mánudagur, apríl 30, 2007

Finnan

Úti er sumarlykt og Hössi er on fire. Semsagt ekkert nýtt undir sólinni.
Liverpool eru að spila á morgun og verða tólf gegn ellefu Chelsea mönnum. Ég má hundur heita ef mínir menn vinna ekki og fara alla leið.


Önnur myndin er eldr en hin en hver er maðurinn?

18 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Gæti verid ad her se talad um Andersen H.C erlendur rithofundur

Unknown sagði...

ekki er þetta Ian McKellen á slæmum dögum siii ???

Nafnlaus sagði...

Ég skýt á Samuel Beckett.

Nafnlaus sagði...

Allt rangt.
Já Anfield stóðst enn eitt prófið.
Nú er bara spurning hvort við fáum rematch eða blóðugan M.U. leik...

Nafnlaus sagði...

Já Anfield klikkar ekki. Djöfulli finnst ég mér kannast við þennan mann sem þú spyrð um en ég bara kem honum ekki fyrir mig. Er þetta nokkuð Sir John Gielgud?

Unknown sagði...

Shit Gylli, þetta er alltof hart. Ég segi það sama og Hrannar segir yfirleitt alltaf og Teddi sagði núna. Ég kannast skelfilega við han, það bara kemur ekki. Hentu nú inn einni vísbendingu.... Ha kommon Gylli þar sem ég veit að þér líður vel í dag...

Nafnlaus sagði...

Vísbending? Já það er nú stundum svolítið erfitt að giska á þessa menn ef maður hreinlega þekkir hann ekki.
KK saung um þennan rithöfund.

Unknown sagði...

Nú já, þá er þetta strax auðveldara, Jón nokkur Steinbeck, hann fór þessa slóð...

Unknown sagði...

En já, nú eru þau orðin 5 í röð stigin. Gaf ykkur mikinn tíma til að safna áður en ég hóf keppni og ef mér telst rétt þá voru efstu menn með 4. Þeir eru margir sigrarnir sem ég þarf að fagna þessa dagana. Vegna þess að ég fæ ekkert nema samviskubit yfir því að niðurlægja vini mína, þá lýsi ég hér með yfir að ég hef ákveðið að draga mig í hlé og er hættur þessum leik.

Eitt af lögmálum þessa lífs er að þeir sem minna mega sín eru fljótir að fara af stað samsæriskenningar í skjóli öfundar og því tel ég öllum best að ég kalli þetta gott og einbeiti mér að öðru.

Takk fyrir mig.

You will never walk alone.
FORZA MILAN !!!!

Nafnlaus sagði...

Þegar Liverpool vinnur bikarinn í annað skipti á 3 árum þá mun ég ganga í deildina á ný, stig verða núllstillt og þú munt ekki eiga hægt um stig lengur Reykur.

Það er allavega ánægjulegt að búið er að úrskurða um eftirfarandi fótboltamenn:
1. Gerrard > Kaka > Lampard >= Scholes
2. Reina > Chek >= Dida > Van der Sar

Í leiknum í gær, í úrslitaleiknum 2005 og nú í kvöld hefur þetta orðið klárt.

Óli Stef sagði...

sumir hafa annað og betra við tímann að gera Hössi minn enn að reykja cubuvindla og liggja yfir einhverri nörda spurningakeppni.

Unknown sagði...

Já það er rétt Óli minn, en ekki ég, er meira fyrir að njóta lífsins.

Nafnlaus sagði...

Strákar strákar, verið rólegir. Hvað segiru Hössi? bara hættur. Er Diddi búinn að ná þér á sitt band?
Annars telst mér til að þú sért með fjögur stig, er það rangt?
Annars var þessi vísbending kannski full þægileg, minnti á eina af gjöfum Hrannars.

Nafnlaus sagði...

Já Egill minn það er rangt. Stigin eru 5. Miami, Tokyo, Graz, John Bonham og John Steinbeck....

Nafnlaus sagði...

Bíddu tveir John...! Virðist vera einhver maðkur í helvítis mysunni.
Gæti þurft að skoða þetta eitthvað'

Nafnlaus sagði...

Steinbeck var það heillin. Það er spurning hvað Tom Joad segir um þetta.

Unknown sagði...

Skemmtilegur vefur, lifandi umræða og mikið í gangi.....

Nafnlaus sagði...

Það er kannski leiðinlegt þegar einn maður hefur slíka yfirburði. Þú ert bara allt og góður.