horfa upp á það að Óli vinur sinn
yrði lamin í hans viðurvist...En Óli var snillingur í að koma sér í
vandræði!!! Þetta gerist á þeim tíma þegar slagsmál og bar´smíðar
spiluðu stóra rullu í lífi Elmars. En ef það var eitthvað sem þú gast
treyst á, á þessum blóðugu árum '94 - '96, þegar bærinn fylltist af
draugfullu fólki á mín.03:00, þá var það að Emmi sem skyldi vera sá
maður sem ekki hyrfi úr horni þínu þegar eitthvað bjátaði á. Og það
get ég sjálfur skrifað undir... En eitt skiptið þegar við félagarnir
sátum við drykkju heima hjá mér á Hjallabrautinni... þarna voru menn
eins og Emmi, Kristinn Páll, Stjáni, Mikki, óli Hregg, Roskop... við
erum úti á svölum eitthvað að bardjúsa þegar ég og Emmi komum auga á
Hallorm bróðir Magga Hvíta á hjóli fyrir utan blokkina... við rjúkum
undir eins inn í eldhús til að finna þar einvhern viðbjóð til að grýta
fíflið... við komum út á svalir með fangið fullt af eggjum, karteflum
og ef mig minnir rétt eplum og appelsínum einnig... sem sagt var
stórskotarliðið búið að stilla sér upp þarna á svölunum og tilbúið að
slátra Hallorminum... Þegar Ormurinn var búin að fá Egg í andlitið og
Appelsínu í punginn hvarf hann á braut grenjandi eins og aumingi með
hor... En þetta lífgaði svo sannarlega upp á samkomu okkar félaga og
mátti sjá á sumum að ekki voru allir orðnir saddir af slíkum árásum...
og viti menn! Ekki leið af löngu þegar þessi blásaklausi miðaldra
maður kemur hjólandi upp Hjallabrautina og fær stærðarinnar "Grill
Karteflu" í smettið af það miklu afli að það fossblæðir úr nefi
mannsins. Á þessu augnabliki átta ég mig á því að þarna eru menn
komnir með blóð bragðið í mun og öskra af svölunum mínum setningar
eins og: Drullaðu þér í burtu aumingi; Viltu að ég fokking drepi þig
aumingi.. Viltu að ég komi niður og gangi frá þér...
Ekki man ég hverjir þetta voru sem öskruðu en þarna fannst mér nú nóg
komið og byrjaði að reyna fá strákana inn af svölunum og róa þetta
aðeins. Og mig minnir að það hafi næstum alveg gengið og ég hafi verið
að loka svalardyrunum þegar aumingjamaðurinn gerir þau mistök og
kastar karteflunni til baka upp´og í svalarrúðuna... 'A nákvæmlega
tveimur sekúndubrotum tæmist íbúðin og eftir standa ég og Kristinn
Páll gjörsamlega gátaðir... við vissum alveg hvaða örlög
aumingjamaðurinn myndi hljóta... Framhald á morgun...

þriðjudagur, mars 14, 2006

Gestapistill, fyrsti hluti.

Elmar Egg er ´fæddur 1978 og aldist upp í Hafnarfirði. Hann var mikið hrekkjusvín á yngri árum og tala ég sjálfur af reynslu um óprúttin hegðunarvandarmál sem upp komu...td. dag einn sem móðir mín og faðir komu heim frá henni Ameríku með lítið hlaupahljól handa Didda sínum. Þá sá Elmar sér leik á borði með því að vingast við litla Diddaling í eins og um eina viku ásamt því að plotta hin fullkomna glæp, þá aðeins 11 ára gamall... En allavega fór það svo að Diddi litli átti þetta flotta hlaupahjól í umþbl. viku áður en hjólið hafði skipt ólöglega um eigendur... Ég sakna hjólsins ennþá í dag... ; Emmi var mjög feitur og ófríður sem barn en það ílengdist ekki lengi því um 15 ára aldur tognaði úr barninu yfir í myndarlegan herramann sem sitt hvað kunni í því að heilla hitt kynið... eftir ástarsamband sitt við bekkjarsystur sína Hjördísi, ákvað Emmi að láta reyna á líf piparsveinsins og átti hann eftir að kveikja eldheitan ástareld víðsvegar í hjörtum unglings stúlkna hér í bæ sem og öðrum. Enda, á þeim tíma sem hann, ók um götur bæjarins á stífbónuðu Suzuki TS 70... og átti það nú eftir að eiga stóran þátt í því að móta líf hans á þessum unglingsinsárum... Bæjaryfirvöld höfðu ekki undan við að lagfæra skemdir Elmars á túnum bæjarins þar sem hann´kvittaði oft á túnin með því að spóla í hálfan eða heilan hring... seinna átti hann eftir að segja mér að hann hafði upplifað sig sem einskonar "graffíti artist" sem skildi eftir einkenni sitt vítt og breitt um bæinn... ... (Framhald á morgun... þarf að fara vinna...ég sé að´ég þyrfti að vera í starfi næturvarðar ef ég ætti að skrifa sögu Elmars, en í staðinn ætla ég að nota næstu daga í að stikla á stóru...í lífi þessa merkilega pilts...)

