Einu sinni næturvörður, ávallt næturvörður.
Þrátt fyrir gríðarlegt álag á atvinnumarkaðnum mun ég setjast við skriftir every now and then. Margt hefur gerst bakvið tjöldin og ber þar hæst ritstuldur Ragnars á vakta-trílogíunni sem svo var kórónuð með kvikmyndinni Bjarnfreðarson. Mótlæti er mér í blóð borið og þó það geti reynst erfitt hef ég löngum getað fundið þrótt að nýju við að umgangast þann ágæta pilt sem prýðir myndirnar hér að neðan. Dugnaður er hans millinafn og þess má geta að hann skilur ekki orð á borð við meðalmennska, hvíld og þreyta. Þó finnur hann ætíð tíma til að gera glens og segja skrítlur þegar það á við.


Stund milli stríða. Þarna gengur okkar maður frá viðskiptum ásamt því að segja grín. Jóa var reyndar ekki skemmt en vilji Hrannars engu að síður góður.


Þarfasti þjónn Hrannars er án efa pallbíllinn hans sem hann verslaði í miðríkjum Bandaríkjanna.
"Lipurð og afl heilla mig"

Kaffi og kvistakaup. Dæmigerður dagur athafnamanns.

Einbeittur í átt að settu marki.
"Ég lærði margt varðandi árangur og
mikilvægi þess að setja sér háleit markmið
af Phillip McGraw,
leikmenn kalla hann reyndar Dr. Phil"

Umhverfið hefur löngum verið á varamannabekk kauða en svo er ekki lengur. Nú eru setningar einsog "flokkað og fleygt" orðnar honum sem boðorð.

"Einn kaffi og svo áfram með smjörið"
Svona er dagur í lífi athafnamanns í fríi. "til hvers að taka frí þegar nóg er að gera"
Maður spyr sig.....!
3 ummæli:
Velkominn aftur til stafa Næturvörður
Matti
Jæja, gaman að finna að frumkvæðið og krafturinn sem Næturvörðurinn var alltaf svo þekktur fyrir er komið á kreik. Ekki til betri maður til að fjalla um eftir langa hvíld en öðlingurinn hann Hrannar. Betri fyrirmynd þekkist ekki!!!!
Reykur
Bíddu hvað er Hrannar að smíða?
bkv
Gerður Guðjónsd.
Skrifa ummæli