þriðjudagur, september 01, 2009

haustfærsla

Í ljósi þess að uppáhalds árstími okkar Hrannars er genginn í garð fannst mér kominn tími á færslu.
Ég hef flutt mig um set eða um 3km. Nú lifi ég við þann stórborgar unað að geta hvergi lagt bíl mínum en ég var semí-svikinn af leigusala mínum. Ég er ekki ólíkur Costanza fjölskyldunni. Fæ mig ekki til að greiða fyrir stæði.
Ein versta máltíð sem ég hef fengið í starfi. Sky Europe. Þeir fóru á kúpuna í morgun.
Minnti mig soldið á lirfuna sem Brooks gaf fuglinum sínum í Shawshank.
Næst mun ég fá mér rauðan bíl. Einfaldlega flottari.
Okkar reyndasti kafteinn ræðir við eina okkar reyndustu fluffu. Um hvað! má Guð vita. Þessi kall er einn sá snjallasti og er Austurríkismaður. Gamall rallýkall og sonus SS-foringja. Sjálfur segist hann ekkert vita um helförina því slíkt sé ekki rætt á hans slóðum.
Besta máltíð sem ég hef fengið í mínu starfi. Royal Air Marok
Miðbæjargatnamót í Bratislava. Allt að gerast en um leið, ekkert

3 ummæli:

Unknown sagði...

Þú veldur mér vonbrigðum Egill. Engin færsla í 2 1/2 mánuð og hvað býðuru upp á? Rauðan bíl og bakka af flugvallamat. Þú getur mun betur, það veit ég!!!

Næturvörður sagði...

Já þetta er frekar boring Höddi, sorry. En þú ert eiginlega að segja að líf mitt sé vonbrigði. Þetta er jú innsýn í líf mitt. En sjáum hvað setur með þetta allt saman

Nafnlaus sagði...

Mer fannst hun agæt ..
var einmitt ad hugsa þegar eg sa royal air maroc maltidina , helviti er þessi fin , þvi ju þessar maltidir skipta skopum ef madur þarf ad vera mikid um bord i þessu aparati..
Hroni
................................