Það er gaman frá því að segja að gestaspyrlaspurningar hafa hrannast upp og er það mikill léttir fyrir upptekinn/veikan næturvörð.

Hvert er landið?
Það er kannski að ég noti tækifærið og óski Hrannari og Óla góðrar ferðar en þeir félagarnir eru á leið í skíaferð til Rússlands. Geri aðrir betur. Ah, vonandi var ég ekki að skemma..!
22 ummæli:
Þessi er nú ekki að gefa manni mikið... á maður að kannast við fjöllin? eða skíðamanninn? Ég giska á Nepal.....
Ég segi að þetta sé Ísland og þetta sé mitt ástkæra Hlíðarfjall. Maður sér inn Glerárdalinn á þessari mynd.
Nei LeBig, það er bara of augljóst...
Hrannar nýráðni verður að sjá um að svara að þessu sinni enda spyrillinn. Ætli hann sé ekki að drekka vín? enda ungur enn!
Kasmír,minnir mig soldið á north-feisið á tulip tulku.semsagt Indland(Pakistan)
eigi veit ég hvort að nú sé um augljósa villandi vísbendingaspurningu að ræða en ég giska á Voralberg Österreich wo ich habe gewohnt und geskiht
mags gut-- lieblings grussen frau gudjonsdottir
Nei nei og aftur nei.....RANGT
þid hafid 8 daga til þess að svara..
Gaman hefði það nú verið ef þetta hefði verið úr Hlíðarfjalli. Útsýnið frá Hlíðarhryggnum til suðurs er svipað og á myndinni nema fjallstopparnir í bakgrunni eru ekki eins.
Ég skýt á að þetta sé í Japan. Sapparo kannski?
Atlas fjöll í Marokkó eða Colorado í BNA þar sem ég verð brunandi í byrjun apríl ef allt gengur að óskum.
LeBig, Je prends un sandwich au saucisson et un verre de vin rouge... Það er, það hlýtur að vera langt síðan þú sást þúfurnar fyrir norðan ha ha ha.
Minnstu ekki á það ógrátandi. Alltof langt síðan ég sá Norðlensku alpana. Fjarlægðin gerir fjöll blá.
Jæja næturvörður nú verður þú að hætta munntóbakinu fyrst það er farið að draga þig í alvarleg veikindi... En óska þér góðs bata.
Nei drengir þetta er ekki rett ..
Ég giska þá að þetta sé einhversstaðar í Noregi, fyrst að þetta eru ekki þúfurnar fyrir norðan.
Nei ekki rétt..
wrong again ...eða "bozuk tekrar"
eins og þad er vist sagt í heimalandi þessara fjalla
Ég ætla ekki að gera mér mat úr ellefta boðorðinu líkt og Sveikj hér forðum daga með því að googla þetta máltæki. Hins vegar hljómar þetta austantjaldslegt svo maður miði við fyrrum heimsskipan. Ég skýt á að næturvörðurinn hafi verið að strá ryki í augun á okkur með þessu Rússlands kommenti og því segi ég að þetta sé Rússland.
Já eða Prússland?
Svo er reyndar ekki en ég hvet óreyndan spyrilinn til að koma með einhverja skemmtilega vísbendingu til að hleypa smá lífi í menn í upphafi erfiðar vinnuvinku!!
JÄ þetta hljómar vissulega austantjaldslegt. ÉG segi því Kazakhstan eða tyrkland.
Þetta er komid ..þetta var landið Tyrkland... Shabaaaaa... postadu nu spurningu 3
Þeta er miklu skemmtilegra svona Björn.Er það ekki.
hvad finn eg einhvern google fnyk af svari Björns ??
Þetta var nú nánast gefið eftir vísbendingu Hrannars.
Er hættur að nota Google eftir regluumræður um daginn.
Hef annars ágætan bakgrunn í Tyrklandi. Ég var á leið til Tyrklands í fyrra en svo breyttist það í Kenýa, á líka tyrkneska vinkonu.
Á tengdum nótum: Þessa dagana er nýtt æði að byrja hjá mér, að heimsækja lönd án þess að heimsækja þau. Ég verð því t.d. funheitur í höfuðborgarspurningum.
Skrifa ummæli