fimmtudagur, apríl 26, 2007

Gertrude und Teddi

Ótrúlegt hvað Gerður náði að hrista upp í lýðnum en hvað varð um Tedda? Efast um að síðan þrauki slíkan missi. Sjáum hvað setur.
Spurt er um tónlistarmann en hver er hann?


Jú það er rétt; Liverpool-menn töpuðu í gær. Chelsea voru feikilega öflugir og fengu kannski ögn minna útúr leiknum en Kalli Cooper var að vona. Óneytanlega erfitt fyrir Liverpool að gera góða hluti í seinni leiknum vitandi það að fái þeir mark á sig er gamanið nánast búið. Ég hef trú á alls kyns ævintýrum en þó ekki gegn Chelsea.
Höldum hreinu og setjum tvö!!! allavega eitt og sigrum svo.

Ótrúlegt hvað bleyðurnar frá Moskvu geta hangið á pistlinum sem ég panntaði en fæ ekki. Annar lætur framann ganga fyrir og hinn er að hjálpa hinum. Sumir væru búnir að láta suma segja sumum hvaðan sumir já og þetta með nafnið á verzlun Ólafs, engar hugmyndir. Ég hringdi í hann sigri hrósandi með nafnið Skart en Óli kenndi það við föndur og hafði líklega rétt fyrir sér. Egils gull hefði verið gott en gengur ekki. Það er kannski að Gerður komi með hugmynd, slíkt er sjálfstraustið..? Já eða Friðgeir vinur minn Ragnar sem svífst jafnan einskis í samskiptum sínum við náungann? Svo höfum við alltaf Björn sem mun spá, pæla og finna nafn næst þegar hann joggar um stræti Lundúna.

Annars þakka ég Hrannari fyrir dirfsku og djörfungu í spurningavali sínu. Það segir sig nánast sjálft að Hössi svindlaði ekki, hann er bara on fire einsog svo oft áður

14 ummæli:

Unknown sagði...

Jæja þarna sáuðið sennilega við mér, en segi samt ray lamontagne

Nafnlaus sagði...

Ertu ad tala um myndina af Cat Stevens herna? ja eda Yousef "hammed"

Nafnlaus sagði...

rangt

Unknown sagði...

þá er þetta John Bonham

Nafnlaus sagði...

Rétt minn kæri.

Diddi! er Hössi að fá allan vinnustaðinn til að hjálpa sér einsog Hrannar gerði alltaf hérna um árið?

Nafnlaus sagði...

Nei drengurinn er einfaldlega heitur þessa dagan bæði í spurningarkeppninni og svo náttúrulega í kellingunum...

Unknown sagði...

Egill, ég hélt nú að þú værir síðasti maðurinn til að fara að gruna mig um svona framgöngu.

Nafnlaus sagði...

SVINDL..........

Nafnlaus sagði...

Já nei þetta var allan tímann skot á Hrannar, ég notaði nafn þitt einungis til að koma skotinu að.

Annars gleðilegan flöskudag..!

Nafnlaus sagði...

Eg hef aldrei fengid neina hjalp... svo þad se a hreinu

Óli Stef sagði...

Jó,það er komið fokking nafn loksins,enginn fær verðlaunin en ég verð með happdrætti í opnuninni.Og nafnið er basic,hvíldi alltaf undir hjá mér,Óli Stef er nafnið og ekkert meir,svo verður Jói með lítið læknaskilti úr messing sem segir að þarna sé hljóðfærasmiður á ferð einnig.Ég vil þakka fyrir allar misgóðu hugmyndirnar sem bárust inná borð til mín.Nöfnin 'Aulagull,Gull og hass og Óli typpi fá semsagt ekki í gegn því miður.

Nafnlaus sagði...

óli stef gullsmíði ...

Nafnlaus sagði...

Ég sé það að síðan er að nánast sjálfdauð. Það er spurning um að ég fái lánaða kindabyssuna hans afa og gefi henni náðarskotið. En að öllu gamni slepptu sýnist mér síðan bera sig ágætlega þó mín hafi ekki notið við að undanförnu. Tölvugarmurinn minn ákvað að gefast upp og því hef ég ekki verið jafn duglegur við að hanga á netinu. Ég er jafnvel farinn að taka smá lit.
Ég mun þó vonandi fljótlega komast á fullt aftur og reyna að stöðva sigurgöngu Hössa.
Til hamingju með búðina Óli.
Kveðja frá Svíþjóð.

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir það Tedi minn.