Í ljósi þess að Grímur átti afmæli fannst mér kominn tími á færslu. Þvílíkur kraftur og dugnaður sem hefur drifið þennan pjakk áfram. Hægt að læra endalaust af honum. Og einsog sést á meðfylgjandi mynd að þá er bræðrakærleikurinn aldrei langt undan. Til hamingju...

Skellti klassíska Renaultinum í olíuskipti. Þegar maður býr á meginlandi Evrópu er betra að vera á vel smurðum fák því maður veit aldrei hvert verður haldið næst. Borgir einsog Skopje, Krakáw og Lundur koma strax uppí kollinn.

Flugvirkinn ógurlegi virðist ætla svíkja einmana vin í austur Evrópu. Ég hef ósjaldan valhoppað um strætin hér "vitandi" að von væri á kauða á tónleika með okkar ástkæra DM.
"Hey, frænka mín er með barn á brjósti mar" eða hvað hann sagði. Vinslit segja sumir, sjáum til segi ég.

Tók þessa af tveimur listamönnum í Ford Ranger ´00 3000cc. Gaman að sjá andstæðurnar. And-listamenn segja sumir...! Nei segi ég, fengu hann lánaðan.

Svo vil ég að lokum þakka kærlega fyrir þátttökuna í könnuninni hér til hliðar. Fimm búnir að kjósa á aðeins fjórum mánuðum. Ég er með tilfinningar.
Jæja, má ekki vera aðessu, vinnan kallar. En það er föstudagskvöld segja sumir..! First duty, then pleasure segi ég.
Skál fyrir G.Þ. productions.
3 ummæli:
Þvílik svekkelsis færsla nu er eg ad deyja mig langar svo ad fara a DM 22 á jónsmessu ofan á allt saman ... bara svo þad sé á hreinu Egill minn þá var eg buinn ad stadfesta þáttöku mína á þessa tonleika, en fékk þau svör að ég væri ekki velkominn enda vildir þú frakar hjúfra um þig í mið austurlandinu Kuwait en að taka á móti þínum "fyrrverandi" vini ...
El spastikó amigo Hróní
P.s tour of the universe er ekki buinn reynum að ná þeim einhverstadar í næsta fríi
Þetter ekki búið fyrr en þetta er búið segja sumir,
reach out and touch faith segi ég
Hann hlýtur að hafa verið fullur þegar hann skrifaði þessa færslu segja sumir - Blindfullur segi ég ..
kv.
Diddilicious !
Skrifa ummæli