miðvikudagur, september 10, 2008

Hafnfirðingar og Grímur

Við Hafnfirðingarinir tókum Grím okkar til sjávar á fleyinu Sæja HF 230. Þrátt fyrir góða takta við næturvörslu er alvitað að hafið hefur ávallt heillað mig meira. Það er bara þannig.
Við Kristján erum öllum hnútum kunnugir á hafi úti en einsog sést á svipum þeirra Óla&Gríms að þá var þeim greinilega ekki sama þegar siglt var úr höfn.Kristján þurfti aðeins að eiga við útgerðina í upphafi enda díselolían að gera útaf við þá. Þess má geta að þeir eru með Volvo Pentu dísel í Sæju.
Einsog sannra sómaður er siður að þá var sleppt úr vör í hafið í útsteam-inu.
Smábátahöfnin kvödd.
Kristján er mikill höfðingi og vildi leyfa Grími sem alinn er upp í Garðabæ að spreyta sig á siglingafræðinni. Grímur sýndi mikla dirfsku einsog áður hefur komið fram á þessum miðli. Verst að aflabrögð Sæju buðu ekki uppá mikinn afla einsog átti eftir að koma í ljós útgerðinni til mikils ama.Eftir á að líta er greinilegt að Múkkinn skilur hvorki upp né niður í ákvörðun okkar félaganna um val á veiðistað.
Eftir mikla baráttu lágu fjórir ræflar í valnum og allir komu þeir undan Óla. Næturvörður tekur ofan fyrir Óla og einnig þeirri staðreind að ein af tutlunum hans endaði í feikifínum sushi-rétti.Þrátt fyrir austan sudda og slæma veiði voru menn hæstánægðir með túrinn.
Fyrir hönd Gríms og Óla vil ég þakka kærlega fyrir sjóferð þá er Sæja bauð uppá á degi sem virtist ekki bjóða uppá eitt né neitt. Kristján gerði greiða þennan dag.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ive done something here to have you a few cents!

Nafnlaus sagði...

very cool.

Nafnlaus sagði...

im your favorite reader here!

Nafnlaus sagði...

ég legg hér með inn pöntun fyrir nýju bloggi takk