þriðjudagur tveir

"I´m polish"

úr hvaða mynd er þessi setning???
e. ég er pólskur.
Myndin er ekki gömul og þótti feikifín.

þriðjudagur einn.

Spurt er um mann. Maðurinn er mjög frægur en myndin er gömul.

laugardagur, mars 11, 2006

Benfica

Mér leiðist að vera með leiðinlegt blogg. Ætti ég kannski barað hætta þessu. Hef e-n veginn ekkert að skrifa um og hef fengið margar kvartanir yfir spurningunum. Allmargir ekki að fíla þetta. Ég get svosem alveg skilið það en á meðan ég næ ekki í Hössa og tek krassandi starfskynningu að þá er þetta eina sem mér dettur í hug. Einn kvartarinn vildi fá setningar úr bíó-myndum og það er svosem ekkert mál en varla mikið skemmtilegra. Allavega, ég spyr um fugl. Eftir að ég sá Mynd Friðgeirs úr garðinum fannst mér ég verða að tjékka á mínu nánasta umhverfi. Ég rölti niðrí fossvogsdal og viti menn, allt krökkt í allskyns dýrum. Þessi fugl horfði á mig einsog ég væri algjör auli og þótti mér verst að hann hefur jafnvel rétt fyrir sér, slíkir voru hans yfirburðir í okkar augn-kontakt... Giskið.
Úff hvað Liverpool léku mitt sálartetur grátt í vikunni. Ekki til að bæta ofaná Newcastle áróður Johnny´s. En mottan sem ég keypti hefur þó yljað mér og tel ég heimili mitt hafa batnað töluvert. Svo ætla ég að kaupa mér flatskjá eftir helgi, jeppi á leiðinni með Eimskip frá USA og þá kannski fer mér að líða betur.
Náði tali af Lalla. Þeir félagar eru að leita sér að íbúð í Ríó, geri aðrir betur. Óli var á date-i eftir að hafa eytt kvöldinu áður í sleik með henni á diskóteki, já hann kann sitt fag. Stúlkann er Brazzi og kannski liður í því að ljóshært barn fæðist í suður Ameríku.
Aldrei sá ég myndina Crash né heyrði um hana. Ætli maður skelli sér ekki bara útá leigu við tækifæri og

fimmtudagur, mars 09, 2006

enn ein borgin

hössi er kominn að utan og nú fer að styttast í næstu starfskynningu. Hans menn í Milan stóðu sig vel í gær en ekki verður það sama sagt um mína menn í liverpool. ætli ég haldi ekki bara með arsenal það sem af er keppninni.
ég spyr um enn eina borgina. Hún er ekki stór en ætti að þekkjast.
úff ég get ekki beðið eftir hrannari, hann kemur eftir helgi og aldrei að vita nema maður taki viðtal við kauða. þessi spurningakeppni er orðin ansi þreytt.
Nú styttist í HM´06. Við Hrannar höfum verið að skipuleggja allsherjar veðbanka.
mun segja betur frá honum þegar hrannsi kemur heim. höfum samið nokkrar reglur og talað við nokkur fyrirtæki til að efla verðlaunin. annars er eg leiður á fotbolta og...

miðvikudagur, mars 08, 2006

litla borgin

Þessi borg er lítil en við þekkjum hana allir/öll.

Varðandi gátuna sem lalli lagði við færsluna hér á undan að þá er ég meira í sjónrænum spurningum og kasta því knettinum á Tedda & co. því ég er langt frá því að geta giskað.
Ég ætla að fara varlega í vísbendingum og njóta þess að menn eru ekki að geta þetta strax. Njótið nýju myndarinnar, glæsileg borg/bær..... nei þetta er borg, allavega næstum því

þriðjudagur, mars 07, 2006

cintamani

Lassi&gulleðlan bara orðnir að surfurum. Djöfull eru þeir cool. Nei ég meina, meðan ég kaupi mér mottu í eldhúsið kaupa þeir sér bretti. Ekki það að maður getur svosem alltaf selt allar sínar mottur, hillur og hvað þetta allt heitir og kíkt e-ð út EN það er víst betra að vinna og standa í skilum heldur en að...........
Hössi er í Gautaborg og Teddi er á Akureyri. Kannski hittust þeir á miðri leið!!!?
Spurning dagsins er borgarleg. Man ekki alveg stöðuna nema hvað að hróní er með 7 stig og vantar því eitt uppá sigur og verðlaun að gera.

