mánudagur, maí 12, 2008

Mánudags ólga..

Það er hreinlega allt að gerast... Hörður flaug þyrlunni 4405 mílur en næturvörður 4678 mílur.

Samkvæmt samstilltri klukku okkar hér á Sæbrautinni er líklegt, ýtreka líklegt að Höddi hafi átt metið í fimmtán mínútur. Til hamingju með það Hörður.
Metið er í höndum næturvarðar þar sem það á heima.
Er Óli búinn að heltast úr lestinni?
Í hvað er Björn að komast?
Er Lalli farinn að munda músina?
En Tóti?

3 ummæli:

Unknown sagði...

Alveg er þetta dæmigert. það er sama hvað maður gerir. Næturvörðurinn á alltaf svör. Hins vegar ber að nefna að þegar ég var kominn í 4100 stig byrjaði dyrabjallan að hringja á fullu, sem stressaði mig uppúr öllu valdi svo ég endaði með að drepast á fáranlegum stað. Þar var lítill ólalingur kominn í heimsókn.

Næturvörður sagði...

Óli ég skulda þér bjór. Keep up the good work

Nafnlaus sagði...

Já þetta er glæsilegur árangur segi nú ekki annað. Ég er að nota sníp og lélega tengingu en er nú alvarlega að íhuga að fara í vinnuna um helgina þar sem tenging er góð og mús svo ég geti átt séns í menn hér. Ég er enn í kringum 1000 múrinn... Er búinn að benda útlendingum að reyna við metið en hef einungis heyrt 800 úr þeirra búðum enn sem komið er. Er reyndar búinn að íhuga að borga kínverja fyrir að slá metið fyrir mig. B