þriðjudagur, mars 20, 2007

LeBig

Slík voru lætin við síðustu spurningu að réttast þótti að bíða með næstu. Nú er bara að sjá hvort keppnin sé dauð. En hver er maðurinn? http://www.visir.is/article/20070319/LIFID01/103190062

Teddi 4
Lárus 4
Björn A. 3
Egill Þ. 2
Restin 1

20 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Létt coment frá ofurhugunum.
Ferðin byrjaði skelfilega þegar óli stef fattar að ein af töskunum hans varð eftir í bílskotti í Hafnarfirði.
Ósofnir og óskeindir fórum við á milli 25 raftækjaverslana í London í leit að höfuðmyndavél,án gríns þá fundum við farging síðustu svona vélina í Lundúnum svo þið eigið von á videoi um páskana.
Óli er að leggjast í flensu og það er flug til Russky á morgunn.

sjáum hvað gerist.

Nafnlaus sagði...

Þetta er Kennedy brodir... en ef Teddi er ad spyrja þa tel eg þetta vera Olav Palme

Nafnlaus sagði...

Er þetta ekki Henrik Larson í Ikea?

Nafnlaus sagði...

Það má mikið vera að svo að Óli kvarti. Drengurinn er vanur að spýta í lófana og keyra sig áfram.

Tvennt kemur oppí hugann varðandi myndina, Kennedy-meðlimur er annað en það segir mér hugur að þessi sé nú samt með blátt blóð í æðunum.

Semsagt...

Þetta er Georg W. Bush

Nafnlaus sagði...

Óli er ekki beinlínis að kvarta. Miklu frekar líkaminn.

Nafnlaus sagði...

Þetta mun vera rangt hjá ykkur.
Vísbending: Skemmtilegt er frá því að segja að Kennedys kom þó smá við sögu í þessari spurningu. Hljómsveitin Dead Kennedys tók og gerðu "ábreiðu" eitt sinn af þekktu lagi og sungu manninum til "heiðurs" eða réttar sagt sungu þeir lagið líkt og hann væri að syngja. Á "live" útgáfu af laginu fara þeir vel í saumana á því hver maðurinn er.
Vonandi var þetta ekki of ítarleg vísbending.

Nafnlaus sagði...

Var þetta náðarskotið? Er spurningakeppnin látin?

Nafnlaus sagði...

Menn eru e-ð feimnir við þetta og svo eru ansi margir útí heimi.
Leyfumessu að lifa, nægur tíminn..

Nafnlaus sagði...

Þetta er Robert Kennedy aularnir ykkar

Nafnlaus sagði...

Mér þætti gaman að Egill vinur minn Þórðarson myndi giska fyrst síðast spurning var svo létt.
Og nei þetta er ekki Robert Kennedy, né heldur Edward "Teddy" Kennedy bróðir hans.

Sennilega er þessi spurning samt algjörlega út úr kortinu. Það er eiginlega ekki hægt að giska á svarið. Menn þurfa að leggjast í rannsóknarvinnu hvort sem það er að nota Google eða hlusta á allar live útgáfur af cover lögum sem Dead Kennedys hafa sungið.

Nafnlaus sagði...

Er nefnd nokkur kennd við hann? ps. og sælir ég hef nú ekki komið mikið hér við sögu en vonandi mun það breytast?

Nafnlaus sagði...

Sælir,
Jú er búinn að vera á haus vegna vinnu. en þetta er nú léttara en fyrri spurning. Þetta er að sjálfsögðu vinur minn hann Ronald Regan.

Sé þetta ekki hann sem er ekki séns, þá er þetta stórvinur minn hann Gerald Ford.

Mér sýnist að ég þurfi að vera gestaspyrill til að fá alvöru spurningar hinngað..jesus..

Nafnlaus sagði...

Nei þetta er ekki Regan og ekki kollegi hans Ford. Hann á það þó sameiginlegt með þeim félögum að vera bandarískur og dauður.

Ekki veit ég til þess að nokkur nefnd sé við hann kennd en hitt veit ég að í bandarísku réttarkerfi er til hugtak sem kom upp í réttarhöldum yfir þessum manni. Honum varð það á að drepa tvo menn um svipað leyti og við vorum enn í bleium og sumir jafnvel enn í pungnum á pabba.

Eins og ég hef áður sagt þá krefst þessi spurning rannsóknarvinnu.

Nafnlaus sagði...

Jerry Brown?

Nafnlaus sagði...

Þetta er að sjálfsögðu Nixon....
ekki satt stymmi..ha..

Nafnlaus sagði...

Edward Kennedy....

Fínn náungi

Nafnlaus sagði...

Nei og aftur nei.
Hugtakið sem upp kom við réttarhöldin yfir honum myndi á hinu ástkæra ylhýra nefnast "Twinkie vörnin."

Eins og Kampradinn var létt þá er þessi of erfið. Þetta er mistök hjá mér að koma með spurningu um mann sem enginn hefur heyrt um. Ég biðst afsökunar á því.

Nafnlaus sagði...

Er þetta Dan White?

Nafnlaus sagði...

Það er rétt Matti. Dan White er maðurinn.

Dead Kennedys sungu lagið I fought the law um hann. Þeir breyttu textanum aðeins, í stað þess að segja "and the law won" sögðu þeir "and i won." Því Dan White drap tvo menn og hélt því síðan fram að hann hafi étið of mikið af skyndibita og hefði því ekki verið með réttu ráði.

Hann fékk sjö ára fangelsi og sat bara inni í fimm. Hann drap sig síðan rúmu ári eftir að honum hafði verið sleppt.

Nafnlaus sagði...

Ja hérna hér. Matti´s the man...

Gott mál..