
Jæja vinur, hví kokkur?
Jaa ég byrjaði nú reyndar sem rafvirkjalærlingur hjá Raf-X en lagði saman tvo og tvo þegar ég horfði á markaðsstjóra Marels kjamsa á samlokum mínum. Allar mínar tilraunir í eldhúsinu runnu ljúflega ofan í maga markaðsstjórans þannig að ég skellti mér í kokkanám á Holtinu.
Hvernig kemst rauðbirkinn og bólóttur unglingur að á Holtinu?
Eitthvað sá yfirkokkurinn við mig. Seinna fattaði ég að sá djöfull var snar samkynhneigður og kannaðist við mig vegna vinskapar míns við Ödda.
En nog um eldamennsku hefurdu átt einhver gæludýr?
Hvar er helvitís kóríanderinn Freyr drulladu þér i hagkaup ad kaupa meir. Gæludýr ju ég var nu kalladur Jói petshop til lengri tíma og heimili foreldranna dýraríkið,eg hef átt froska ,fiska og fleiri furðudýr enda mikill vinur dýra, ég get kannski upplýst þad núna að eitt þeirra var uppistaðan að omelettu sem ég fóðraði garðbæingana.(og brosir út í annað þungt hugsi um ferðir Freys).

Hver er svo þinn uppáhalds matur?
Bara allt grill, ég elska grill. jú ætli ég segi ekki bara grillaður fiskur til að segja eitthvað. Grillaður ufsi fylltur með jasmín fræjum og mjög þroskuðum kóríanderstilkum löðrandi í rommsósu, það er sko e-ð sem fólk spítir ekki útúr sér.
En hvernig er það? einhverjar minningar úr æsku þinni?
Ég gleymi því seint þegar faðir minn tengdi nýja
aiwa vídeotækið og bylting varð á heimilishaldinu, kallinn missti sig algjörlega á rec takkanum og má segja að um litla vídeóleigu hafi verið að ræða í tómu herbergi Adda en hann var við nám í Noregi.
Einhver vonbrigði úr æsku?
Tja, engin alvarleg en mér varð varla svefnsamt eftir að hafa dúndrað andliti Gunnar dóttur Sveins í kletta vegg á grunnskólaárum, en ég bar bara svo heitar tilfinningar til hennar Gunnar eða metalmouth eins og hinir kölluðu hana.
En hvernig fór fannstu ástina?
Í sömu andrá rennir Freyr inn í eldhúsið með nóg af rósmarín en engan kóríander,
æðarnar tútna út í andliti kokksins og hann fyllist bræði, hann skvettir brennandi heitri olíu í andlit drengsins sem rekur hræðilegt öskur ahhh
hann lætur ekki kjurt liggja og fleygir pottinum með öndinni í bakið a Frey sem hleypur út í tárum.
svar við spurningunni fékkst aldrei.
Framtíðaráform?
Opna stað í Breiðholti, meika smá pening á öllum þessu liði þarna ha ha ha. Ég er búinn að mastera austurlenska matargerð. Keypti krydd í Teheran um árið og ætla ég að kalla staðinn Fellakrydd eða InMoodForFood. Já ég hika ekki við að fara ótroðnar slóðir..!
En nú vinnur þu myrkranna á milli hvernig eru svo laun kokksins?
peningar skipta mig engu máli en ég næ endum saman eftir dýrar helgar. Maður fer ekkert að meika money fyrr en maður opnar sinn eigin stað.
Hvert er svo idol þitt í lífinu?
Eggert Leví fyrrverandi skólastjóri í Víðó, hann var mér sem faðir:) svo leit ég nú alltaf upp til Emma þegar ég sá hann prjónandi um bæinn á TS-inu sínu, hann átti alltaf besta TS-ið.
Áttu þér uppáhaldsfrasa?
ó já, til dæmis: Lambakjöt á diskinn minn, nei ég segi nú bara svona(kokkurinn skellir uppúr) auðvitað snilldarsetningin "make pizza not war" sem er ódauðleg og náttlega fight fire with fire....
Eitthvað að lokum?
Já ég vil benda nemanum Frey: að vinna það er e-ð minna, að éta það þeir jú geta spikfeitu helvítis hommar
Bíddu hversu þungur ert þú
nú get ég ekki staðið í þessu rugli lengur (pannan er kominn á loft)
Áskorun?
Að sjálfssögðu Hödda365, hann er alltaf svo hress.

Flestum þótti maturinn afbragð nema hvað að kokkurinn þurfti að gera samloku uppá gamla mátann til að hafa markaðsstjórann sáttan. Ekki málið sagði kokkurinn og fékk sér slurk af Tanquerey gini og smá sjéniver fyrir meltinguna.
4 ummæli:
blessadur Egill,thessi atvinnuvidtol eru hrein snilld.tek gladur thatt i thessu eg man nu hvernig thad var ad vera i vinnu,en nu eru their dagar taldir,og mun eg lifta skifmali aftur.haha.
kvedja fra Chile.
já ég geri ráð fyrir að þú munir EKKI lifta skífumáli aftur, aðeins drykkjum. Hvað ætlar þú þá að gera??? láta peningana vinna fyrir þér? vonandi að þú finnir e-a ríka einsog Lalli þannig að vinna heyri sögunni til. easy living einsog Lalli segir alltaf.
Saell Egill. Er afar sattur vid thessa sidu. Reid nu ekki eins feitum hesti fra landafraedi spurningunum og eg hefdi viljad...
nei það var skrýtið, þú sem átt ættir að rekja þangað einsog brósi.
Skrifa ummæli