miðvikudagur, ágúst 20, 2008

Af bílum

Einsog allir vita eru bílar okkar þarfasti þjónn. Bíll er þó ekki það sama og bíll.
Frakkar eru náttúrulega sjéní og það nýtti næturvörður sér. Bílinn fékk hann að gjöf frá vægast sagt góðhjörtuðum plötusnúði hér í borg.
Óli skellti sér á fagran amerískan kagga.
Lárus að þrífa enda eigandi BMW.
Jói skellti sér á splunkunýjan þýskan eðalvagn enda með dýran smekk, feikidýran smekk.

Glæsileg nútímakerra bliknar í samanburði við þann gamla. Svíar hafa löngum verið leiðandi í straumlínulagaðri hönnun glæsibifreiða.
Frábær
Frábær
Ekki náðist mynd af pick-up Hrannars, hlaðbak Didda né Nissan Hödda svo ekki sé talað um jeppaklúbb úlfanna. Bíll Óla Stef þótti ekki nógu góður fyrir vefsíðuna. Um reiðhjól Björns verður kannski rætt í framtíðinni.

fimmtudagur, ágúst 07, 2008

Sjóstangaveiði

Fórum fjórir að veiða og fengum fjóra fiska. Óli fékk þá alla. Dapur árangur en allir komu sáttir að höfn. Kris-b á bátinn sem heitir Sæja.

Grímur sigldi af festu og sýndi gríðarlega yfirvegun þrátt fyrir erfiðar aðstæður. Gaman að fermingarkirkja okkar Gríms sést út um gluggan þegar hann sigldi út Hafnarfjörðinn.

föstudagur, ágúst 01, 2008

Talking Heads.....!


Sat ásamt nokkrum mönnum við öldrukkju eftir krefjandi golfhring. Vorum að spá í músík. Komumst fljótlega að því að This must be the place væri eitthvert mest "alt muligt" lag allra tíma, hvað sem það nú þýðir. Hvert er þitt ískalda mat?
  • Fínt í Eurovision
  • Gott í teiti
  • Frábært í eftirpartý
  • ágætt yfir máltíð
  • Þokkalegt í iPod-inn
  • Skemmtilegt í skokkið
Myndbandið er allavega eitthvert það al-bezta..