miðvikudagur, ágúst 20, 2008

Af bílum

Einsog allir vita eru bílar okkar þarfasti þjónn. Bíll er þó ekki það sama og bíll.
Frakkar eru náttúrulega sjéní og það nýtti næturvörður sér. Bílinn fékk hann að gjöf frá vægast sagt góðhjörtuðum plötusnúði hér í borg.
Óli skellti sér á fagran amerískan kagga.
Lárus að þrífa enda eigandi BMW.
Jói skellti sér á splunkunýjan þýskan eðalvagn enda með dýran smekk, feikidýran smekk.

Glæsileg nútímakerra bliknar í samanburði við þann gamla. Svíar hafa löngum verið leiðandi í straumlínulagaðri hönnun glæsibifreiða.
Frábær
Frábær
Ekki náðist mynd af pick-up Hrannars, hlaðbak Didda né Nissan Hödda svo ekki sé talað um jeppaklúbb úlfanna. Bíll Óla Stef þótti ekki nógu góður fyrir vefsíðuna. Um reiðhjól Björns verður kannski rætt í framtíðinni.

10 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Frabær færsla næturvordur...
loksins kemur bilanördid upp i þer

Nafnlaus sagði...

Vantar alveg myndir af Skoda þarna, ég kannski sendi þér myndir af 15 þúsund króna eðalvagninum mínum. Annars er Corvettan flott og svo A8an líka, kynntist þannig bíl hjá fyrrverandi tengdaföður mínum og hef verið hálfskotinn í Audi síðan.
Kveðja úr höfuðstaðnum.

Nafnlaus sagði...

voðalega er þetta allt hnitmiðað hérna hjá þér Egill !!!

En ég fagna því að næturvörðurinn hefur tekið við sér og bloggað eins og eina færslu!!!

mbk

diddi luv

Nafnlaus sagði...

Já þetta er gott.
Það var mikið að maður nennir að lesa eitthvað af þessum bloggum vina sinna.

Unknown sagði...

Haha eru allir komnir með leið á umhverfisþusi Björns Arnars? Næturvörðurinn er einn af mínum uppáhaldsbloggurum en bílamál eru langt út fyrir mitt áhugsvið enda meðlimur í samtökum um bíllausa lífsstil.

En að öðru, við vorum að fara í gegnum kassa með búslóðinni okkar og rákum augun í videospólu með Rokklingaskólanum. Björn vildi hana feiga en ég laumaði henni í kassann aftur. Hver veit nema þið félagarnir horfið á hana á góðri stundu.

Unknown sagði...

haha eru allir orðnir leiðir á umhverfisþusi Björns Arnars? Næturvörður er einn af mínum uppáhalds bloggurum en ég

Nafnlaus sagði...

Hverjum hefði þó dottið í hug fyrir 10 árum að Mökkur myndi breytast í bíla-, mótorhjóla- og jeppaklúbb?

Þessu verður svarað af mikilli hörku á næstunni með bloggi um reiðhjól, hjólamenningu og fleiru í þeim dúr. Ég veit að slíkt þykir mjög hallærislegt á Íslandi, og verður líklega enn um sinn næstu 10 árin a.m.k. en bið menn um að anda í gegnum nefið og vera víðsýnir.

ES Stöðulfell = Kristín Björg

Nafnlaus sagði...

Þið getið huggað ykkur við að þið eigið marga skoðanabræður, sér í lagi í Rússlandi og Kazakstan.

Nafnlaus sagði...

Var Björn í Rokklingonum ?

Nafnlaus sagði...

Fín færsla um nytsemi bíla. Upprunalega íslenska orðið yfir bíl er sjálfrennireið, þannig var automobile þýtt á íslensku í árdaga. Fagurt orð og hæfir svona glæsilegum sjálfrennireiðum.
Kv. prófarkalesarinn