
---
Björn Arnar hugðist skrifa harðorðann pistil á bloggi sínu (sjá hér til hægri undir BAH) gegn bílum en vil ég biðja kauða um að athuga þá staðreynd að sumir bílar eru meðal okkar til að þjóna.
---
Að lokum ber mér að tilkynna að pistils um Danmerkurferð mína er að vænta. Þar valsaði ég um ásamt Herði og hans fylgdarliði en vann einnig hörðum höndum til að eiga ofaní mig og á. Þegar Hörður er annars vegar, verður að skjalfesta það og hvað er betra en internetið til slíks..!
Þó vil ég geta þess að það verður ekki ritað orð á þessum miðli framar nema um meðalundirtektir verði að ræða.
6 ummæli:
Ég samhryggist þér með eðalvagninn.
Kveðja frá bright lights big city Akureyri.
Teddi Stóri
R.I.P Clio !!!
kv. fyrverandi eigandi.
Loksins loksins... mikið er ég glaður að sjá frá þér blogg elsku vinur. Endilega haltu þessu áfram og ég hlakka til að lesa um svaðilfarir okkar á Skáni og kóngsins Köben.
já er hann allur blessaður, og hvað næst?
p.s. það er eitthvað smá basl að setja komment hér inn.
Í ljósi skemmtilegrar umræðu í Nýlenduvöruversluninni í gær set ég hér inn link af Klovn atriðinu góða.
http://www.youtube.com/watch?v=vEBdjONWYsg
Ja hafðu ekki áhyggjur af Clio hræinu , það sem ég myndi óttast er "ævilöng skuld við Didda". Að þú skulir í eitt augnablik halda að þessi bíll eigi ekki eftir að draga dilk á eftir sér ... já bíddu bara, Diddilicious will strike right back at ya.
Kv. Hroni
Skrifa ummæli