
Spurt er um söngkonu????? Diddi vinur minn er þaulreyndur í henni en
þó er ég ekki viss um að hann átti sig sjálfur á því. Sjáum hvað
setur!!, ekki það, hann kommentar aldrei. En hann gaf mér bíl, það
kunni ég vel að meta. Nýjasta vandamálið á þeirri afurð er miðstöðin.
Hún hefur ekki við köldum blæstrinum sem kemur inn undan framrúðinni
mín meginn. Þó getur maður komist hjá mestu loftkælingunni með því að
keyra varlega. Þaðan kemur veghljóðið líka sem græjurnar hafa varla
við. FM-loftnetið er ónýtt eða sambandsleysi á leiðinni. Hann er
bremsulaus, missti pressuna öðru meginn en bremsar mjög vel hinu megin
sem reynist ekki nóg til að stöðva bíl. Fyrir vikið keyri ég varlega.
Svo má ekki á miklu ganga svo CD diskurinn hiksti og taki pásu þannig
að ég keyri líka varlega útaf cd-spilaranum. Maggi hvíti ætlar að gera
við bremsurnar fyrir tíu þúsundkall en ég mun halda áfram að keyra
varlega. Nú er aðal höfuðverkur minn hvort ég eigi að koma honum í
gegnum skoðun í feb og fara alla leið í sambandinu maður og bíll. Ég
hef löngum tengst bílum mínum, elskaði til dæmis Daihatsu Charade´88
bifreið mína sem entist mér í rúm fjögur ár. Það samband endaði þannig
að frambrettið var orðið það slæmt að það þeyttist pollavatn á
bílstjórann sem er þreytandi til lengdar og fjármál mí leyfðu ekki
endalaus sparslkauð. Var reyndar að spá í að nota hann á fallegum
tillidögum einsog tíðkast gjarnan meðal bíleigenda. Ég hef ekki tamið
mér að skipta um bíl einsog nærbuxur einsog bílskúrsbræðurnir og
Hössi. Allavega spurningaleikur næturvarðar er kominn á fullt og gaman
að segja frá því að Hrannar leiðir með eitt stig. Því má við bæta að
Hrannar er löngu kominn með leið á Rangernum sínum. Skil ekki hvað
glæsilegur Ford er að gera með svona gaurum sem kunna ekki gott að
meta.
5 ummæli:
þetta er Billy Hollyday
Á að sjást einhver mynd? Ég sé allavegana ekki neina og því skýt ég bara á einhverja söngkonu. Celene Dion
Ok, prófaði að fara aftur inn á síðuna og þá sást myndin. Sennilega er þetta Billy. en ég giska samt
á Aretha Franklin.
Þetta er svertingi, svo mikið er víst. Varðandi bílinn er ég til að mynda í stökustu vandræðum. Ef ég fæ mér nýjan bíl þarf ég að þrífa hann og passa mig á að reka hann ekki í. Hef átt Hestin í fimm ár og aldrei lent í neinu. Konan er auðvitað Brimrún
Nei nei nei þetta er hun Nina Simone... nema þetta sé Ellen Kristjáns... þær eru svo keimlikar
Skrifa ummæli