miðvikudagur, nóvember 22, 2006

Bréf til Láru

Eða réttara sagt bréf frá Lárusi.
Næturverði barst kvörtun/fyrirspurn frá Lárusi þar sem kauði hreinlega fór fram á að næturvörður hætti með svokallað "random mode" á könnununum hér til hliðar á síðunni. Ég hyggst koma til móts við minn tryggasta kúnna en hann vill að ég birti niðurstöður jafn óðum í pistlaformi og mun ég reyna að standa mig í því stykkinu einnig.
Síðast var spurt:
Hver er bestur í heiminum í knattspyrnu?
Svona fór sú kosningin:
Kaká 5
Samuel Eto 4
Annar leikm. 3
Ronaldinho 2
Klose,Lampard,Gerrard,Terry,Cannavaro og Henry komust ekki á blað. Ekki veit ég hvern menn hafa í huga þegar þeir völdu annan leikmann...???
Þátttakan verður að teljast ömurleg og niðurstaðan bendir til að þrítugur Almeru-eigandi hafi kosið fimm sinnum en það þarf ekki að taka það fram að einungis má velja einu sinni og mun ég biðja JR að fylgjast með sumum þegar nær dregur nýju ári. Takið nú þátt í nýrri könnun en munið að þitt val er eitt val.

En nóg um rugl. Rakst á öflugar myndir á vefnum. Gefiðessu gaum.
Einnig spyr ég um dýrategund:

12 ummæli:

Nafnlaus sagði...

rostungur

Nafnlaus sagði...

nei

Nafnlaus sagði...

þetta er bjór afkvæmi...

Nafnlaus sagði...

haltu fokking kjafti Egill, ég kaus minn mann einu sinni. Þú skalt bara læra að sætta þig við staðreyndir og til þess að hreinsa mitt nafn þá skora ég á þá sem kusu þennan snilling að gefa sig fram. Líttu þér næst.....

Nafnlaus sagði...

Svo er þetta hin fallega Naked Mole-Rat, sem býr í Afríku og eyðir öllu sínu lífi neðanjarðar, enda staurblind.

Nafnlaus sagði...

Myndin er slæm svo það er líka hugsanlegt að þetta sé moldvörpu ungi.

Nafnlaus sagði...

Nei er þetta ekki þu sem afkvæmi?

Nafnlaus sagði...

Það gefur sig engin fram í Kaka kostningunni......
En dýrið er svaka krútt einsog stelpurnar segja.
Algert ÆÐI!
ooohhhh

Nafnlaus sagði...

Gæti verið doperman hundur?

Nafnlaus sagði...

Ég tel að þetta sé fullvaxið eintak, þá ályktun dreg ég af spenunum á kvikindinu. Nema þetta séu vörtur. Eigi veit ég hvurt nafnið er en hitt veit ég að þetta er algjör viðurstyggð.

Næturvörður sagði...

Rólegur Höddi eða ætti ég að kalla þig Kaká...? Myndin er af mole-rat eða moldvörpu. Sá er skrifaði undir með nafni flugumannsins er Diddi. Skal vera Diddi.
Gaman að segja frá því að ´höddi hefur getað allar líffræðispurningar mínar.

Nafnlaus sagði...

Nei þad var eg sorry gerist ekki aftur ...mer fannst þetta bara svo skondid