Hrannar hringdi áðan úr Aspen blindfullur. Talaði um að hann og Larry Bird væru e-ð að chilla í fjallinu. Sagði að Larry væri drullufínn.

föstudagur, mars 03, 2006

flöskudagur

Spurt er um hljómsveit. Voða vinsæla sveit.

Jæja ég er farinn í Ikea að kaupa mér mottu. Já ég er að nálgast þrítugt og langar í mottu. Vonandi mun þessi helvítis motta gleðja mig um ókomin ár.

easy everything

Spurt er um enn eina borgina.

Hrannar kom með Jan Mayen og Elísa með Finnan Arto Paasilina sem skrifaði meðal annarra bókina Ár hérans. Nú spyrja menn sig hvort Hrannar ætli að hafa það eftir allt saman. Samsæriskenningar litu dagsins ljós í kommentum síðustu færslu. Þrátt fyrir að mjög vandaðar reglur hafi verið samdar tel ég að erfitt verði að stöðva Hrannar í innanbúðamakki sínu.
------------------
-Ég vil að menn láti ekki tóndæmi Primus fram hjá sér fara neðar á síðunni.
-Ár hérans fjallar um mann sem tekur u beygju. Nennir ekki að halda áfram að þóknast öðrum. Góð bók.
-Easy everything er stærsta net-kaffihús heims í NY.
-Jón, Siggi og Hössi eru ansi kaldir þessa dagana.
-Ekkert bólar á ljóshærðu ferðalöngunum en e-ð segir mér að það styttist í gæðakomment frá þeim.
-Könnunin hér til hliðar var gerð á meðan Elísa var að horfa á Despo einsog hún kallar það.
-Hrannar ældi áðan. Ekki gott fyrir mann á leið til Colorado. Hann var samt nokkuð brattur. Það var bara aðeins of mikið af hringormi í hádegismatnum hans af eigin sögn.

fimmtudagur, mars 02, 2006

Hann kommentaði loks...

Í tilefni þess að mars er genginn í garð að þá hef ég ákveðið að koma með tvær spurningar.
Ég spyr um eyju.....

Þá er vinnuviku minni lokið og þá fæ ég tíma til að rækta minn innri mann. Mig grunar að ég eigi eftir að drekka vín með hössa um helgina. Þetta kom eitthvað svo sterkt yfir mig.
Annars kom það flatt uppá mig hvað menn voru daprir í Primus fræðum. Það var ekki fyrren sænsk stúlka kom til aðstoðar.
Loks ritaði siggi/didster nokkur ígrunduð orð í kommentunum og það fór sæluhrollur um næturvörðinn. En þegar einn kemur að þá fer því miður annar. hrannar er á leið til Aspen til 13. mars og það verður erfið bið.

Og ég spyr um rithöfund.....

Verið ekki feimnir að giska og munið að reglur eru til að brjóta þær.

miðvikudagur, mars 01, 2006

Les Claypool, Primus....

Það kom að því Svíinn tók við sér. Ég þakka Metallica fróðleikinn. Var búinn að gleyma þeim nýja.

Þegar að maður horfir á þetta sér maður hví Hrannar var að giska á Metallica.

Bjór

Þennan dag árið 1989 var bjórbanninuaflétt og ég ætla sko ekki að láta mig vanta á kránni í kvöld. Ætli feita bollu-fólkið komi úr fylgsnum sínum og svolgri í sig öli með góðu samviskuna sína? bla bla
Nú er Hössi hættur að kommenta og næturverði er ekki skemmt.
Hrannar eða arsenal einsog ég kalla hann gjarnan vegna vaxtarlags er eini sem giskar. Reyndar hefur Elísa sæta verið eitthvað að fikta við það líka. Teddi vill vera með allt á hreinu en hössi og siggi virðast bara loka sig af ef spurningin hentar þeim ekki.

arsenal fer til coloradofylkis fyrir helgi og segir það manni allt um velgengnina sem þar hefur hreyðrað um sig. Vegna ferðar hans verður birt önnur mynd af bassaleikaranum.