þriðjudagur, september 12, 2006

PSV - LFC

Meistaradeildin hefur göngu sína í kvöld og er það vel. Líklegustu liðin eru að sjálfssögðu meistararnir í Barca og svo meistararnir þar á undan Liverpool. Dirk Kuyt verður í heimalandi sínu Hollandi á morgun og kæmi það mér ekki á óvart að hann muni vera munurinn á þessum liðum á morgun.
----------
Sumarið er vægast sagt búið og notaleg þunglyndis tilfinning farinn að gera vart við sig. Ég vildi að ég væri einsog Hrannar, bara þunglyndur á mánudögum. Hvað ætli gleðipillan sem Hössi notar kosti?
----------
Diddi gaf mér Renault um daginn og í gær gaf Jóhannes kokkur mér heimabíó. Ekki amalegt. Svo lánaði hann mér Harmon Kardon magnarann sinn sem ég ætla aldrei að skila. Já maður verður að bjarga sér í þessu lífi og hér eftir mun ég svífast einskis. Það er hvorteðer alltaf hægt að finna sér nýja vini.
----------
Spurningakeppni næturvarðar hefur náð botninum. Ég get svosem reynt að bæta mig en það er nú samt ólíklegt að það takist. Nú mun ég líklega ráðast í starfskynningar á nýjan leik. Höddi hefur tekið nokkuð vel í slíkt og gaman að segja frá því að menn bíða í röðum: Jói Gé, Friðgeir R., Kris-B og að sjálfssögðu handleggurinn eða gullhöndin einsog sumir kalla hann.
-----------

Spurt er um íþróttamann? feikifrægan..!
Að lokum legg ég til að Chelsea verði lagt í eyði... Allavega tapi á morgun.

16 ummæli:

Nafnlaus sagði...

er þetta ekki bara Damon Hill.

Nafnlaus sagði...

er hann fotbolta stjarna ??'

Nafnlaus sagði...

Ekki Damon né fótboltakarl. Annars kann ég illa við nafnleysi

Nafnlaus sagði...

Þetta var eg ....er hann ökuþór ?

Nafnlaus sagði...

Þetta er einhver enskur krikketspilari.
John Smith heitir hann örugglega.

Nafnlaus sagði...

Þetta mun vera maður sem aðeins hefur eitt eista og hjólar að eigin sögn mun betur þannig!!! Lance Armstrong...

Nafnlaus sagði...

Ekki ökuþór, ekki krikket og hann er með tvö eistu.
Þess má geta að þetta er ekkert jafn erfitt og menn virðast halda. Hann er reyndar hættur í sportinu..!!!

Nafnlaus sagði...

Það sést nú á Polo bolnum að þetta er gamall golfari, en nafnið á honum er bara dottið úr hausnum á mér í augnablikinu..

Nafnlaus sagði...

Þetta er náttúrulega ekki besta myndin af kallinum... er þetta er Sergi Búdga, stangastökkvari... rétt?

Nafnlaus sagði...

Þetta er Magnus Wislander hinn feiknafrægi sænski handboltakappi. Það sést á pólobolnum að hann er Svíi

Nafnlaus sagði...

Tenniskappi er hann

Nafnlaus sagði...

Ivan Lendle?

Nafnlaus sagði...

já þetta er ivan. Reyndar sagði ég Lalla það áðan þannig að verið ekkert að hampa honum of mikið......!
gaf honum hint, svokallað tennishint. Gerist ekki aftur.

Nafnlaus sagði...

haaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa
djofullsins fucking kjaftaedi, menn eru her on fire og thad er reynt ad sjota mann nidur med iskoldum kjanaskap!
usssss

Nafnlaus sagði...

Lalli er med minus eitt stig

Nafnlaus sagði...

lárus lárus. Þú veist upp á þig sökina og láttu ekki svona. Annars nefndi ég ekki nafn Ivans en minntist á tennis og þá var málið dautt.