fimmtudagur, mars 15, 2007

Sænsk spurning

Það hlaut að koma að því að Teddi myndi spyrja. Tel ég síðuna hafa fengið atvinnumann í verkið. Hugur drengsins er troðfullur af allskyns visku. Þó tel ég nánast öruggt að spurt sé um Svía en veit þó ekki svarið.
En hver er maðurinn?
Teddi 4
Lárus 3
Björn A. 2
Egill Þ. 2
Restin 1

22 ummæli:

Unknown sagði...

Fékk ég ekki stig fyrir skoska þingið? Það eru breyttir tímar ef menn fá stigið sem googla í stað þess sem kom með rétt svar spurningunni eins og hún var í sínu lokaformi.

Fokk this!

Nafnlaus sagði...

þetta er Ingvar Ikea

Nafnlaus sagði...

Hann heitir fullu nafni Ingvar Kamprad svo þið farið ekki að grenja...

Unknown sagði...

Er þetta ekki eini frægi Svíinn?

Nafnlaus sagði...

Eg var ad fara ad segja ikea kallinn andskotinn hafi þig lárus you beat me too it..

Nafnlaus sagði...

Sko, ef þessi getraun á að fara snúast um það hver er fyrstur að sjá spurninguna og svara þá ættu menn nú aðeins að staldra við.
Teddi minn, þetta er eini fucking svíinn sem fólk veit um, gætir eins sett mynd af Vigdísi Finnboga og spurt hver er konan.

Þetta er ekki leikur atvinnulausra sem geta beðið eftir að spurning dagsinns komi..jesus

Nafnlaus sagði...

Má ég koma með tvær spurningar er með nokkuð ágætar held ég.

Nafnlaus sagði...

Þetta er hárétt hjá Lalla. Ég vissi að þessi væri ekki sú erfiðasta, en ég átti ekki vona á svo snöggum svörum. Og hvað meinið þið með eini frægi svíinn. Hvað með Henke, Zlatan, Ljungberg, Carolinu Kluft, Dolph Lundgren, Astrid Lindgren, Dag Hammarskjöld og fleiri. Ég er móðgaður fyrir Svía hönd.
Ef sú næsta reynist svona auðveld þá verð ég hinsvegar vonsvikinn.

Nafnlaus sagði...

tja og Carl Blix
ákveðnir menn eru bara vælukjóar sem þykjast vita svörin eftir á. Ekki í fyrsta sinn

Nafnlaus sagði...

Svo vil ég benda Birni á eftirfarandi:
"Kilimanjaro: volcanic massif in northeastern Tanzania, near the Kenya border."
(Heimild: Encyclopædia Britannica.)

Nafnlaus sagði...

Svo vil ég benda Birni á eftirfarandi:
"Kilimanjaro: volcanic massif in northeastern Tanzania, near the Kenya border."
(Heimild: Encyclopædia Britannica.)

Nafnlaus sagði...

Já manni er skapi næst að hrifsa stig af besserwissernum/vælukjóanum honum Birni..
þetta gengur ekki..

Unknown sagði...

Vinsamlegast takið mig úr stigatöflunni. Ég mun ekki svara fleiri spurningum hér.

Hvað kilimanjaro varðar þá bendi ég mönnum á að skoða kort eða heimsækja staðinn í stað þess að googla öllum ykkar svörum. Þetta er eins og að segja að Ísland sé jarðfræðilega í Evrópu en ekki í Ameríku. Eða að Hafnafjarðarvegur sé í Garðabæ en ekki í Hafnarfirði.

Unknown sagði...

Vinsamlegast takið mig úr stigatöflunni. Ég mun ekki svara fleiri spurningum hér.

Hvað kilimanjaro varðar þá bendi ég mönnum á að skoða kort eða heimsækja staðinn í stað þess að googla öllum ykkar svörum. Þetta er eins og að segja að Ísland sé jarðfræðilega í Evrópu en ekki í Ameríku. Eða að Hafnafjarðarvegur sé í Garðabæ en ekki í Hafnarfirði.

Unknown sagði...

Þvílíkur hiti sem kominn er í menn ?? Björn Arnar þér er bent á eina staðreyndavillu og þá kemuru með 2 í viðbót, held það sé alvarlega farið að vanta prótein í hausinn á þér. Ísland er jarðfræðilega í Evrópu og N-Ameríku og Hafnarfjarðarvegur er í Garðabæ. Í Hafnarfirði heitir þessi vegur Reykjavíkurvegur. Taktu þig taki maður !!!

Unknown sagði...

Eru menn lesblindir á þessari síðu (taki til sín sem eiga, líka margir heiðursmenn sem hingað sækja). Eða eru þeir kannski bara fullir af dýrafitu sem stíflar allar leiðslur? Það er ekki nóg að vera á móti hvalveiðum Reykur og borða svo djúpsteiktan kjúkling sem hefur verið verksmiðjuframleiddur og át drullu.

Hvað Ísland og heimsálfur varðar þá var það nákvæmlega minn punktur Reykur. Ísland er í báðum heimsálfum og Kilimanjaro er í báðum löndunum - ég viðurkenni þó fúslega að algjör meirihluti fjallsins er í Tansaníu.

Annars skil ég ekki hvað Lalli er stór kall eftir að hafa googlað nafninu á Ikea.

En ástæða þess að ég dreg mig úr keppninni er skýringarlaus stigagjöf þinghúss Skotlands. Það skýtur hrolli niður hryggjaliðina á mér að horfa á samband "Egils" og "LeBig". Eru þetta kannski geðklofar í sömu persónuni? Erfitt er að skýr ívilnun milli þeirra á annan veg.

Nafnlaus sagði...

Ja Björn minn fardu bara ad hlusta á DEICIDE og tilbidja Satan þad fer þer agætlega ....

Nafnlaus sagði...

Hva er nú farið að veitast að mér Björn!

Unknown sagði...

Ja Lárus það má túlka það sem svo að þú hafir kallað mig vælukjóa þegar ég er í rauninni örn.

Hrannar við útkljáum þetta þegar við hittumst yfir pint á mánudaginn.

Nafnlaus sagði...

Djöfull er Teddi búinn að gera allt vitlaust hérna.
Bíð spenntur eftir næstu spurningu.

Nafnlaus sagði...

ja hahahahaha hlakka til ad hitta þig Bjorn minn... bid ad heilsa ad sinni

Nafnlaus sagði...

Ekki var það nú ætlun mín að valda vinaslitum og almennri upplausn hér á síðunni. Hvað stigagjöf næturvarðar viðkemur verður hann sjálfur að svara. Mér þykir leitt að þér þyki að þér vegið Björn og vonandi munu þessi mál leysa sig.
Hvað næstu spurningu varðar þá á ég ekki vona á því að hún verði gefins.
Kveðjur