fimmtudagur, september 28, 2006

Landafræðilalli

Lárus hafði rétt fyrir sér í gær og kom það næturverði ekki á óvart. Flestir þóttust standa klárir á kaupstaðnum Bolungarvík, feikifagur staður sem ég mundi þó ekki fyrir alla muni vilja búa á.Í ag er spurt um heiti á einhverju????????
Lárus er líklegur enda frægur fyrir landafræðiþekkingu. Þó tjáði drengurinn mér það að hann hefði ekki ferðast innanlands lengra en til Hveragerðis síðan á Halló Akureyri ´99 eða ´00.. Að sjálfssögðu fær hann mínus í kladdann fyrir slíkt.
Næturvörður hefur unun af landinu sínu enda uppalinn í slorinu á Bolungarvík. Síðast í gær skellti ég mér til Húsafells til tilbreytingar og deginum áður skoðaði ég mig um í Kerlingafjöllum sem og á Hveravöllum. Fyrir rétt rúmri viku ók ég til Þingvalla og lá við sáðfalli enda fátt jafn fagurt og Þingvellir að hausti. Þar hitti ég Bubba og.........
Þann dag í dag er næturvörður á móti Kárahnjúkavirkjun en svo hefur ekki alltaf verið eða ég allavega var ekkert að spá of mikið í málin. Gaman væri að fá álit sjénísins Lalla á þeirri umdeildu virkjun. Þess má geta að grunnskólaganga Lalla var allt annað en glæsileg og hefði ég ekki sett pening undir það að hann mundi valsa um með BS próf í annari hendi og atvinnutilboð í hinni. Hans sérgrein var að þekkja Camel og Winston í sundur á bragðinu. Var nokkuð góður í því. hann reykti ávallt Camel Filters. Næturverði gékk feikivel að fóta sig í lífinu þar til hann kynntist Lárusi. Jú jú Lárus stundaði íþróttir af kappi en hafði unun af að svolgra í sig landa þess á milli og leggja inn gott orð fyrir sjálfan sig við hitt kynið. Hitt kynið hélt aldrei vatni yfir ljósum lokkunum. Eftir á að líta er ekki furðulegt að ungur næturvörður hafi litið upp til drengsins sem kynnti honum fyrir fullorðins íþróttunum að reykja og drekka með nokkrar stelpur hangandi í sér. Reyndar tel ég að leið mín hefði ávallt legið í átt til mikilla skemmtana. Samanborið við flesta mína vini er ég bindindismaður og gaman að segja frá því að Lárus hefur farið svipaðar slóðir í skemmtanalífinu en hann verður ávallt vinsæll hjá hinu kyninu enda glæsilegur. Nægir þar að nefna eina af könnunum næturvarðar sem hlýtur að útliti ákveðinna drengja. Þar ber Lárus höfuð og herðar yfir félaga sína og skyldi engan undra. Um Lárus gæti ég skrifað í alla nótt en þori því ekki. Þó ætla ég að gerast svo djarfur að skora á drenginn að ferðast um Ísland, hætta þessu flandri útum allan heim og skoða staði einsog næturvörður spyr um. Það mundi ylja mér um hjartarætur að sjá glæsilegan Lárus inná helvítis myndinni.

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Er þetta ekki Víti í Dyngjufjöllum?

Nafnlaus sagði...

jú jú. Mig grunaði að þetta væri full auðvelt en...... allavega, þú stendur þig vel...!

Nafnlaus sagði...

hvurn djofullinn ... vakni þid svona snemma eg var med þetta ...

Nafnlaus sagði...

Shit hvað menn bregðast skjótt við hér á þessari síðu.

P.S
Ég fór á árshátíð Makkar sem var rétt hjá Hvolsvelli! HAA! Það er nú eitthvað!

P.S.S
Næturvörðurinn getur nú trútt um talað um æskuárinn, enda kynni okkar í 7 bekk einatt líkt við það er Oliver Tvist hitti Hrapp!!!

Nafnlaus sagði...

Þetta er nú kannski fullgróft af mér og ekki heiðarlegt þar sem ég er í Svíþjóð og er tveim tímum á undan ykkur og þar afleiðandi fyrr á fótum heldur en þið. Reyndar verða þetta ekki nema einn tími eftir nokkra daga en það er sama, þetta gefur mér smá forskot. Ég skal hafa þetta í hug næst þegar ég ætla að svara.
Kveðjur frá Sverige

Nafnlaus sagði...

nei nei eg ætla ad bara ad stilla mig eftir svíþjod og fara ad mæta i vinnuna ekki minutu seinna en 06:00... nu hardnar keppnin

Nafnlaus sagði...

Eg er osattur vid nyjasta svindlid hja Tedda,hvernig keppir madur vid svona lagad,madur spyr sig.