Liverpool fer til Wigan á morgun og vonandi skorar sláninn.! Fantasy football keppnin hefur verið lífleg og skemmst frá því að segja að hróní er búinn að vera arfaslakur á nýju ári og hættur að nenna tala um leikinn. Þvert á móti hefur Siggi meiddi styrkt stöðu sína með hverri umferðinni enda mjög taktískt þenkjandi. Líklega mun ég samt vinna þennan mánuð rétt einsog þann síðasta en hina keppendurna tekur ekki að minnast á, eilíft miðjumoð og viðbjóður. Reyndar virðist maraþonlundinn vera að skríða uppúr drullupollinum sínum enda staddur á höfuðstöðvum enska boltans og fær líklega upplýsingar sem við hinir getum einungis látið okkur dreyma um að fá. Sem dæmi veit ég að hann fékk eMail frá Mr. Benitez um daginn og við það gjörbreyttist liðsskipan Lundans og hann skreið upp töfluna. Auðvitað er þetta svindl en ég hef ekki miklar áhyggjur.
Í tilefni leiksins á morgun og þeirrar staðreyndar að flugvirkinn(lucky 13) okkar á afmæli innan fárra daga að þá kemur hér landafræðispurning. Vísbendingum verður fleigt í loftið ef illa gengur og mun ég strax koma með eina. Surt er:
Hvaða borg Bandaríkjanna sjáum við hér á myndinni?Vísb.1 : Líklega þekkir Dj-Diddi þessa borg hvað best af okkur sem þessa síðu lesa.
7 ummæli:
Nú mér sýnist þetta vera borg í florida fylki að nafni Miami!!! Sudos Cordiales amigos!!!
rangt minn kæri Dídjei.
þetta mun vera borgin sem eitrada nartan Oprah winfrey vinnur sem mest fra sem og fæddi stjornuna numer 23 Chicago er min giskun....?
Michael Jordan er frá South Carolina andskotinn hafi það. Borgin er Chicago og verð ég að gefa þér rós í hnappagatið minn kæri en ég sé það núna að Tulsa-kid lumar á sér.
Því má við bæta að vísbendinguna hugsaði ég þannig að blúsinn er grasserandi í borginni og Diddi er trommuleikari einsog við vitum.
hrannar er kominn með eina medalíu...
Þad vita nu allir ad Jordan er fra Karólínu enda var eg ekki ad tala um hann þegar eg nefndi töluna 23 heldur vin Opruh sem er sá tuttugasti og þridji sem hun kynntist Dr Phil ... Madurinn sem a svör vid öllu....www.askdrphil.com
Þessi vísbending var bara til að rugla fyrir mér og ekkert annað FÁRÁNLEGT.... *Egill ég hefði ekki trúað svona vinnubrögðum upp á þig og er þetta svartur dagur í lífi annars ágætrar heimasíðu þinnar... hvað í andskotanum veit ég um chicago borg... annað en það er oftast verra veður þar heldur enn á myndinni...
já þetta var kannski fulllangt gengið hjá mér. djassinn hefur jú ekki verið uppá yfirborðinu hjá þér í nokkur ár.
svona er þetta bara
Skrifa ummæli