
Í ljósi þess að Grímur hefur kvatt þjóð sína og haldið út til náms fannst mér tilvalið að skerpa aðeins á málunum í sænsku deildinni. Sex leikir eftir og gríðarleg spenna. Lalli og Höddi halda með Gautaborg, ég held með liðinu hans Sigga Jóns en man ekki alveg hvað það heitir og Grímur er harður Elfsborg maður. Skilst að Teddi sé AIK maður en ekki viss. Teddi, hvað heitir aftur lið Sigga Jóns? Manstu það?
1. Djurgarden 20 10 5 5 29:19 35
2. Elfsborg 20 9 7 4 32:21 34
3. AIK 20 10 4 6 27:21 34
4. Gautaborg 20 9 6 5 34:21 33
5. Kalmar FF 20 10 2 8 29:27 32
6. Halmstad 20 9 5 6 28:26 32
7. Malmö FF 20 7 7 6 24:19 28
8. Helsingborg 20 7 6 7 33:27 27
9. Hammarby 20 8 3 9 25:21 27
10. Gefle 20 6 6 8 18:22 24
11. GAIS 20 6 6 8 19:27 24
12. Örebro 20 4 7 9 19:32 19
13. Trelleborg 20 4 5 11 18:31 17
14. Brommapoj. 20 4 5 11 15:36 17
Þvílík spenna maður.... Góða helgi.
Ps. Hrannar er fylgismaður Trelleborg..
13 ummæli:
Siggi Jóns þjálfar Djurgården. Mitt lið er Jönköping Södra sem siglir lygnan sjó um miðja aðra deildina.
Af þessum liðum í efstu deild þá verð ég að segja Djurgården. Það er vegna þess að Sölvi Geir Ottesen leikur með þeim. Nú þekki ég Sölva ekki neitt en hann er náfrændi Fannars vinar míns sem lést langt fyrir aldur fram og Sölvi var í miklu uppáhaldi hjá honum. Því heiðra ég minningu vinar míns með því að styðja frænda hans.
Svona er maður mjúkur innan við beinið.
Að spurningu dagsins: haven't got a clue.
Og hvað er Grímur að gera í tékklandi??? er hann að læra eitthvað inná kvikmyndaiðnaðinn???
Go Grímur.
Jæja er þetta ekki orðið nógu langt.
Skál.
Jebb, Grímur er við kvikmyndagerðarnám.
Ok ég styð semsagt toppliðið Djurgarden..
Siggi Jóns sá um Kaplakríkavöll um árið og ég vann við að slá völlinn. Siggi var feikilega fínn náungi og fær því mitt atkvæði.
Ja eg held med Trelleborg...
en svarid vid spurningunni mun vera Dubai i sameidud arabisku furstadæmunum ?? þetta kennileiti minnir einna helst a flottasta hotelid þar ...
Nei Hrannar nei. Röng heimsálfa en samt ágiskun sem minnir mann á reynslu og dyrfsku þína. Þú hefur ekki sagt þitt síðasta í þessari tilveru.
Þetta er í Afríku. Það sé ég á loftslaginu. Góður. Ég skýt á Nígeríu.
Ekki var það Nígería.. Skemmtilega skotið þó. Góða nótt
landið er ástralía, borg Brisbane eða Melbourne
Röng álfa Einar minn.
Þetta er Dakar, Senegal. Kannski full erfitt fyrir Norður-Evrópubúa. Anzi hræddur um að þessi síða/leikur sé að gefa upp öndina rétt einsog fótboltaklúbburinn minn...
Sjáum samt hvað setur.
Ps. Einar, láttu þér ekki bregða ef ég fer að venja komu mína heim til þín. Var að pæla í að reyna efla okkar vináttu hvort sem þér líkar betur eða verr. Langskólagengnir menn einsog þú geta alltaf gefið manni nýjan vinkil á tilveruna.
Kom reyndar á heimili þitt í sumar. Rétt á meðan Grímur var við völd og þú fyrir vestan. Eitthvað bogið við það.
Jú ætli ég komi ekki bara fljótlega
Ja þýðir það ekki að ég fái stigið, hehehe. Ég var allaveganna í réttri heimsálfu. Spurning um að þú náir sambandi við Grím og yfirheyrir hann um nýja landið og birtir afraksturinn hér á síðunni. Þessi síða er svo skemmtileg að hún getur ekki gefið upp andann.
Vil benda mönnum á nýtt og skemmtilegt blogg. Stories from Prague. Smelltu þessu nú í linkana þína kæri Næturvörður. http://grimsli.blogg.is/
Sæll minn kæri næturvörður, ég var að lesa af einni af mínum uppáhaldsbloggsíðum og þar var bloggarinn "klukkaður" Veist þú hvað það er? Ef ekki kynntu þér það þá og já svaraðu "klukkinu" meiri upplýsingar fær þú á http://deetheejay.blogspot.com/
Góðar stundir...
ég neyddist til að kjósa man utd sem líklegasta lið til að vinna deildina eftir vonbrigði gærdagsins. ef rafa hysjar ekki upp um sig deildarbuxurnar þá er ekki möguleiki að vinna dolluna.
Þetta blogg hefur verið lagt niður. Vinsamlegast leitið annað yður til dægrastyttingar.
Skrifa ummæli