Það er gaman frá því að segja að sjéníum hefur fjölgað. Hin yndislega tík Ásta sem löngum hefur heillað landann með elju og djörfung sat ekki aðgerðarlaus í sumar. Hún féll fyrir hátt settum rakka við rætur Esjunnar og ól honum nokkra hvolpa. Einn þeirra ber af þegar að lögun og skapgerð kemur en það er hann Spaði. Sögur herma að Spaði hafi byrjað að gelta í móðurkviði og hreinlega krafsað sig út. Hann valdi að sjálfssögðu gen móður sinnar þegar að litarhætti og útliti kom en þess má geta að faðir hans er dökkur yfirlitum og ber ekki nafn. Reyndar virðist Spaði litli hafa fengið eyru föður síns.
Mynd af Spaða aðeins fjórum dögum eftir fæðingu (glöggir lesendur taka eflaust eftir kvenlegri loppu á hægri hönd)
Þrátt fyrir eðalgen Spaða að þá er hann svo gott sem heimilislaus en faðir hans vill víst ekkert með hann gera og Ásta má ekkert vera að þessu.
Konan á mynd gærdagsins er feikifræg og þykir næturverðinum ömurlegt að Diddi sem nánast allt veit um hana hafi ekki séð sér fært að kommenta. Fóstbræður hafa dálæti á henni eða öfugt...!!!!!!!!!
3 ummæli:
Eg myndi taka Spaða að mér EN einnni spurningu er þó ósvarad, þvi heyrst hefur i hundaheiminum að pabbinn gangi undir nafninu Sesar ... og hann og hans afkvæmi vill eg ekkert med hafa....
(frétti þetta frá Kol sem býr upp á holti og hann reid Ástu einu sinni hann tok hann út ádur en hann fékk þad).... úúúííííí
Þetta er myndarhvolpur segi ég.
Já Kolur er sannkallaður frumkvöðull í hundaheiminum..
Sesar reyndi við Ástu á sínum tíma en Ásta talaði um að hann hefði verið of ágengur og kom það mér ekkert á óvart.
Skrifa ummæli