föstudagur, janúar 16, 2009

Útgáfutónleikar Inga

Hrannar hringdi um daginn og vildi ólmur komast á tónleika Inga vinar sína. Sounds good sagði ég og smellti mér. Þegar þangað var komið fattaði ég að Hrannar hafði verið að bíða eftir þessu svo vikum skipti. Keyrði óvenju hratt og var allur á iði í sætinu. Við Gerður og Kris-b náðum engu sambandi við hann og eftir að Ingi steig á svið var hann í eigin heimi.
Ingi stóð sig vel og allir virtust sáttir. Jafnvel ömmur hans.
Stemmningin magnaðist með hverju laginu og Hrannar var orðinn sveittur og vægast sagt ánægður með vin sinn frá Tulsatímanum. Loks náðu þeir félagarnir saman og virtist Ingi ekkert minna sáttur með hittinginn en þeir Hrannar og Kris. Þeir spjölluðu um stund og grínuðust en allt þeirra á milli var á ensku og erfitt að skilja.Að lokum var allur vindur úr Hrannari og þurfti ég að keyra heim. "Gaman aðessum gaur maður" var það eins sem Hrannar sagði á leiðinni heim.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hahahaha .... What a night

The Tulsa Kid

Nafnlaus sagði...

hahahaha .... skemtileg færsla egill .... ég man eftir þessu kvöldi, hrannar var eins og kid in a candy.....

kv. D luv