
Ég man það einsog gerst hefði í gær þegar árið 1987 gékk í garð. Þá komu sprengjurnar aftur niður í fallhlíf og ég hikaði ekki við að hlaupa kílómeter eða tvo til að endurheimta brenndan öskupung brosandi út að eyrum.... Þetta voru ansi góðir tímar. Almennilegur vetur úti, fullorðna fólkið ekki í einhverju bjórgutli og náttúrulega Duran Duran. Ég reyndar snobbaði fyrir blindum píanóleikara og nördin héldu ekki vatni yfir Wham. Gott ef ég fékk ekki Cocktail-kassettuna í skóinn.

Aðal jólagjöfin var fótanuddtæki og ferðakassettutæki. Ég man ekki betur en að skaupið hafi verið magnað þetta ár. Machintosh konfektið var í sínum gamla búningi, töluvert betra en það rusl sem selt er í dag.... Gos var selt í 1,5 ltr. glerflöskum þannig að ekkert óbragð var af drykkjum þess tíma.. Don´t worry, be happy hljómaði töluvert betur í forláta kassettutækinu en electrónískt rusl gerir í gljáfægðum iPodnum nú á dögum.
Í dag tuttugu árum síðar hafa tímarnir nefninlega aldeilis breyst.. Bubbi Morthens valsar um sem virtur maður og Madonna er orðin móðir. Fólk rétt stingur tungunni í rauðvínið sitt á milli þess sem það talar í farsímann sinn skítandi uppá bak í öllu sem skiptir máli og er bara yfir höfuð hund leiðinlegt...??? Í dag ertu ekki maður með mönnum nema hafa fíkniefni á ferilskránni og helst með meiraprófið í einhverjum tölvuleik sem er svo öflugur að þú getur alveg eins lifað í gegnum hann.....

Ég þekki einn í eldri kanntinum sem henti skólatöskunni sinni á eldhúsborðið sex ára gamall og sagðist ekki nenna þessu kjaftaði: "ég er farinn á sjóinn" sagðann og móðirin sá víst eftir kauða niðrá höfn.... Sá hinn sami er búinn að hanna útivistarsvæði, gera út á síðutogurum, verja okkar æðstu pósta og allt sem hugurinn girnist. Líklegast er ég búinn að tapa þræðinum, býð því gleðilegt ár og sendi áramótakveðju fyrir árið -----2007-----
Næturvörðurinn
15 ummæli:
Fara í skóla og missa af launapakkanum....nei takk, ekki eins og er.
Gleðilegt árið vinur!
Ja jeg er oprigtig enig med dig natvægter. In de firserne mennesker gå på gåbe men ikke på sine bil over det hele. Og man kunne spise køt fordi det var helt uden indhold af kemikalier og de progressiv party havde ikke afprøvet at ødelægge den islandsk laks bestand med laks fra dambrug.
Bjørn Arnar
Já þetta vekur upp nostalgíu. Ég var nörd en hlustaði samt ekki á Wham og ekki heldur Duran Duran. Ég hlustaði aðalega á hundagjá, lækjarnið og önnur fögur hljóð sem heyrast í sveitinni. Og svo Iron Maiden og ACDC þegar ég var með eldri bróðir mínum eða bræðrum mömmu. Það sem ég sakna mest af öllu er allur snjórinn. Ég hugsa til þeirra stunda þegar yfir öllu lá 3 metra jafnfallið snjólag með söknuði.
Nýárskveðjur frá Svíþjóð.
P.S. ég var svo diplómatískur að ég kaus sjálfan mig í könnuninni, en samt ekki nema einu sinni.
úúúú i wanna take you too the cocomo .. ...Þvílikt ár sem 87 var..í þá daga þekktist ekkert sem hét mánudagsþunglyndi vissi bara ekki hvad þad var ?
Ég hlustadi nu mest á Bruce Springsteen "Born in the USA í þá daga enda tiltörulega nybuinn ad fá plötuna ad gjöf frá systur minni...
einmitt hvar er snjórinn ?
Egill eg vil pistill um hinn fagra bæ Luton . í stóra Bretlandi.. er þad hægt ?
Ja, þú segir nokkuð. Sjáum hvað setur!
Egill þú varst ekki nálægt því að geta hvað gerist fyrir mig á árinu í þessari könnun þinni. Líklegt er að ég gangi til liðs við hóp sem kallast the Black Hebrew Jews sem eru ´strongly eco-conscious´.
Hvað meinaru ég??? Ég hef ekki verið að velja þig.. See ya
Luton pistill, hvernig væri það
enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur..ha
Sakna spurningaleiksinns.
Er egillinn svona bissí? á djamminu i Luton, shiiiit.
hvernig eru breskur stúlkurnar, undurfagrar þarna í Luton vænti ég.
Hvar er spurningaleikurinn, ég leiddi ef ég man rétt á skortöflunni. Annars man ég eitt sem gerðist 1987, JÓ bekkurinn fræknu fékk öflugan liðstyrk þegar kynntur var til sögunnar danskur drengur í hummel galla að nafni Matthias. En fyrir voru í bekknum snillingar á borð við sjálfan mig, Egill Þ, Jón Þór, Árný og Sunna....
Þad hlaut ad vera .... ekki furda ad drengurinn talar svona bjagaða íslensku
Who knows where to download XRumer 5.0 Palladium?
Help, please. All recommend this program to effectively advertise on the Internet, this is the best program!
Happy Fresh Year[url=http://juvebalo.tripod.com/map.html] one! :)
alesse birth control active ingredients http://surveys.questionpro.com/a/TakeSurvey?id=3418850 alesse birth control acne reviews [url=http://www.world66.com/member/alesse_b5ri4svcv2h/] years alesso wiki[/url] alesse 21 birth control side effects will alesse birth control make me gain weight alesse birth control cost canada
mamoleptino321
generic alesse birth control side effects http://surveys.questionpro.com/a/TakeSurvey?id=3418811 birth control alesse [url=http://flavors.me/alesse_fittictmistbers1980] alesse acne control[/url] alesse pillola alesse 21 birth control reviews alesse reviews
http://showandtellfilms.com/blog/?p=21#comment-151562 http://jamesstjames.net/2009/08/07/swa-online-v-t-01/#comment-4126 http://mafioz.ru/news-add.html http://www.ocabertaso.com.br/blog/2012/06/mao-na-massa/#comment-2007 http://www.mar.to/cgi-bin/nextbbs.cgi?mode=form2&pass=%3Cbr+++++++Result:+%F1%EB%E8%F8%EA%EE%EC+%E1%EE%EB%FC%F8%E0%FF+%F1%F2%F0%E0%ED%E8%F7%EA%E0,+%ED%E5+%E4%EE%EA%E0%F7%E0%ED%EE;+%F3%F1%EF%E5%F5;+BB-%EA%EE%E4+%ED%E5+%F0%E0%E1%EE%F2%E0%E5%F2;
pilule alesse acne http://surveys.questionpro.com/a/TakeSurvey?id=3418678 alessi grow watch price [url=http://flavors.me/alesse_tuallladcucall1976] prof edoardo alesse[/url] alesse birth control acne treatment alesse birth control acne reviews alesse 28 oral side effects
Skrifa ummæli