
sunnudagur, september 10, 2006
Benitez klikkaði, á því er ekki vafi.
Spurt er um land. Það koma nokkur til greina en þó má útiloka ófá, allavega, spurt er um land. Sá er nefnir þennan sögufræga "kastala" á nafn fær rós í hnappagatið já eða rassgatið.
Svo mæli ég með þessumtengli. Þarna byrjar maður að girnast veggfóður. Átti í erfiðleikum að finna flott veggfóður á netinu en hafði gaman að þessari... Alltaf verið heitur fyrir veggfóðrum. Hef jafnvel verið að girnast að byrja með búð sem einungis selur veggfóður. Endilega tjáðu mér hvar ég finn flott veggfóður á netinu. Alltof lítið lagt uppúr veggfóðrum. Það sama á við um hárkollur. Væri gaman að skipta um hár inná milli. Tala ekki um ef maður hefði ekki hár. Þá er ég að tala um flottar og raunverulegar kollur.

Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
15 ummæli:
Á maður ekki að byrja á því augljósa!
Þessar rústir eru á Hjaltlandseyjum. Og kallast þær St. Stevens.
Gott
Shit Teddi, er þetta rétt?
Ég segi Skotland!!!
Eg skit a renault.
Reykurinn tjadi mer ad thad vaeri bannad ad googla upp hlutunum i thessari spurningakeppni.Tha spyr madur sig hvernig i andskotanum veit hann Theodor thetta allt saman eg vil fa pistil um manninn,thvi annads hvort er hann snillingur eda svindlari.eg kvet her med naeturvordinn til thess ad taka spjall vid thann stora.
já hver veit. Teddi hleypir nú ekki hverjum sem er að sér en sjáum hvað setur.
Þetta er ekki Skotland.
Það er nú alveg óþarfi að fara á límingunum strax. Næturvörðurinn hefur ekki enn kveðið upp dóm sinn. Þetta var hreinasta ágiskun, þó vissulega hafi ég sett hana fram sem heilagan sannleik. Ég reyndar hallaðist frekar að Skotlandi en fannst það svo eitthvað svo auðvelt að það hlyti að vera eitthvað annað.
Annars er ég fróður maður mjög, þótt ég segi sjálfur frá. Ég þarf greinilega að að skora á menn í Trivial Pursuit næst þegar ég er á landinu.
Frakkland?
Svíþjóð?
Rangt. Það er e-ð franskt við þetta en!!!
Svo gæti þetta hæglega verið í Vestmannaeyjum en svo er þó ekki.
Á maður ekki bara að skjóta á Belgíu
Þetta er hja frændum okkar i færeyjum
Þetta var eg Hrannar
Þetta eru eyjarnar á milli Frakklands og Englands, skattaparadís með meiru...nafnið á þeim er hins vegar dottið úr hausnum á mér, þetta eru channel eyjur en ég man ekki aðalnafnið.....heitur..?
Egill þú ert að vitna til Jersey og Guernsey.
Það er annars býsna erfitt að giska á þennann kastala því það eru hundruðir slíkra á Bretlandseyjum og þúsundir svona eyja. Gróðurfarið bendir þó til norðlægra slóða. Ég segi England, rétt sunnan við landamæri Skotlands. Svo gæti þetta líka verið Wales eða Írland.
Og já ég er sammála, Benítez klikkaði á fleiri vegu en einn.
Ekki Belgía, Færeyjar, wales, England, Írland né skattaparadísin hans Egils.
Svo er þetta skítaspurning. Rétt svar er Norður Írland.
Skrifa ummæli