Sakna spurningaleiksinns”.
E.Þ.
Já það er náttúrulega ömurlegt að byrja efnilegt ár á því að taka út lið sem gríðarlegrar vinsældar hefur notið. Reyndar mætti fjárans stigataflan vera örlítið nákvæmari. Líklegast mun ég birta spurningu áður en vikan er úti og halda utan um árangurinn.

Næturvörður hefur verið í erlendu verkefni. Hef kynnt mér líf og leik fólks í litlum bæ rétt suður af þeirri yndislegu borg Luton.
England er of stórt verkefni fyrir óreyndan næturvörð. Veit bara ekki á hverju ég ætti að byrja..! Hér tala allir útlensku og hafa lítinn áhuga á ungum dreng, óvönum útlandinu. Þó kom það mér á óvart hversu mikið Bretinn hefur fríkkað. Maður heyrði oft talað um að það hlyti að vera einhver andskotinn í vatninu hér en ég mun tala máli Bretans ef um útlit verður rætt. Einnig hélt ég að maturinn hér væri vondur en svo er nú aldeilis ekki. Reyndar líður ekki sá dagur að maður fær sér franskar kartöflur eða bara kartöfluflögur en þær njóta gríðarlegra vinsælda með mat hér. Það líkar næturverði ekki.
Ósjaldan hugsar maður til Egils Þonn sem stundaði nám hér um árið og átti góðu gengi að fagna. Jón Þór (cpt) kemur einnig fljótlega upp í hugann en þeir félagar hafa löngum borið merki Englands á herðum sér og barið í borðið ef illa er talað um te, Blair og rautt skinn!
Þó vil ég gerast svo djarfur að eigna Birni Arnari landið. Hann ásamt unnustu sinni hefur ekki bara hampað Hugh Grant og enskri menningu heldur stigið skrefið til fulls og keypt sér stað til að búa á á Englandi. Geri aðrir betur. Hvort mundiru vilja búa í London eða Grafarholtinu?? Einmitt..

Annars er næturvörðurinn í þessum rituðu orðum að bíða eftir lífrænni máltíð og húsbóndinn er að panta matargerðarnámskeið í Marokko. Daman er að elda og næturvörðurinn sér um að skemmta enda með ískalt ölið sér til hjálpar.
2 ummæli:
Magnad þykir mer ad sja hve mikid Næturvordurinn hefur þroskast og dafnad vel sem penni, adrar eins greinar hef eg ekki lesid og spurning hvort ekki liggi vel vid hoggi og hætta a toppnum leggja flugid a hilluna og taka starf frettasnáps á "Blaðinu" ?
Ég hélt að ég hafði kommentað hér inn í gær en það virðist ekki hafa tekist hjá mér.
Ég óska næturverðinum heilla á erlendri grund og það er gott að sjá að það eru aðrir að gera það gott í útlandinu heldur en ég.
Og ef ég ætti að búa í Englandi, þá kæmi náttúrulega bara einn staður til greina. Það væri náttúrulega heillandi hafnarborgin Liverpool.
Og helst í næsta nágrenni við Anfield. Eða þá í skotfæri við Goodison Park.
Kveðja frá Svíþjóð
Skrifa ummæli