Jæja Hrannar hefur lokið sér af og stóð sig nokkuð vel í þetta skiptið, aldrei þessu vant. Ég sá að gríðarleg tilhlökkun hefur gert vart við sig vegna tilkynningar minnar þess efnis að Teddi mun spyrja. Á því verður þó bið. Hámenntaður ungur maður frá litlum hafnarbæ á Íslandi kemur fyrst með eina. Hann spyr um heiti byggingar. Gæti reynst erfitt en þannig er þetta bara, ekki alltaf jólin.

Stigataflan er svona:
Lárus 3
Teddi 3
Egill Þ. 2
Björn A. 2
Diddi 1Tóti 1
Styrmir 1
Matti 1
Bear 1
Óli 1
Hrannar 1......
Nú er bara að sjá hvort síða næturvarðar stenst fjarveru þungavigtarmanna á borð við Hrannar, Óla, Hulk og Tóta....?
Allt setur þetta pressu á óreyndan spyrilinn og spurning hvort hann brotni og komi með svarið fyrir aldur fram!!
28 ummæli:
Listasafn ?? humm djofull kannast eg vid bygginguna en hver er hun
Listasafn ?? humm djofull kannast eg vid bygginguna en hver er hun
Þetta er liklegast i Ameriku eitthvad typiskt þeir ad reyna..
svo eg segji listasafn í borg englanna Los Angeles??
Er þetta ekki menningarmiðstöð Múslima í Frakklandi
Er LeBig ekki spyrillinn?
Nei.
Varstu að vonast til að ná honum í makindum þínum?
Think again loser.!
Þetta er nú reyndar svo erfið spurning að ef til vill mætti henda inn aukastigi fyrir land/borg.
Þetta er listasafnið í bilbao á spáni.
Guggenheim
Djöfullinn Óli, ef þetta er rétt hjá þér verð ég æfur. Guggenheim átti að verða næsta gisk hjá mér.
Ef þetta reynist rétt þá eru vel að stiginu kominn.
góð áskigun frá olistef.is en eigi rétt að ég held.
R.A.N.G.T.
Smá vísbending frá spyrlinum.
Þessi bygging er staðsett á Bretlandseyjum.
Í hvaða borg er hún og hvað hýsir hún?
Lestarstöd ?? umm í Newcastle ..
Þessi vísbending er ágæt en bætir litlu við þar sem nú þegar var augljóst að þetta væri í Bretlandi eða fyrrum nýlendu.
Þetta eru höfuðstöðvar maclaren formúluliðs.
Þetta er frístundahús David Becham og Victoriu Becham
Tónlistarhús ÓLa El.REykjavíkurhöfn.hahah
Ég stend á gati líkt og lappalausa konan. Er þetta nýji Anfield kannski? Annars skýt ég á að þetta sé einhver verslunarmiðstöð í Manchester. Trafford eitthvað.
Jæja þetta kannski svoldið erfitt.
Vísbending nr 2.
Byggingin er stolt íbúa þó umdeild sé og undirstrikar "sjálfstæði" þeirra !
Er þetta i wales ??
Hvað er Magga leynigesturinn?
Ég skýt á borg (helmingurinn af spurningunni) cardiff eða Edinborg.
húsnæði er safn eða þinghús.
Þetta er Holyrood í Edinborg sem hýsir skoska þingið.
Glæsilegt og hárrétt ! Leyfi svo næturverði að stjórna stigunum blessuðum.
Takk fyrir mig.
Spurt var: Í hvaða borg er hún og hvað hýsir hún?
Ég var svo sannarlega með það rétt.
Ja, spyrillinn fór sínar eigin leiðir og bjó til/breytti spurningunni. Líklegast neyðist ég til að gefa Birni og Tedda sitthvort stigið. Ætla þó að leggja höfuðið í bleyti og dæma í málinu þegar kvölda tekur.
Þakka spyrli fyrir..
Já ætli það séu ekki sanngjörn málalok.
LeBig var hins vegar heppinn í þetta skiptið að taka mitt svar og hnýta við það. Ég var í vinnu og hafði ekki tíma til að klára svarið almennilega.
Ekkert ósvipað og þegar ég tilkynnti að Kilimanjaro er líka í Kenýa eftir að Lárus kom með Tansaníu, ekkert fékk ég þó stigið þar.
Ætli það ánægulegasta í þessu öllu saman sé samt ekki það að ég býðst til þess að fara á staðinn og gera úttekt á húsinu fyrir Næturvörð. Ég er búinn að panta mér miða 5. Apríl og mun senda skýrslu með mynd til Næturvarðar.
Skrifa ummæli