
Vildi bara benda fólki á fegurð Hafnarfjarðar. Þarna ala ansi margir manninn og það við hreint frábærar aðstæður. Hafnfirðingar hafa ekkert í aðra kaupstaði að sækja. Þarna blómstrar menningin og hefur atvinnulífið aldrei verið fjölbreyttara. Vonandi verður þetta ykkur vakning og ástæða til flutnings.
Mér fannst ekki taka því að spyrja um nafn bæjarins, Teddi hefði getað það um hæl.
Ps. Þegar gleðisveitin Partý saung um skip er sigldu á sænum var víst verið að syngja um fögur þriðjudagskvöld í Hafnarfirði. Vel ort það.
6 ummæli:
http://keilir.is/index.php?option=com_content&task=blogcategory&id=22&Itemid=80
http://www.flickr.com/photos/dalli/895460456/in/set-72157601017817522/
Aldrei hef ég búið í Hafnafirði en ég hef margt heyrt gott um bæinn. Ég gæti vel hugsað mér að búa í Hafnarfirði í framtíðinni. Sérstaklega í gamla bænum eða hvað hann er nú kallaður.
Annars þykir mér nú alltaf vænst um Eyjafjörðinn minn.
Aldrei áður hef ég heyrt Garðbæing tala svona vel um þennan bæ. Undarlegt...
Já Teddi ekki loka á hinn alvöru hafnarbæinn á Íslandi... Þú mundir finna þig vel enda nú þegar kominn í innsta hring ágætra drengja.
sidan eg flutti aftur heim i fjordinn .. hef ekkert farid i kaupstadinn ...enda ekkert þangad ad sækja
Skrifa ummæli