Chopper er tölvuleikur sem krefst gríðarlegs áræðis og seiglu. Heyrst hefur að gullsmiður hér í borg komi litlu sem engu í verk vegna metnaðs fyrir leiknum. Metið hefur verið sett og sannanir hér með birtar einsog lög gera ráð fyrir. Metið á sjálfur næturvörðurinn enda væri nú varla verið að blogga um málið ef svo væri ekki. Hann er þó maður í það að bjóða mönnum uppí dans. Náist að slá metið verður að sjálfssögðu að mynda verknaðinn og koma honum í réttar hendur.
Þess má geta að hærra skor hefur náðst en án sannana.

Leikinn stórskemmtilega er hægt að nálgast
hér..
2 ummæli:
Já engin sönnun ekkert met.
Ég náði 1979 í gær en drapst vegna truflana í nettengingu, ég hef spilað þennann leik í tvo daga en flugmaðurinn hefur legið á honum lengi og þykist einhver kall.
Minnir mig á ákveðinn mann sem stundar funspot(Billy mitchell)
Það er komið nýtt met.
Ótrúlega tæpt 2859 eða 2 stigum meira en það gamla.
snnanir liggja á Laugavegi 54.
takk fyrir. Billy Stef.
Skrifa ummæli